Vikan - 05.06.1980, Page 46
Fjölskyldumál Guöfinna Eydal
Hvenær eiga börn
og ungbarn getur ekki haldið aftur af
sér. Sntám sanian þróast hins vegar og
þroskast tauga- og vöðvakerfi barnsins.
og við 3ja til 4ra ára aldur getur barnið
haft stjórn á þvaglátum sinum.
Þvaglát eru þá undir stjórn sjálfráða
taugakerfisins og nierkir það hreinlega
að viijinn getur haft áhrif á þvaglát. I
sambandi við þetta er hins vegar nijög
mikilvægt að benda á að börn geta
ekki einungis hætt að pissa á sig með
því að taugakerfi þeirra hefur þróast.
Það er algjört skilyrði fyrir þvi að börn
geti haldið sér þurrum að þau hafi
vissan skilning á því sem gerist. Barnið
verður að geta hugsað um athöfnina
að pissa. innra með sér — það verður
að hafa nokkurs konar innri mynd af
hvenær. hvers vegna og hvernig
athöfnin að pissa gengur fyrir sig. Til
þess þarf barnið að hafa náð vissunt
vitsmunalegum þroska og vera orðið
2ja 3ja ára. Þá getur það fvrst byrjað
að tengja hlutina saman. Það er þvi
óumræðilega miklu auðveldara að
venja barn af sem er 2 l/2-3ja ára cn
1-1 1/2 árs barn. Tveggja til þriggja
ára barn getur skilið að vissu marki til
hvers er ætlast af því. gengist upp í því
að takast á við athöfnina. Það tekur
einnig yfirleitt mjög skamman tíma að
Hvenær er eðlilegt að börn hætti að
pissa á sig? Þetta er spurning sem
margir foreldrar velta fyrir sér og
spyrja. Flestir foreldrar óska þess að
börn verði ..þurr" snemma — allavega
yfir daginn. þar sem það er óneitanlega
erfitt að hafa börn með bleyju. Á
lslandi er það líka erfiðara en í
mörgum öðrum löndum vegna þess að
pappírsbleyjur eru það dýrar hér að fáir
hafa efni á að kaupa þær að staðaldri.
Það er ntun erfiðara að hafa börn með
bleyju þegar þvottastúss bætist ofan á.
og ekki sist þess vegna er skiljanlegt að
margir foreldrar velti þessu máli fyrir
sér.
Það er nrjög mikill munur á því
hvað börn eru gömul þegar þau hætta
að pissa á sig. Langalgengast er þó að
börn séu orðin þurr á daginn við
þriggja ára aidur. Flest verða þurr
heldur seinna á næturnar. Þetta sýna
rannsóknir frá ótalmörgunr löndunr.
Margar rannsóknir sýna einnig að
nrörg stærri börn, ca á aldrinunr 6-16
ára, eiga erfitt rneð að halda sér þurr
um yfir nóttina enda þótt þau geti það
á daginn. Á Islandi eru ekki til
tölur yfir þetta en í Noregi er talað um
að hér unr bil 40.000-50.000 börn á
aldrinum sex til sextán ára pissi á sig á
næturnar. Ef Noregur. senr er unr það
bil átján sinnunr stærri en Island lca 4
milljónir íbúa), er borinn saman við
Island i þessu tilliti mætti ætla að um
það bil 2500 islensk börn á þessum
aldri pissuðu á sig á næturnar. Það
að hætta að pissa
a sig?
heyrist hins vegar oft lítið um þessi
börn. og bæði börnin sjálf og foreldr-
arnir halda gjarnan að þau eigi ein við
þetta vandamál að etja. Börnin sem
eiga hlut að nráli verða oft fyrir miklu
aðkasti. bæði heima fyrir nreðal
annarra systkina og hjá vinum og
skólafélögum.
Hvenær á að byrja að venja
börn af?
Það er mikið nretnaðarnrál fyrir
nrarga foreldra að börnin verði
snemma vanin af. Margir reyna því að
byrja snenrnra að þjálfa börnin annað-
hvort með þvi að halda þeinr eða nreð
þvi að setja þau á kopp í von unr að
eitthvað sýni sig. Það er ekki óalgengt
að foreldrar byrji á þessari þjálfun fyrir
eins árs aldur. Margir halda því fram
að það reynist auðvelt að byrja að
þjálfa börn snemma i þvi að verða
þurr. Hinir eru þó fleiri senr láta
vonbrigði í ljós. I þvi sambandi er bæði
talað um að það reynist tínrafrekt og
erfitt að venja börnin snemma af og ef
það síðan tekst, að börnin byrji
gjarnan að pissa á sig aftur.
Ungbarn hefur ekki stjórn á blöðr
unni. hún tæmist þegar blaðran hefur
fyllst að vissu marki og þegar
þrýstingurinn er kominn yfir visst stig.
Þetta viðbragð ungviðis er ómeðvitað
46 Vikan 23. tbl