Vikan


Vikan - 05.06.1980, Page 63

Vikan - 05.06.1980, Page 63
Umsækjendur með meiri menntun ganga að öðru jöfnu fyrir um skólavist. Einnig er æskilegt að hafa starfað nokkra mánuði á stofnun þar sem þroskaheftir dveljast. Umsóknir skal senda inn eftir auglýsingu sem birtist árlega í dagblöðunum. Þá getur hann ... en enginn má sjá Elsku Póstur! Þetta er i fyrsta skipti sem ég skrifa þér og ég vona að þú svarir þessu bréfi mínu. Jæja, það er nefnilega þannig að ég er hrifin af strák og hef verið lengi. Hann er í sama bekk og ég, ég gæti horft á hann stundunum saman. Einu sinni bað ég hann að byrja með mér. Hann hugsaði málið mjög lengi (eina viku), en þegar ég talaði við hann svo, neitaði hann. Ég varð mjög sár og er enn. Stundum eftir þetta hef ég reynt að láta sem minnst á því bera að ég sé sár ogfer til hans stundum á kvöldin. Og þá getur hann kysst mig og svoleiðis, en enginn má sjá. Hann hefur einu sinni komist upp á mig, með mínu leyfi auðvitað. Það eru allir að reyna að fá mig til að biðja hann aftur af þvíað við eigum svo velsaman, en égþoriþað ekki. Égsef ekki á næturnar, læri ekkert í skólanum, mæti illa, kem ekki heim fyrr en um miðjar nœtur og svo mætti lengi telja. Hvað fnnst þér að ég ætti að gera? Svo vil ég þakka Vikunni allt skemmtilegt, en Pósturinn er alltaf bestur. Hvað kostar að vera áskrifandi og hvenær á að'borga? , Ein hrifn. Það er vandséð hvaða gróða þú hefðir af þvi að biðja drenginn aftur þess sama. Kynni ykkar eru orðin það náin að ekki ætti að vera mikið í veginum, ef báðir aðilar hafa einlægan áhuga. Af bréfi þínu að dæma skortir þig ekki áhuga á honum og þá er aðeins spurning um hans tilfinningar. Varla vefjast þær mikið fyrir honum, því ef svo væri myndi hann sýna þér meiri áhuga en virðist af frásögn þinni að dæma. Þó er ætíð erfitt að segja um slíkt með nokkurri vissu gegnum bréfadálk sem þennan og þú verður sjálf að gera upp við þig, hvort þú vilt eyða tímanum í hann eða ekki. Getir þú ekki hugsað þér veröldina án hans er lítið hægt við því að gera og liklega er þá samband sem þetta betra en ekkert í þínum augum. Hins vegar skaltu reyna að varast að láta hann ná of miklum tökum á þér og minnstu þess að hann er alls ekki eini karlmaðurinn í veröldinni. Á þínum aldri eru vonbrigði í þess- um efnum jafnóhjákvæmileg og sú staðreynd að tíminn stendur ekki í stað og mikilvægt að reyna að komast sem best frá öllu slíku. Og ef þetta er farið að koma tilfinnanlega niður á skólanáminu og ýmsu því tengdu verður þú að snúa blaðinu við. 1 þvi efni gæti hjálpað að eiga góðan trúnaðarvin, sem gæti hresst þig og stutt á slæmum stundum. Áskrift að Vikunni kostar 4000 krónur á mánuði og er greidd mánaðarlega hér á höfuðborgarsvæðinu. Áskrifendur úti á landi borga sömu áskriftargjöld en yfirleitt á 3ja-6 mánaða fresti. The Teens og nafnið llna Kæri Póstur! Við erum hér tvær ungar stúlkur og langar til að vita eitthvað um hljómsveitina The Teens. Vildir þú vera svo vænn að birta plakat af The Teens. Hvað þýðir orðið Una? Við erum 17 og 18 ára gamlar og elskum hljómsveitina The Teens. Sendum Helgu sætu aukabréf Tveir Teensaðdáendur Pósturinn skrifar ekki poppsíð- una og sér því ekki um plakötin en ósk ykkar er hér með komið á framfæri við rétta aðila. Væntanlega eigið þið við kvenmannsnafnið Una, sem hefur tíðkast hér frá landnáms- öld. Það þýðir hamingjusöm kona. Helga þakkar skemmtilegt bréf og innihaldsríkt. Nafnið á völvu Vikunnar Kæri Póstur! Mig langar að biðja þig að svara mér sem fyrst því ég hef svolítið í huga. Er bannað að birta nafn völvu Vikunnar? Hvað heitir hún, ef þú mátt birta nafnið? Ein forvitin. Því miður, völva Vikunnar er kona hlédræg og vill alls ekki að nafns hennar sé getið opin- berlega. Leyndin yfir persónu hennar hefur verið svo mikil að hún hefur einungis samband við ritstjórann varðandi spána um áramót og kemur þar enginn annar nærri. 23. tbl. Vikan 63

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.