Vikan - 14.08.1980, Page 3
Ljósm.: Jón Ásgeir
'
Borgfirskir
íþróttagarpar
Mannamótsflöt í Borgarfirði er
gamall áningarstaður þeirra,
sem áttu leið um Hestháls. í
sumar hafa safnast þar saman
einu sinni í viku krakkar á aldr-
inum 5 til 11 ára. Þau æfa þar
frjálsar íþróttir undir leiðsögn
Ágústs Þorsteinssonar íþrótta-
manns.
Krakkarnir búa á félagssvæði
Ungmennafélagsins íslendings,
en það nær yfir Andakílshrepp
og hluta af Skorradalshreppi. í
fyrra var krökkum á þessum
aldri í fyrsta sinn gefinn kostur á
að þjálfa frjálsar íþróttir saman.
Þá leiðbeindi enginn sérfróður
þjálfari krökkunum.
En áhuginn þótti nægur til að
Ungmennafélagið íslendingur
réð i sumar Ágúst Þorsteinsson
til að sjá um þessa íþrótta-
þjálfun. Ágúst stjórnar einnig
sundæfingum fyrir krakka á
aldrinum 8 til 16 ára.
Sundæfingamar fara fram
þrisvar í viku í sundlauginni við
Efri Hrepp í Skorradal. Ung-
mennafélagið byggði þessa laug
fyrir nær hálfri öld, og fóru 1000
krónur í að byggja grunninn.
í Ungmennafélaginu Is-
lendingi eru nú um 100
félagsmenn, og langflestir
þeirra hafa átt einhvern þátt í
starfi félagsins. Formaðurinn
heitir Rikarð Brynjólfsson,
kennari á Hvanneyri. Flestir
krakkanna á meðfylgjandi
myndum búa á Hvanneyri, en
þaðan er hálftíma akstur að
Mannamótsflöt.
Það vantar ekki viljann.
-jás
■
:VÍ' :
• '
33> tbl. Vikan 3