Vikan - 19.02.1981, Qupperneq 2
iVlargt smátt
UeðaÖ
Sú var tíðin að starfsmönnum
tryggingafélaga þótti vissara að hafa
vaðið fyrir neðan sig þegar hringt var
utan af landi og tryggingar á bilum
msd ö-númerum voru til umræðu.
Þá var föst spurning trygginga-
manna: Er það ö með striki eða ö
sem er opið upp úr?
Rafstuð.
Óska e'ftir að kaupa eða taka á leigu 10
kílóvatta rafstuð. Uppl. i síma 99-4589
eftir kl. 7.
DB. 28.-1.-'81
i þessari smáauglýsingu hefur ö-ið
eitthvað skolast til, en engum getum
leiðum við að þvi hvort sá sem
hringdi inn auglýsinguna eða sá sem
við henni tók hefur ruglast á ö með
striki og ö sem er opið upp úr.
Veinðlaunahafinn
íþessari Viku:
Enn eru komin nógu mörg bréf frá
lesendum til að hægt sé að draga út
verðlaunahafa. Að þessu sinni kom upp
brandari sem Gunnar Halldórsson,
Rifskjöri, Rifi, 360 Hellissandi, sendi.
Og ekki nóg með það. hann teiknaöi
myndina lika. Og hér keniur frantlag
verðlaunahafans.
EKKI ER
ALLT SEM
SÝNIST
Hvor miðpunkturinn er stærri, sá
til hægri eða vinstri?
Svar:
Hægri miðpunkturinn, sem er
umkringdur litlum punktum,
virðist stærri en sá til vinstri. í
rauneruþeir jafnstórir.
Getur þú séð stigann frá tveimur
sjónarhornum?
Svar:
Það er hægt. Ef þú einbeitir þér
getur þú bæði séð ofan stiga, sem
liggur frá efri hæð niður á neðri
hæð, og eins getur þú séð undir
hann!
Heyrt í kvöldfréttunum:
Á Svartsengi við Grindavik er
framleiddur helmingurinn af orkuþörf
Suðurnesja.
Þessi gengur í verkfrxðideildinni í
Háskólanum:
Hver er sérgrein islenskra verkfræðinga?
Svar: Líkön í hlutföllunum l : l.
I.ífið hér á eynni er svo tilbrcytingar-
laust að maður myndi hressast við eins
og einn jarðskjálfta ....!
■*:
Gunnar fær fjórar VIKUR sendar heim.
mánaðaráskrift.
Og haldið svo áfram að senda okkur
efni, brandara, húsráð, utanhússráð
og heillaráð af öllu tagi. Þið getið
sent allt sem ykkur finnst að
lesendur Vikunnar gætu haft gaman
af. Því meir sem kemur inn af efni frá
ykkur þeim mun oftar drögum við
verðlaunahafa úr bunkanum.
Kokkteilvirkjun
Maður nokkur kom að ntáli við margt
smátt út af umntælum Guðna Kolbeins-
sonar i seinasta þættinum lians um dag-
legt mál — að sinni. Hann sagðisl
alfarið vera á nióti þvi að kalla kokkteil
blöndu og vill fá að halda kokkteil-
nafninu. Auk þess leggur hann til að
ráðist verði i Kokkteilvirkjun fyrir Norð-
vesturland hiðbráðasta.
Þorrablótá spánskan?
Þorrablót 1981
(Bloto De Torres)
Carta de Rettes:
Primo: Suro Bringukolli de Animale
Securdo: Brenndo Hauses de Rolla
Tertio. Fisces (Hango a Trano)
Quatro: Confecto (La MiUe Foto)
Quinto: Huale (Multo Faito)
Sexto: Hacarles (Multo Fýlo)
Octo: Blod de Animales Tortures, a Mjöle
Novo: Flesko Nikotino (A la Krabbe)
Dedmo: Kássa de Rofos
Extræ Kássa de Kartofles
Extra: Kaka flata a Crema de BeUa
Extra: Brauö Bruno (Vindo)
Extræ Brauð de Laufes
Extra: Ebaggo de Lundes
Finale: Mixtura de Tutti - Rettés Afgangés
LaCheC Bona appetito. K.Ó.L.A.G.G.
Velflestir Islendingar eru nú orðið sólarlandasigldir. Á veturna eru haldnar
veglegar Spánarhátiðir og spönskuslettur eru farnar að keppa við dönsku-
slettur í málinu. Þess vegna kemur varla nokkrum spánskt fyrir sjónir að sjá
þorramatseðil upp á sólarlandamáta á rammíslensku þorrablóti. cins og hjá
einum bankanum urn daginn. Eða hvað finnst ykkur?
£ Vikan 8. tbl.