Vikan - 19.02.1981, Qupperneq 15
Framhaldssaga
málinu liggur. Hin sjúklega hugmynd
þín kemst ekki til framkvæmda. Taktu
mín ráð: Forðaðu þér frá Sharnville
áður en Brannigan lætur til skarar
skríða og fangelsar þig.”
„Imyndarðu þér að Glenda sé þar sem
ég næ ekki til hennar?” Hann hristi
höfuðið. „Hún er læst inni í herberginu
sínu. Ég held að þú sért að láta þig
dreyma, herra Lucas.”
Það voru liðnar tuttugu og fimm
mínútur síðan ég kom í húsið. Nú ætti
Glenda að vera orðin örugg í Sherwood
hóteli.
1 því iheyrði ég hljóð sem kom mér til
að stirðna upp: dapurlegan negrasálm,
leikinn á munnhörpu.
„Þarna er Joe,” sagði Klaus og
flissaði. „Herra Lucas, ekki veifa
byssunni svona til og frá. Þú lætur það
þó ekki hvarfla að þér að ég leyfi Joe að
gefa þér hlaðna byssu? Sjáðu til, gallinn
við leikmanninn er sá að hann aðgætir
ekki allt jafnvandlega og atvinnu-
maðurinn. Leikmaðurinn fær byssu í
hendurnar og hann dregur þegar í stað
þá röngu ályktun að hún sé hlaðin.
Skjóttu á mig ef þú vilt vita vissu þína.”
Benny glotti ógeðslega og lagði af stað
í áttina til mín. Ég lyfti byssunni en gat
ekki fengið það af mér að taka í gikkinn.
Ég vissi að þeir höfðu séð við mér.
„Ég skulda þér þetta, skepna,” urraði
Benny og risahnefi hans small á vanga
mínum. Skært ljós sprakk í höfði mínu
um leið og ég skall á gólfinu. Nokkra
stund flaut ég I myrkrinu, svo heyrði ég
Klaus segja eins og úr fjarska: „Þú
hefðir ekki átt að gera þetta, Benny.
Það er engin þörf á ofbeldi.”
Þá varðég var við hendur sem leituðu
í jakkavasa mínum. Ég gerði máttvana
tilraun til að ýta höndunum burt og
barðist við að komast aftur til
meðvitundar. Það varð löng þögn. Það
fór að rofa til í kollinum á mér og mig,
fór að kenna til í andlitinu. Ég velti méri
við og dróst upp á hnén. Ég tók að
greina herbergið skýrar. Ég sá hvar Joe
stóð við skrifborðið.
Ég heyrði hann segja: „Fiflið lét mig
fá fimm þúsund, foringi. Hann reif
seðlana í tvennt. Ég er með hinn
helminginn. Má ég halda peningunum?”
„Auðvitað, Joe. Mér finnst þú eiga þá
skilið.”
Ég heyrði Joe flissa. Það hljóð sagði
mér að ég hefði eytt orku minn til ónýtis
á hann. Glenda var enn fangi!
Ég reis hægt á fætur, færði til stól og
settist.
„Gefið herra Lucas sjúss,” sagði
Klaus. „Hann virðist þurfa á slíku að
halda.”
Viskíglasi var ýtt í hönd mína.
„Ég biðst afsökunar, herra Lucas,”
sagði Klaus. „Benny missir stundum
stjórn á sér.”
Ég sneri mér við og skvetti viskíinu í
urrandi andlit Bennys. Hann öskraði
upp, bar hendurnar að augunum og
hörfaði frá. Svo strauk hann augun með
handarbakinu og kom í átt til mín.
Grimmdarlegt andlit hans var afmyndað
af óðri bræði.
„Benny,” Klaus hækkaði ekki
róminn. „Farðu og talaðu viðGlendu.”
„Benny hægði á sér, nam staðar, leit á
mig og glotti svo.
„Já.”
Hannfór tildyra.
Ég neyddi mig til að risa á fætur og
Mtraði á eftir honum. Höfuðið var log-
andi af kvölum og gólfið virtist ská-
hallt. Joe var snar i snúningum, greip í
handlegg minn, rykkti mér við og sló
mig fast á munninn, svo þeytti hann mér
afturístólinn.
Ég var ringlaður en reyndi enn að rísa
á fætur. Joe hrinti mér aftur I stólinn.
Svo heyrði ég langt og nístandi vein
bakatil I húsinu, kvenmannsvein og ég
vissi að það var Glenda.
„Þú ættir kannski að stöðva hann,
Joe,” sagði Klaus blíðlega. „Hann kann
sér ekki hóf.”
Joe glotti og flýtti sér fram.
„Þetta er allt I lagi, herra Lucas,”
sagði Klaus. „Hún verður ekki meidd
aftur, nema auðvitað þú sért ekki sam-
starfsþýður.”
Ég minntist þess sem Glenda sagði
um manninn sinn: Hann var búinn að
missa allan kjark og hafði þó nógfyrir.
þeir tóku kjarkinn frá Alex eins og
skurðlœknir fjarlœgir botnlanga.
Þetta nistandi vein fjarlægði allan
þann kjark sem ég einu sinni var
gæddur.
„Ég verð samstarfsþýður,” hvíslaði ég
hvellt.
Joe og Benny komu inn í herbergið.
Ef svo er ... stingur maður
ekki hausnum í sandinn...
Nú er sá árstími sem húðin þarfnast etnna mest hressingar við.
Þurr og viðkvcem húð er algengt vandamálhér ogekkihætir úr skák að vistaverur
okkar hafa iðulega of þurrt loft.
Við viljum því vekja sérstaka athygli á meðferð sem hjálpar húðinni að
halda eðlilegum raka sínum.
COLLAGENE INTEGRAL FRÁ SOTHYS’
Eftir 5 skipta COLLAGENE INTEGRAL kúr verður húðin mýkri ogþéttari
viðkomu, því COLLAGENE INTEGRAL hefur einnig þéttandi (lifting)
áhrif á húðina.
Mismunandi efni eru notuð eftir aldri og húðgerð viðkomandi.
Verð 130 kr. hvert skipti.
snyrtistöían
nmrsqböq
Garðastræti 4. Sími 29669.
Ingunn Þórðardóttir snyrtifrxðingur
8. tbl. Vlkan XS