Vikan - 19.02.1981, Síða 18
Texti: Guðfinna Eydal
Áhrif umhverfis á
fóstur
Menn vita ekki ennþá ýkja mikið um
hvemig ýmsir umhverfisþættir hafa áhrif
á fóstur á meðgöngutíma. Vitað er að sú
næring sem fóstrið fær hefur mikil áhrif
á þroska þess og þess vegna er lögð rik
áhersla á að sú næring sem móðir fær á
meðgöngutíma skiptir miklu máli.
Mæðrum er því yfirleitt ráðlagl að borða
næringarríka og fjölbreytta fæðu eins og
grænmeti, mjólkurvörur, kjöt og fisk.
Á síðastliðnum árum hefur athygli
manna beinst meira og meira að því
hvernig að ýmis eiturefni hafa áhrif á
þroska fósturs. Sígarettureykingar hafa
fengið mikið umtal, þar sem vitað er að
konur sem reykja mikið á meðgöngu-
tíma geta fætt of snemma og einnig
eignast börn með lægri fæðingarvigt en
konur sem reykja ekki. Einnig er til að
börn hafa fæðst með nikótíneitrun.
Ýmiss konar önnur eiturefni hafa verið
rannsökuð i sambandi við þroska
fósturs, eins og mörg lyf og eiturlyf, t.d.
LSD og hass. Áfengi hefur hins vegar
ekki fengið sérlega mikið umtal i
sambandi við meðgöngutíma fyrr en á
allra siðustu árum. En nú beina menn
athyglinni æ meira að því. Sennilegt er
að aukin áfengisneysla kvenna ráði hér
einhverju.
Ef flett er upp í ýmiss konar bókum og
bæklingum um meðgöngutima kemur i
Ijós að hin ýmsu lönd eru nokkuð
santdóma um ráð i sambandi við notkun
áfengis. Yfirleitt er skrifað eitthvað á þá
leið að litil notkun áfengis sé ekki álitin
hafa skaðleg áhrif á fóstur en að áfengi
skuli nota með varúð. í allra nýjustu
leiðbeiningum frá Norðurlöndum er
einnig gjarnan sagt að mikil notkun
áfengis á meðgöngutima geti skaðað
heila og taugakerfi barns.
Áfengisneysla kvenna á
meðgöngutíma
Margar konur sem bragða vin undir
venjulegum kringumstæðum hafa ekki
löngun í það á meðgöngutima. Margar
konur hugsa hins vegar mikið um það
hvort óhætt sé að nota áfengi i ein-
hverjum mæli. Sumar konur hafa haft af
því þungar áhyggjur að þær brögðuðu
vin áður en þær vissu að þær væru
ófriskar. Til er líka að konur bragði vin
annað slagið á meðgöngutima, án þess
að hafa af því verulegar áhyggjur, þar
sem þær álíta að notkunin hafi verið það
litil að hún geti varla skipt máli. Enn
aðrar konur geta verið það háðar áfengi
að þær geta ekki hætt á meðgöngutíma
og hafa margar þeirra áhyggjur af þeirri
18 Víkan 8. tbl.