Vikan


Vikan - 19.02.1981, Síða 35

Vikan - 19.02.1981, Síða 35
áfram, — fyrirgefið mér ákafa minn, hugsunarleysið, fram- hleypnina. Má ég kynna mig? Jean-Pierre Renoir, af Renoir aðalsættinni. Þér vitið . . . en nóg um það . . . leyfið þér mér að setjast hjá yður eitt lítið ^ndartak, mademoselle . . .? — Gloria Marlowe. Jean-Pierre nær sér i stól, sest og grípur enn einu sinni hönd Gloríu. — Má ég kalla yður mademoiselle Gloríu? spyr hann innilega og horfir bænar- augum á Gloríu með fallegu brúnu augunum sinum. Aftur sortnar Gloríu fyrir augum. Hún kinkar kolli til samþykkis. — Gloría! heldur hann áfram hrærður. — Gloría darling! ma mignonne! mig langar að kaupa djásn handa þér, pelsa, chinchillapelsa, mig langar að klæða þig frá hvirfli til ilja í dýr- ustu, fínustu og eftirsóttustu föt sem maður getur fengið hjá bestu Parísartiskukóngunum. Mig langar að kynna þig fyrir vinum minum, koma þér inn í samkvæmislífíð. Stoltur vil ég kynna þig fólkinu í fínustu næturklúbbunum. Þú átt að baða þig í kampavíni og kavíar. Þú átt að geta bent á hvað sem hugurinn girnist og sagt: — þetta vil ég fá! . . . og ég skal gefa þér það! Jean-Pierre stoppar andar- tak, andar djúpt að sér, ber viðkvæmu, litlu, fölu höndina hennar Gloriu að vörum sínum og kyssir ákaflega, kyssir allan handlegginn, kyssir hvern einasta fingur á vel hirtri hendi Gloríu. Síðan heldur hann áfram: — Gloría, elskan mín dýrmæta! Við skulum ferðast, við skulum fara umhverfis jörðina . . . Hawaii, Miami Beach, Buenos Aires, Indland. Hönd i hönd skulum við ganga upp á tind Fusíama, horfa yfir Palestínuhæðirnar, dást að Keops-pýramídanum, undrast kynngi Niagarafossa, horfa á tunglið koma upp við rætur Kilimanjaro og sólina setjast í Kyrrahafið. Við skulum ganga eftir þilförum lystiskipanna, baða okkur í öldunum við Bahamaeyjar, hvíla okkur í hvítum sandinum á eftir. Og við skulum hlusta á söng trétítl- unnar á dásamlegum hitabeltis- nóttum . . . allt þetta skulum við upplifa saman, þú og ég. Veröldin liggur opin við fætur okkar og við skulum ekki láta eina mínútu fara ti! spillis. Gyðja gæfunnar hefur gefið okkur óskastundina, grípum hana!. Jean-Pierre lítur snöggt á úrið sitt. — En nú verð ég að fara, segir hann og stendur upp. — Biddu min hér. Sverðu við allt sem þér er heilagt að þú munir bíða mín hér, Gloría darling, elskan mín, að þú bíðir mín hér þar til ég . . . Hann grípur um vasana á hvítu fötunum sínum, sem gætu ekki verið betur sniðin, en finnur ekki það sem hann er að leita að. Síðan smellir hann fingrum fyrir framan andlitið á Gloríu, ánægður með að hafa fundið lausnina á því sem angraði hann. — Láttu mig fá 1000 franka seðil, segir hann, — en fljótt. Við megum ekki láta nokkurn tíma fara til spillis, ekki eina sekúndu. Glöría rótar í ákafa eftir seinasta 1000 franka seðlinum sínum í handtöskunni sinni, finnur hann og stingur honum í flýti í hönd hins himneska, djarfa og dásamlega Jean- Pierre. — Þakka þér, djásnið mitt! segir hann og kyssir dýrmætu höndina hennar í síðasta skipti. — Nú hleyp ég yfir í spilavitið og legg þennan 1000 franka seðil undir og þegar ég er búinn að sprengja bankann kem ég til baka og sæki þig! Og þá, þá leggjum við veröldina að fótum okkar! [M 8. tbl. Vikan 35

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.