Vikan


Vikan - 26.02.1981, Blaðsíða 20

Vikan - 26.02.1981, Blaðsíða 20
til að tala um það er merkilegt með Maríönnu. Oftsinnis dettur mér í hug að ómögulegt sé að ræða við hana, fá hana til að rabba lengi og notalega um ákveðið efni. Oft byrja ég á alveg stórfínu stikkorði og er einmitt í skapi til að rökræða en áður en ég veit af, áður en samtalið er yfir- leitt komið í gang er það búið. Ég veit ekki hvort Maríanna er einstök að þessu leyti. Mér þætti alla vega gaman að heyra hvort aðrir eiginmenn hafa lent í svipuðum vanda með sínar konur. Ég verð víst að skýra mál mitt með dæmum svo þið vitið um hvað ég er að tala. Eins og i fyrradag til dæmis. Ég hafði farið á veðreiðar og þegar ég kom heim og stakk hausnum í gættina á eldhúsinu vildi ég gjarna spjalla svolítið um hvernig hefði verið. — Ég skal hengja mig upp á að það voru sviptingar og óvæntir atburðir í seinasta hlaupinu, sagði ég. White Star og Red Nose leiddu í upphafi, svo lenti White Star í klemmu seint í beygjunni og var úr leik, Flamingo Girl komst fram fyrir og náði forystu. Red Nose var úr leik, af því hún hélt ekki réttum gangi, en þá skaust Flying Boy fram úr öllum og komst fremstur, en þá gerðist það . . . Slow Poke, sem var ekki einu sinni reiknað með, brunaði fram með Jens „hressa” eins og við köllum hann, knapa, það er frábær strákur, mikil framtíð í honum .... nú, svo hristir Slow Poke alla af sér og kemst við hliðina á Flying Boy, uppáhaldinu, þú veist, keyrið aðeins i síðuna og eitt andartak virðist Flying Boy ætla að hafa það, en á lokasprettinum . .. Maríanna hækkaði straum- inn aðeins undir kartöflunum og leit upp. — Hve miklu tapaðir þú? spurði hún. Hvað sagði ég ekki? Allt ónýtt. Hvernig er hægt að halda áfram löngu og skemmti- legu samtali eftir að fá svona kalda vatnsgusu framan i sig? Tökum annað dæmi. Það er sunnudagssíðdegi rétt upp úr kaffi. Maður er rétt að tendra í góðum vindli og stendur og horfir út í garðinn. — En indælt veður, segir maður svo. — Ég gæti vel hugsað mér að setjast út í garðstólinn undir perutrénu og fá mér smáblund þarna úti. Ef ég legg teppi í stólinn verður alls ekkert of kalt þó manni renni í brjóst. Og maður hefur gott af fersku lofti. Það er orðið langt síðan ég hef haft tíma til að slappa verulega vel af og njóta . . . Maríanna leggur dúkinn á borðið og strýkur úr honum fimum höndum og segir svo: ý:. Sfjörnuspá llníiurinn 2l.ni;irs 20.;i|»ril Áhyggjurnar sem hrjá þig eru því miður ekki ástæðulausar. Þu ættir að brjóta odd af oflæti þínu og biðja um hjálp við verkefni sem þér finnst þu valda einn. Tilfinningamálin verða i sjálfheldu en óvænl atvik verða til góðs. \oi»in 24.\c|}(. 2.Vnki. Þúr verður legiðá hálsi fyrir léttlyndi, jafnvel óheilindi. Eitthvað sem þú gerir veldur þessu. Þú átt á hættu að missa samband við manneskju sem er þér mjög kær ef þú athugar þetta mál ekki vandlega. Beittu hugmyndafluginu. \aulirt 21. ipril 2l.mai Samúð og skilningur á málurn þinna nánustu getur haft ntjög góðar afleiðingar. Þú ættir að sýna allt hið besta i fari þinu og gæta hófs í gagnrýni, jafnvel þótt hún sé réttmæt. Mjög erfiðar sveiflur á fólkinu I kring. Sporðdrckinn 24.okl. 2.Viió\. Framtiðaráætlanir gera þig bjartsýnan. Vikan er líka heppileg I áætlanir og skipulag. Þú gætir komist að góðunt kjörum ef þú ætlar að kaupa eitthvað sem viðkemur ferðum. Hafðu tímasetningu þó ekki of fast njörvaða. T\íhurarnir 22.mai 21.júní Þetta verður ein af þessum vikum sent virðast ekki ætla að verða neitt neitt en rætist úr. Þó máltu eiga von á skyndilegu en skemmtilegu annríki og ættir að taka vel eftir. Eitthvað eða einhver sem þú sérð skiptir máli. Hoiiiuai'lurinn 24.nó\. 2l.dcv Yngri kynslóðin keniur mjög við sögu um þessar mundir. Þú þarft að likindum að sinna ungviði eða umgangast einhvern sem. gerir það. Láttu hlutina ekki vaxa þér í augum. Vera má að þú þurfir á hjálp að halda i óskyldu máli. kr.-.hhinn 22. júni 2.\. juli Þú mátt eiga von á að áætlanir standist ekki þessa vikuna, jafnvel að þú verðir leiddur út i eitthvert ævintýri sem þér er ekki um gefið. Þú ættir að vanda vel val fólksins sem þú veitir trúnað þinn og spyrja ef þú ert I vafa. r~ SlcinjJcilin 22.dcs. 20. jan. Ástarmálin ættu að vera I stakasta lagi um þessar mundir hjá þeim steingeitum sem er umhugað um þau. Gættu þess að láta afbrýðisemina ekki hlaupa með þig í gönur. Staða þín er á mörgum sviðum mjög sterk núna. Sallarólegur og i góðu skapi lendir þú I að fást við erfiðleika sem þér virðast I fyrstu léttvægir. Þú munt sjá að svo er ekki en mikið hjálpar að halda góða skapinu og gera það besta úr öllu. \alnshcrinn 2l.jan. IQ.fchr. Þú mátt etga von á ýmsu skringilegu á næstunni. Flest er frekar til góðs og þú ættir að búa þig undir breytingar á högum þinum þótt ekki verði þær stórvægilegar. manneskju sem þú hafðir talið þér hlið- holla. Þú ættir að hugsa þitt ráð og athuga hvort hefur rétt fyrir sér. Þú gætir komist að óvæntri niðurstöðu ef þú gaum- gæfir málið vel. Fiskarnir 20.fcbr. 20.mars Leiði eða kviði er ekki til neins. Þú ættir að fara eins oft og þú getur I margmenni og vera ekki eins upptekinn af eigin hugsunum og áður. Ný kynni eru sérlega heppileg en reyndu að vera vand- látur um val þitt. Vikan 9. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.