Vikan


Vikan - 26.02.1981, Qupperneq 63

Vikan - 26.02.1981, Qupperneq 63
Pósturinn er þeim skylt að fasta frá sólaruppkomu til sólarlags, en eftir sólarlag halda þeir gjarna miklar veislur. Múhameðstrúar- menn hafa annað tímatal en kristnir. Það telst frá og með 16. júlí 622 e. Kr. að okkar tímatali. Samkvæmt því ætti árið 1359 að hefjast nú i sumar. í Nígeriu eru margir múhameðstrúar- menn og telja þeir, því árin samkvæmt þessu. Hvemlg byrfar maður með strók? Ég vona að þú birtir þetta bréf. Vandamál mitt er þannig að ég er skotin í strák. t hvert sinn sem ég sé hann er ég að deyja úr ást. En ég get ekki gleymt honum. Hvernig byrjar maður með strák? NN Já það er stóra spurningin. Hvernig byrjar maður með strák? Ætli þessi spurning sé ekki jafngömul mannkyninu, að minnsta kosti eldri en Pósturinn. Það eru ýmsar leiðir til þess og misfærar. Það fer allt eftir aðstæðum og þú nefnir ekkert um það. Pósturinn hefur það eftir áreiðanlegum heimildum að þekki stelpa strákinn lítið sem ekkert verði hún að byrja á því að kynnast honum, að minnsta kosti vekja athygli á sér. Hér þarf kænsku og hugrekki. Notaðu hvert tækifæri til þess að komast að pilti og láta hann taka eftir þér, en gættu þess þó að vera ekki of uppáþrengjandi. Þegar athygli stráksins er náð og ekki síst þegar áhugi hans er vakinn þá er mikilvægt að draga svolítið í land og láta á engu bera um hrifninguna. Hér þarf þó' sem fyrr að fara varlega, halda áhuga stráksins og vera jafnán nálæg án þess að á því beri. Þegar þessu stigi er náð er kominn tími til að gera eitthvað róttækt í málinu. Annaðhvort hefur þú frumkvæðið og býður pilti upp á ballinu, býður honum i partí eða hvað það er nú sem við á. Einnig er hægt að biða og sjá hvort strákurinn tekur af skarið en það er ekki eins öruggt ráð. Milligöngumenn ýmsir eru ekki óalgengir í svona tilfellum og um að gera að nota sér alla þá hjálparmenn sem fyrir hendi eru. Hafðu hugfast að óbrigðul- asta ráðið til þess að ekkert gangi er að sitja heima og lesa. Penna- vinaklúbbur Við erum hér tvær stelpur sem erum í pennavinaklúbbi sem var stofnaður í Kanada. Þessi klúbbur hefur meðlimi frá nokkrum enskumælandi löndum en fjöldinn fer ört vaxandi. Þeir sem vilja vera með í pennavinaklúbbnum FOAN og eignast pennavini um heim allan skrifi til annarrar hvorrar okkar. Gerður Jóelsdóttir, Sunnuflöt 30, 210 Garðabæ eða Anna Guðmundsdóttir, Norðurtúni 21, Álftanesi, 221 Hafnarfirði. Hitt og þetta Kæri Póstur. Ég hef einu sinni skrifað þér áður og þú birtir bréfð, þúsund þakkir fyrir. Hér koma svo spurningarnar: 1. Ég er alveg í stökustu vandræðum með líkamsvöxtinn. Guð hefur verið í góðu skapi þegar hann skapaði efri hlut- ann en því miður gegnir ekki sama máli um neðri hlutann, það er mjaðmir og læri, þetta tvennt er allt of breitt. Hvað get ég gert til að mjókka læri og ekki síður mjaðmir, í öllum bænum ekki biðja mig um að leita læknis. Hann myndi hlæja og segja að mörg stúlkan vœri ánægð með minn vöxt og svo framvegis. Þetta er ekki læknismál heldur mitt og ég spyr: Eru til einhver tæki sem gætu bjargað málunum? 2. Telurðu rangt að unglingar séu saman á föstu? 3. Hvað merkja nöfnin Jörundur og Hreiðar? 4. Hvað lestu svo úr skriftinni, eru margar stafsetning- arvillur, hvað heldurðu að ég sé gömul og hvernig leggst árið 1981 í þig? Kærar þakkir sendi ég þér fyrirfram, Póstur sæll. Yngismœr í vandræðum. P.S. Hvað kostarað kaupa Vikuna í eitt ár? Þetta með lærin og mjaðmirnar er vandamál sem margir þekkja af eigin raun. Til þess að ráða bót á vandamálinu er yfirleitt eina ráðið að grenna sig um nokkur kíló. Aukafitan safnast einmitt oft á þessa staði. En megrunin ein er ekki nóg. Margar heilsuræktarstofur bjóða upp á æfingar til þess að grenna einstaka líkamshluta. Líklega hjálpar það þér þó ekki í sveitinni. Pósturinn hefur stundum rekist á auglýsingar um alls kyns grenningartæki en hefur ekki tekist að afla áreiðan- legra heimilda um gagnsemi þeirra. Hins vegar eru líkamsæfingar örugglega gagnlegar. Til dæmis þessar: Krjúptu á kné, með bil á milli hnjánna en fætur eiga að snertast. Réttu handleggina fram, snúðu lófum niður. Dragðu inn andann, haltu rass- og magavöðvunum inni. Hallaðu þér aftur og haltu bolnum beinum um leið og þú andar frá þér. Haltu þessari stöðu. Dragðu inn andann, komdu síðan aftur í byrjunar- stöðu. Endurtekið 3-10 sinnum. Liggðu á hliðinni, styddu öðrum armi við höfuð, hafðu hina höndina flata fyrir framan þig. Dragðu inn andann. Andaðu frá þér, lyftu fótleggjunum hægt og sperrtu tærnar. Vertu kyrr smástund, dragðu inn andann og. andaðu frá þér um leið og þú lætur fótleggina síga. Endurtekið 10 sinnum hvorum megin. Þessar tvær æfingar eru aðeins dæmi um líkamsæfingar sem hægt er að stunda heima í stofu. (Þær eru úr bókinni Listin að líta vel út. Þar eru ýmsar fleiri æfingar sem of langt mál væri að lýsa.) Til viðbótar má nefna að það mun vera einstaklega grennandi fyrir mjaðmir og rass að húla með húlahopp-hring. Pósturinn getur í stuttu máli ekki lagt neinn dóm á það hvort rétt eða rangt sé fyrir unglinga að vera saman á föstu. Það fer að sjálfsögðu eftir atvikum og hvað átt er við með því að „vera saman”. í fljótu bragði getur Pósturinn ekki séð margt sem mælir á móti því að unglingar séu mikið saman ef þá langar til þess. Tvennt er það þó aðallega sem hafa ber í huga. Annað er að frelsið er dýrmætt, ekki síst þegar maður er ungur og föst sambönd geta bundið unglingana um of. Hins vegar þurfa unglingarnir að mynda sér skoðun á því hve „langt” þeir vilja ganga í sambandi við kynlíf. Mikilvægt er að gera ekkert gegn vilja sínum og að sjálfsögðu að nota getn- aðarvarnir ef kynmök eru iðkuð. Mannsnafnið Hreiðar merkir frægur hermaður. Það hefur tíðkast hér lengi en alltaf verið fremur sjaldgæft. Merking nafnsins Jörundur er hins vegar vafasöm. Fyrri hluti nafnsins virðist skyldur orðinu jara sem merkir orrusta. Pósturinn gerir orðið lítið að því að lesa úr skrift. En bréfið var ágætlega skrifað og stafsetningarvillur fáar sem engar. Árið 1981 leggst bara vel í Póstinn. Þegar þetta er ritað er áskriftarverð 60,00f kr. á mánuði eða 720,00 kr. á ári. Áskriftarverðið greiðist fyrirfram, gjald- dagar nóvember, febrúar, maí og ágúst. 9, tbl. Vtkan 63
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.