Vikan


Vikan - 19.11.1981, Side 2

Vikan - 19.11.1981, Side 2
Margt smátt írskir brandarar Ungur piltur utan af landi hafði verið í ' Dublin i heilan dag og þegar hann kom aftur fór hann að segja vinunum frægðarsögur af sjálfum sér á kránni. „Þetta er aldeilis frábær borg,” sagði hann. „Ég var varla búinn að vera þar i klukkutíma þegar ég kynntist þessari indælis konu sem fór með mig heim til sín. Þegar við komum heim til hennar fór hún úr öllum fötunum. Ég held bara að ef ég hefði haldið vel á spilunum hefði ég fengið að kyssa hana.” ★ Þjónn við írann: Viltu rauðvín eða hvítvín? Irinn: Mér er alveg sama. Ég er lit- blindur. ★ lri nokkur var á ferð á ljóslausu reiðhjóli í myrkri þegar lögreglan stöðvaði hann. — Hvað heitir þú? spurði lögreglu- maðurinn. — John Smith. — Það heitirðu sko áreiðanlega ekki. Segðu réti til nafns.— Ja, sagði írinn, þú getur þá skritað William Shakespeare. Christina og Sergei — saman að nýju Undanfarið hafa þau Christina Onassis og fyrrverandi maður hennar, Sergei Kauzov, sést mikið saman, 17 mánuðum eftir að þau skildu. Myndir hafa verið teknar af þeim við villuna hennar í St. Moritz og einnig hafa þau sést saman i Paris. Sergei dvelur mikið fyrir utan landamæri Sovét- rikjanna vegna atvinnu sinnar og skrif- stofa hans er í London. Þau hittust 1977 og giftu sig ári seinna, en hin storma- sama sambúðentistaðeinsí 18mánuði. En nú er allt útlit fyrir að tveir af stærstu skipakonungum heims verði sameinaðir að nýju — og vonandi að það gangi betur en síðast. — Þetta líkar mér betur, sagði lögreglu- maðurinn.— Þú getur sko ekki gabbað mig með þessari John Smith sögu. ★ Yfirmaðurinn: Þú hefur þegar fengið frí til að vera við jarðarför tengdamóður þinnar, vegna mislinga barnanna og fermingar sonarins. Hvað er það núna? trinn: Ég er að fara að gifta mig, herra minn. MED DÍÖNU Á FRAMFÆRI Karl Bretaprins hefur hækkað laun sín um 50% vegna aukins framfærslukostnaðar eftir að hann gekk að eiga lafði Díönu Spencer. Nemur þessi tekjuaukning hans um tveimur milljónum króna á ári. Sýningunni á brúðargjöfunum er nú lokið en þær eru um eina og hálfa milljón kr. að andvirði, svo hjóna- kornin eru ekki aldeilis á flæðiskeri stödd. Brezka hirðin hefur þó sent út tilkynningu þess efnis að andvirði brúðareiafanna verði látið renna til góðgerðastarfsémi. ÚrDB 13. 10.: Það verður aldoilis fjör þegar brúðar- gjafirnar verða seldar. Hver skyldi nú kaupa málverkið eftir Eirík Smith? Kannski efnt verði til samskota til að verkið fari ekki aftur úr landi... Willy Breinholst LEIG JANDINN t KÚLUNNI Get ég fengið þessa íbúð? Halló! Loks er eitthvað að gerast! En ég er enn á báðum áttum. Kannski fæ ég alls ekki þessa íbúð. Ég kom einhvern veginn þjótandi, eins og mér væri skotið úr fallbyssu, og ég veit varla mitt rjúk- andi ráð. En ég hef hugboð um að ég sé á höttunum eftir íbúð til næstu niu mánaða svo . . . Hjálp! Allar hinar sáð- frumurnar eru að troðast! Þær ýta á mig og troða sér fram hjá! Svona, gáið að hvað þið gerið og lofið mér að komast.. #** Séð á vegg í London: 2 Vikan 47. tbl,

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.