Vikan - 19.11.1981, Blaðsíða 31
Breckenridge Hotel
Fyrsta flokks hótel alveg á ströndinni, meö stóru
sólarsvæði og sundlaug. Kvöldveröur og skemmtipró-
gramm á Breckenridge veldur engum vonbrigöum,
né heldur ljúffengur réttur á Brown Derby, áöur en
yngra fólkið fær sér snúning á dansstaðnum Gallery.
Fjölbreytt úrval kynnisferða um Flórída-skagann, s.s.
Disney World, Sea World, Kennedy Space Center,
Circus World og margt fleira.
FLÓRÍDA
MIAMI BEACH
FLÓRÍDA
ST. PETERSBURG
BEACH
St. Petersburg er stærsta borgin á vesturströnd
Flórídaskagans. Á kóralrifi úti fyrir ströndinni hefur
risið upp einn vinsælasti baðstaður Flórída, St. Pete
Beach meö fjölda nýtizku hótela og ibúða. Ströndin
er ein hin bezta, sem um getur. Við hvítan sandinn
gjálfra ylvolgar öldur Mexikóflóans.
St. Pete er kyrrlátur staður og kjörinn til hvíldar og
hressingar, en á næsta leiti eru margir áhugaverðir
staðir fyrir þá, sem vilja kynna sér náttúruundur
Flórída, gróðurfar, fugla- og dýralíf og ýmsa merkis-
staði. Hafgolan heldur niðri hitanum, sem oftast er
þægilegur árið um kring, og sólin skin flesta daga
ársins.
St. Pete hefur eitthvað viö allra hæfi, og Útsýn hefur
valið farþegum sinum þægilega, hentuga og
viðkunnanlega gististaði við vægu verði.
BROTTFÖR: Laugardaga (frjáls
dvalartími).
Verö frá kr. 7.720,- (Colonial Inn
2 vikur)
MIAMI BEACH
Miami Beach er baðstaður meö stórborgarsniði á
Atlantshafsströnd Flórída í alþjóðlegum stíl, þar sem
spönsk áhrif eru greinileg, enda vegna legu sinnar í
nánum tengslum við eyjar Karabíska hafsins og latn-
esku Ameríku. Sjálf Miami með 350 þús. íbúa er
miðstöð iðnaðar, samgangna og viðskipta sem minna
á Manhattan, en Miami Beach á langri eyju úti fyrir
ströndinni býður 13 milljón ferðamönnum á ári
þægindi og fjölbreytni í heimsklassa.
Fjölbreytt úrval góðra gististaða.
Brottför: 14. og 28. nóv., 19. des. — 3 vikur.
Verð frá kr. 8.298,- í nóv. ferðunum.
Meðalhiti í St. Petersburg — Celcius:
Nóv. Des. Jan. Feb. Mar. Apr.
21° 20° 20° 23° 27° 28°
Bílaleiga
Margir kjósa að hafa bíl til umráða til að kanna
ókunnar slóðir. Bílaleiga er ódýr eða allt frá ca $
14.00 á dag. En auk þess er völ á mörgum skemmti-
legum og fróðlegum kynnisferðum, sem auka ánægju
og skilja eftir ógleymanlegar minningar.
Flestum nýtast þó betur kynnisferðir undir
leiðsögn fararstjóra, sem ratar áhugaverðustu
leiðirnar og kann frá mörgu aö segja, sem ella færi
framhjá ókunnugum.
Kynnisferðir undir leiðsögn fararstjóra Útsýnar
verða því aðeins farnar að lágmarksþátttaka náist,
ella með wnlfwrlawli fararstjóra.
Colonial Gateway Inn
Tveggja hæða bygging með herbergjum og íbúöum,
sem umlykja stóran garð meö ágætri sundlaug og
sólbaðsaðstöðu næst ströndinni. Setustofa, bar og
veitingasalur meö sjálfsafgreiðslu, þar sem gestirnir
geta valið eins og lystin leyFir af hlaðboröi í
sænskum Smörgásbord-stíl, einnig útiveitingastaður
með smárétti við sundlaugina.