Vikan - 19.11.1981, Blaðsíða 26
Texti:Þórey Ljósm.: Ragnar Th
Blómahengi
Þeir sem ánægju hafa af blóma-
rækt eiga sjaldnast nóg af potta-
hlífum og hengjum. Úr því má
bæta á nokkrum kvöldum. Kaupið
gróft garn (hnýtingagarn, hamp,
snæri, seglgarn og svo framvegis)
og grófa heklunál, nr. 6 og yfir.
Komið ykkur síðan í þægilegar
stellingar í sófahorni og hefjist
handa. Þegar þið hafið gert nægi-
lega mörg blómahengi fyrir ykkur
sjálf má alltaf reyna að troða af-
urðunum upp á vini og ættingja.
Vafningshnútur
Flatur hnútur
Hnýtt hengi
Takiö sex bönd og hafið þau um
það bil tvisvar sinnum lengri en
hengið á að vera. Festið böndin
saman með vafningshnútum
(undir botninn). Skiptið síðan
þráðunum og hnýtið tvo og tvo
saman með venjulegum rembi-
hnút, skiptið síðan aftur og hnýtið
aðra tvo og tvo saman þannig að
úr verður eins konar net.
Þé er tekið til við að hnýta
böndin. Hnýtt er utan um böndin
tvö og tvö sem hanga upp úr
„netinu" meðflötum hnút, alltaf í
sömu átt, þannig að bandið snúi upp
á sig. Athugið að hafa böndin
sem hnýtt er með nægilega löng,
um tvisvar til þrisvar sinnum
lengri en hengið á að vera.
Trékúlur eru síðan þræddar upp á
miðböndin um miðja vegu og hnýtt
áfram. Þegar böndin eru orðin
hæfilega löng eru búnar til lykkjur
úr þráðunum og þeir festir kirfi-
lega með vafningshnút. Kúlur eru
síðan bundnar neðan í og hengiö er
tilbúið.
26 Vikan 47. tbl.