Vikan - 19.11.1981, Blaðsíða 40
TexthÞórey Ljósm.: Ragnar Th.
Lagrain og Jóhanna á Ijúfu augnabliki.
.. en jómfrú mun koma"
U m aldir hafði lifað í Frakklandi
svohljóðandi sögn: „Kona mun verða
Frakklandi að falli, en jómfrú mun koma
og frelsa Frakkland, hún mun koma úr
beykiskógi, klædd karlmannsfötum.”
Jómfrú þessi var Jóhanna frá Örk.
Nemendaleikhús L.t. frumsýndi þann
8. nóvember leikrit sem fjallar um þessa
merkiskonu, eina af örfáum sem fengið
hafa nafn sitt skráð á spjöld sögunnar.
Leikritið eins og það birtist á sviðinu i
Lindarbæ er byggt á leikgerð Berlinar
Ensemble á verki þýsku leikkonunnar
önnu Seghers. María Kristjánsdóttir
leikstjóri og nemendur fjórða bekkjar
L.l. umsömdu verkið og löguðu það að
leikhópnum sem aðeins telur átta
manns. Leikarar og leikstjóri kynntu sér
sögulegan bakgrunn Jóhönnu og ævi
hennar.
örfá atriði úr öðrum leikritum um
Jóhönnu hafa og verið fléttuð inn í
verkið.
Leikritið er saga Jóhönnu eins og hún
birtist nútímakonu i draumi eða öllu
heldur martröð. Nútímakonan er nafn-
laus en gengur í gegnum verkið með
risatuskubrúðu eða ófreskju og tekur
auk þess að sér ýmis „hlutverk” i
martröðinni.
Saga Jóhönnu af Örk segir af
viðskiptum hennar við ólíka karlmenn
og mismunandi karlmannavald. Hún er
ung stúlka heima i þorpinu sínu þegar
heilagur Mikjáll talar til hennar og
boðar henni að hún skuli frelsa þjóð sína
undan valdi Englendinga og fá Karl V
krýndan konung. Til þess að ná fram
fyrirætlun sinni brýst hún undan valdi
föður síns, yfirgefur mannsefni sitt og
kljáist við hermenn og embættismanna-
vald. Stærsti hluti verksins fjallar um
réttarhöldin yfir Jóhönnu í Rouen 1431
og byggist sá þáttur mjög á réttar-
skjölum úr máli hennar.
Leikmynd og búninga verksins
hannaði Guðrún Svava Svavarsdóttir en
nemendur sáu sjálfir um smíðar og
saumaskap undir hennar stjóm.
Tónlistina við verkið samdi Hjálmar H.
Ragnarsson og lýsingu annast David
Walters.
Leikendur eru fjórði bekkur L.í.
Þetta síðasta ár í skólanum sækja
nemendur ekki kennslustundir heldur
reka Nemendaleikhúsið og beita í því
sambandi þeirri þekkingu og þjálfun-
sem þeir hafa aflað sér á fyrri árum.
Leikritið um Jóhönnu frá Örk er
fyrsta verkefnið af þremur i vetur. Eins
og sjá má af myndum er þetta mjög
lífleg uppfærsla sem einkennist af mikilli
leikgleði og fjölhæfni efnilegra leikara.
40 Vikan 47. tbl.