Vikan


Vikan - 19.11.1981, Side 6

Vikan - 19.11.1981, Side 6
Sara og Charles laðast hvort að öðru og brjóta með því öll siða lögmál sam- félagsins. Árið 1981 — leikararnir Anna og Mike (Meryl Streop og Joremy Irons) lenda í dálitlu ástarœvintýri á meðan á kvikmyndun stendur. Ekkert alvarlegt og að kvikmyndun lokinni fara þau hvort sína leið. málum blandin. En hvers vegna skrökv- aði hun? Eftir mikla baráttu við sjálfan sig ákveður Charles að slíta trúlofuninni við Ernestínu og biðja Söru. En þá er hún horfin og enginn veit hvert hún hefur farið. Hann leitar hennar alls staðar án árangurs. Að lokum fer hann úr landi en aldrei getur hann gleymt henni. Eftir tveggja ára útivist fær hann upplýsingar um hvar hana sé að finna. Hann fer í snatri til Englands og finnur hana og ... Tvenns konar endalok Höfundur gefur lesendum kost á tvenns konar endalokum á sögunni. Annars vegar er góður endir, þar sem Charles og Sara ná saman á ný, en hins vegar endir þar sem Sara vill ekki eða getur ekki tekið honum og þau skilja. Til þess að skapa hliðstæðu í kvikmyndinni er saga Charles og Söru látin enda „vel”, en hins vegar skilja leikararnir Anna og Mike á fremur kuldalegan hátt að lokinni myndatöku. Mike er hrifinn af Önnu en hún vill ekkert með hann hafa. Hann á undir lokin erfitt með að gera greinarmun á sjálfum sér og persónunni Charles sem hann er að leika. í lokasen- unni sést hvar hún er að horfa á sjálfa sig i speglum Söru, en hún er aðeins að skoða sig og laga sig til, Sara er gleymd. Mike kemur inn í herbergið þegar hún er farin og hann heyrir hljóðið í bílnum hennar fyrir utan. Hann kallar til hennar „Sara” en það er orðið of seint. Sara er ekki lengur til. Meðan á upptöku stóð hafði Mike orðið ástfanginn af Önnu en hún aðeins litið á hann sem teppi til að hlýja sér i rúminu. Mike lifir sig inn í hlutverkið, Anna er köld og fagleg. t lok myndar- innar er Mike ekki viss hvort hann elskar Önnu eða Söru. Hann er sjálfur ekki svo ólíkur persónunni sem hann er að leika, sambland drengs og manns, ást- fanginn af hinni óútreiknanlegu (að þvi honum finnst) nútímakonu, sem hann getur ekki skilið og ekki náð til. Jákvæð gagnrýni Kvikmyndin hefur yfirleitt fengið mjög góða dóma gagnrýnenda og almennings. Sumir hafa samt fundið henni margt til foráttu og þá helst í samanburði við bókina. Allir eru hins vegar sammála um að Meryl Streep sé ákaflega mögnuð í hlutverki Söru/Önnu. Enginn hefði getað þetta nema hún. Sara á ekki að vera neitt sérlega fögur heldur ómótstæðilega aðlaðandi í bókstaflegri merkingu. Aðeins miklir leikhæfileikar duga til þess að túlka þessa undarlegu konu og flóknar tilfinn- ingar hennar. Meryl Streep er sjálf all- ánægð með frammistöðu sína en segir samt sem svo: „Þegar ég horfði á mynd- Augnaráð hinnar undarlogu Söru var í senn seiðmagnað og nístandi. Þar var enga uppgerð og ekkert brjálæði að sjá, aðeins óendanlega sorg. Meryl Streep er sögð eiga miklar líkur á óskarsverðlaun- um fyrir leik sinn í þessari mynd. Harold Pinter er höfundur handrits. Höfundur bókarinnar John Fowles. ina gat ég ekki annað en óskað þess að ég væri fallegri. Það koma þeir tímar að maður verður að hafa fegurð til að bera, sérstaklega I kvikmyndum. I bókmennt- um frá Viktoríutímanum voru ástríður bannfærðar tilfinningar og alltaf táknaðar með myrkri. Ég er svo ljós að með svart hár lít ég út eins og gömul norn svo ég ákvað að hafa brúnt hár í staðinn. Ég óskaði þess innilega að ég væri leikkona sem gæti bara hafa staðið þarna og sagt allt." En útlit Streep getur komið vel heim og saman við þá mynd sem lesendur hafa gert sér af henni. Hún lagði sig einnig fram um að fylgja bókinni og getur með stolti tekið undir orð Söru: „Já. ég er einstök manneskja.” Jeremy Irons er lítt þekktur breskur leikari. Hann kemur hlutverki sínu ágætlega til skila. Hann er myndarlegur og hefur að vissu marki til að bera valds- mannslegt yfirbragð aðalkarlleikarans, en er jafnframt drengjalegur og óörugg- ur. Vonlaus ást þroskar Charles og herðir og Irons er sannfærandi á öllum sviðum. Tíð skipti milli sögu þeirra Charles og Söru annars vegar og kvikmyndunar- innar hins vegar kunna að virðast trufl- andi á stundum. En á sama hátt og bókin fjallar jafnframt um eðli skáld- sögunnar veitir myndin innsýn í eðli kvikmyndarinnar eða öllu heldur leiklistarinnar. Leikur er ekki bara eftir- herma heldur list sem krefst tækni og tilfinninga. 1 ■ 6 Vikati 47. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.