Vikan


Vikan - 19.11.1981, Qupperneq 18

Vikan - 19.11.1981, Qupperneq 18
TextiiAnna Ljósm.: Ragnar Th. Viðtal Vikunnar „Sœki meira til anarkistanna!" „Smátt er fagurt'7 Vikuviðtal við Vilmund Gylfason, sem segir að jafnaðarmenn hafi mikið til anarkista að sækja Það er mikið verið að gera í húsinu hans Vilmundar. Hurð af hjörum, nýr furupanell virðist vera að ná yfirhöndinni í eldhúsinu, hringstigi upp á ioft, meiri fura, samt allt of mikið af notalegri óreiðu til að minna á kuldalegan stíl furu- væddra húsa í Norðurlandablöðunum, sem eru biblía margra jafnaídra Vilmundar í innanhússmálum. í skál á lágu borði liggur bók: Velferðarríki á villigötum, eftir Jónas Haralz. Hvernig leggst veturinn í Vilmund? „Ágætlega." Ekki meir um það. 7 ára dóttir Vilmundar, Guðrún, kemur hlaupandi upp stigann og er horfin að vörmu spori aftur. Mikið að gera hjá stelpu á þessum aldri. Úti sefur sonurinn sem fæddist í ágúst. „Nýr Vimmi?" Vilmundur hlær. Þvertekur ekki fyrir það. Seinna, þegar sá litli er kominn upp og fær pelann sinn, kemur til tals að fá mynd af þeim feðgunum saman. „Hans frelsi er að vera ekki tekinn og myndaður þegar hann getur ekki sagt neitt um það sjáifur. Ég kann svo lítið á hann. Það ríkir stjórn- leysi hér innan dyra líka." Menn skyldu ekki halda að Vilmundur noti orðið stjórnleysi í þeirri neikvæðu merkingu sem þekktust er. Frelsi væri nær lagi að kalla sumt af því sem hann tengir anarkí — stjórnleysi. Og í pólitík vill hann frekar tala um valddreifingu en stjórnleysisstefnu. En hér er stefnt að viðtali og því ber stjórnleysið aftur á góma. „Vikan, já. Ég var einu sinni á Vikunni hálft sumar. Mamma vann þar þegar Sigurður Benediktsson var með hana. Heita þeir Knold og Tot ennþá Binni og Pinni?” Það var móðir Vilmundar, Guðrún Vilmundardóttir, sem skírði þá kappa. Auðvitað er alltaf álitamál hvenær viðtal byrjar. Það hefði alveg eins getað byrjaö á þessum stað. Og leiðir hugann að því að Vilmundur hefur starfað við ýmsa fjölmiðla. Sextán ára var hann blaðamaður á Fálkanum, hann hefur unnið að þáttagerð bæði í útvarpi og sjónvarpi og seinasti kaflinn i blaða- mennsku Vilmundar er mörgum enn í fersku minni. Ragnar Th. ljósmyndari kemur tækjum sínum fyrir. „Segðu mér, Ragnar, á hvaða blaði ertu ekki?” segir Vilmundur við hann. „Ekki Alþýðu- blaðinu,” svarar Raggi. „Eins og ég,” segir Vilmundur hugsandi og brosir. Hann var þar sex sumur. „Fólk gerir stundum skrítnar kröfur til stjórnmálamanna" Það er spennandi að reyna að grufla í því hvers vegna Vilmundur er jafn- umtalaður stjórnmálamaður og raun ber vitni. Auðvitað tekur hann stórt upp í sig — en það gera fleiri. Hann varð þekktur sem ágengur spyrill í sjónvarpi fyrir nokkrum árum — en það urðu fleiri. Hann yfirgaf blað eftir erfiðar deilur — en það hafa fleiri gert. Hann á til stjórnmálamanna að telja. „Ég held að það fæli frá.” Sumir segja að hann sé bara hávaðamaður og hafi engar skoðanir. Aðrir að hann hafi allt of stífar skoðanir og geti ekkert látið undan. „Fólk gerir stundum mjög skritnar kröfur til stjórnmálamanna og segir: „Hann er maður sem stendur fast á skoðunum sínum,” og það er jákvætt, en svo segir það: „Hann er maður sem rekst illa í flokki eða lætur ekki vel að vinna með öðrum og það er neikvætt.” Það gerir sér ekki grein fyrir að það er að tala um sama hlutinn. Svo er verið að tala um mála- miðlunarmenn annars vegar og hins vegar menn sem ganga á bak orða sinna. Þetta er líka það sama.” Vilmundur telur sig til fyrri hópsins og það ekki að ástæðulausu. „Ég hef bara ekki geð I mér til að ganga flokksapparatinu á hönd. Ég hef beðið einn stóran ósigur i pólitik, það var við stjórnarmyndunina 1978. Kosningarnar höfðu verið óvenju málefnalegar en stjórnarmyndunin var ferleg svik við kjósendur. Þá hrundi spilaborgin. Mín lífsskoðun er sú að ekki eigi að fara í stjórn ef það er prinsipplaus stjórn. Ég dreg enga dul á það að mér blöskraði hvað sumir af okkar flokks- mönnum reyndust þá vera botnlaust prinsipplausir! Málamiðlun getur heppn- ast vel. Gott dæmi er viðreisnarstjórnin, þar sem tveir mjög ólíkir flokkar komust að málamiðlun. Fínt stjórnarmynstur, stílhreint prógram! En oftast er mála- miðlun ekkert nema svik og málamiðlunarmaður er maður sem gengur á bak orða sinna.” Vilmundur nefnir margt sem skýrt getur þessa stjórnarmyndun, fleira en að honum virðist sumir stjórnmálamenn laðast að valdinu. Eitt er þáttur fjöl- miðla. „Fólkið heimtaði stjórn og blöðin kyntu undir þessari kröfu. Dagblaðið hefur gert margt gott en sumarið 78 dró það upp mynd af þvi „hvers konar aumingjar þessir stjórnmálamenn væru, að geta ekki komið saman stjórn”. Þetta, meðal annars, rak pólitíkusana i eina verstu stjórn sem mynduð hefur verið. Staðan var feikilega erfið: Komið ykkur saman um stjórn! var krafan og undan henni var látið.” „Menn eins og ég, jafnaðarmenn af stjórnleysingjaskóla.. Hvað vill Vilmundur í pólitík? Er hann í réttum flokki? „Ég hef oft veriQ að velta því fyrir mér...” Langar hann að stofna nýjan flokk? „Stofnun smáflokka utan flokka- kerfisins hefur alltaf reynst mistök. Alþýðuflokkurinn gæti haft gífur- lega möguleika. Sú stórkostlega breyting sem hefur orðið síðan 1974, þegar flokkurinn var að þurrkast út og rót- tækar breytingar voru gerðar á stefnu- skrá hans, prófkjör tekin upp og fleira, vekur góðar vonir. En hann hefur inn- byggð veikleikamerki. Ennþá er mikil til- hneiging til miðstýringar í honum. Gamla jafnaðarstefnan byggðist á miðstýringu. Miðstýrt vald getur verið hinum almenna borgara jafnfjandsam- legt og auðvaldið og þess vegna er verið að reyna að auka valddreifingu í flokkn- um — og í þjóðfélaginu. Það er mikill misskilningur að marxisminn hafi verið númer eitt á 19. öldinni. Anarkisminn, valddreifingin, var lengstum miklu sterkari. Menn spyrja: Er þetta hægri eða vinstri? Það skiptir ekki nokkru máli. Frönsku kratarnir eru valddreifingar- menn i fínasta skilningi. Jafnaðarstefn- an á að sækja meira til anarkista en Marx. Anarkisminn hefur fengið hrika- lega útreið af þvi menn tengja hann þjóðhöföingjamorðum og núna seinast borgarskæruliðum sem eru hreinir terroristar. En hann er lykill að hugmyndafræði. Allt er þetta að finna í stefnuskrá Alþýðuflokksins, en hann er að upp- byggingu of lítill i sér. Flokkskerfið er sniðið fyrir lítinn flokk en ekki stóran. Alþýðuflokkurinn hefur valdið mér vonbrigðum ekki síður en ánægju. Ég væri varla í þessum flokki nema af þvi ég er óhóflegur bjartsýnismaður!” „Annaðhvort er maóur uppreisnarmaður..." „Ég leit á vítumar sem samþykktar voru á flokksþinginu sem „djók”. Svona gera menn í saumaklúbbi en ekki í stjórnmálaflokki. 18 Vikan 47. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.