Vikan - 29.04.1982, Side 3
Margt smátt
í þessari Viku
Kvikmyndahoimurinn I Lí UKV 1 V m d. m u
Efþeim heföi nú tekist það?
Hafið þið heyrt um það þegar verið
var að skipuleggja nýja útgáfu á kvik-
myndinni Á hverfanda hveli? Brigitte
Bardot átti að leika Scarlett O’Hara,
Elvis Presley Rhett Butler og John
Wayne átti að leika Sherman hers-
höfðingja og allan her hans! Mynda-
takan átti að fara fram i Sviss af skatta-
ástæðum og taliö var að enginn myndi
fást um þó hetjurnar tíndu alparósir i
stað baðmullar...
Nú á að fara að framleiða fyrstu science
— fiction kvikmyndina í raunsæisstíl í
Hollywood. Hún er um geimfara sem er
kominn hálfa leið til Mars þegar hann
verður fyrir lífsreynslu sem gerir
næstum út af við hann af örvinglan:
Hann man ekki hvort hann mundi eftir
að slökkva á eldavélinni!
Svo var það lélega kvikmyndin sem sló í
gegn. Sex ríki Bandaríkjanna notuðu
hana í stað dauðarefsingar.
Videoið hefur leikið kvikmyndahúsin
grátt. Eitt sinn hringdi maður nokkur í
kvikmyndahúsið og spurði hvenær
sýningin hæfist. „Hvenær geturðu verið
kominn?”spurði bíóstjórinn.
Sagt er að nýjasta spennumyndin verði
um Tarsan á raunverulegum hættu-
slóðum, í skemmtigarði New York.
Central Park, eftir myrkur.
Nú á að fara að gera mynd um Örkina
hans Nóa, og auðvitað verður notast við
flóðlýsingu.
Það er þetta vandamál með gömlu
Hollywood-myndirnar. í fyrsta hluta
myndarinnar er hann reiðubúinn en hún
ekki. í næsta hlutanum er hann reiðu-
búinn en hún ekki. í þriðja hlutanum
eru þau bæði reiðubúin en þá er líka
myndin búin.
17. tbl. 44. árg. 29. apríl 1982 — Verð kr. 33.
Skurðmeistarínn
Ásgeir Torfason
Á litlu verkstæði ofan við hljómplötudeild Faco á Laugavegi 89 starfar Ásgeir
nokkur Torfason. „Ég hef skorið frá því ég var strákur," segir hann, „en haft þetta að
aðalatvinnu i 11-12 ár.”
Hann var áður við búskap i Þingeyjarsýslu, eru Þingeyingar kannski hagari en
aðrir? „Ekki held ég það,” segir Ásgeir kiminn.
Ásgeir skar höfðaleturshringinn sem prýðir forsíðu Vikunnar að þessu sinni og það
er ekki i fyrsta sinn sem handverk hans sést á prenti. Askur sem hann hefur skorið
hefur verið þrykktur á íslenskt frímerki og verk hans hafa verið kynnt í sænskum
heimilisiðnaðarblöðum. „Ég hef skorið mikið af höfðaletri,” segir Ásgeir, „en aldrei
hring eins og þennan. Hringurinn er engin smásmíði, 75 cm i þvermál, og auk þess
skar hann fleira eftir teikningu Gunnlaugs SE Briem. „Ég þarf ekki að segja Ásgeiri
mikið fyrir verkum því hann skilur sjálfur svo vel hvað höfðaletur er,” segir Gunn-
laugur sem hefur skrifað doktorsritgerð um það letur. „Það er mikil lukka að kynnast
manni eins og Ásgeiri,” bætir hann við.
GREINAR OG VIÐTÖL:
6 Skrifað stendur — um sýninguna Lifandi letur.____________
14 Fórnarlömb þjóðflutninganna. Innflytjendur i Evrópu.
18 Draumar — Álfheiður Steinþórsdóttir skrifar um fjöl-
skyldumál.__________________________________________________
20 Vatnsorkuforðinn.
26 Handbragðið leynir sér ekki — grein um tískukónga í
París.
SÖGUR:
22 Laugarnar — smásaga.
36 Kórónan, 12. hluti framhaldssögunnar._______________
42 Athugið — hurðin stendur á sér! Willy Breinholst.___
ÝMISLEGT:______________________________________________
2 Margt smátt.________
10 Hugsið um heilsuna: Jógaæfingar — V. hluti._________
12 Sígild skólapeysa — handavinna._____________________
16 Pálsjurt.
28 Bomsadeisí og fleiri góðir dansar — samkvæmisdansar í 60
ár. _____________________________________________
30 Matchbox — kynning.
32 Matchbox — plakat.__________________________________
46 Hver var að tala um eldhúsgardínur?_________________
49 Avocado-ábætir i eldhúsinu.________________
51 Draumar. ___________________________________________
62 Pósturinn.
VIKAN. Utgofondi: Hilmir hf. Ritstjóri: Sigurður Hroiðar Hroiðarsson. Blaðamonn: Anna Ólafsdóttir
Björnsson, Borghildur Anna Jónsdóttir, Hrafnhildur Svoinsdóttir, Jón Ásgoir Sigurðsson, Þóroy
Einarsdóttir. Útlitstoiknari: Þorborgur Kristinsson. Ljósmyndari: Ragnar Th. Sigurðsson.
RITSTJÓRN í SÍÐUMÚLA 23, sími 27022. AUGLÝSINGAR: Goir R. Andorson, sími 85320.
AFGREIÐSLA OG DREIFING í Þvcrholti 11, sími 27022.Pósthólf 533. Vcrð í lausasölu 33,00 kr.
Áskriftarvcrð 110,00 kr. ó mánuði, 330,00 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungsloga cða 660,00 kr. fyrir
26 blöð hálfsársloga. Áskriftarvcrð grciðist fyrirfram, gjalddagar nóvcmbcr, fcbrúar, maí og ógúst.
Áskrift í Rcykjavík og Kópavogi grciðist mónaðarlcga.
Um mólefni neytenda er fjallað i samráði við Neytendasamtökin.
Forsíða
Forsiðum yndin er af Gunnlaugi SE
Bríem leturfræðingi, i náinni
snertingu við verk sin. Höfðaleturs-
hringinn skar skurðmeistarinn
Ásgeir Torfason eftir teikningu
Gunnlaugs. Ásgeir er kynntur hér á
siðunni. Hringurinn sýnir
höfðaletursstafróf með miklu
brugðningsverki og hallinn veldur því
að ekki er nokkurs staðar um
nákvæmai endurtekningu að ræða.
17. tbl. ViRan 3