Vikan - 29.04.1982, Page 45
Erlont
Glæpir sem aldrei voru framdir
Ómögulegt
morð
Roskinn kaupsýslumaður vildi gjarnan
að unga konan hans og litlu börnin
þeirra nytu góðs af því að hann hafði ára-
tugum saman borgaö iðgjald af líf-
tryggingunni sinni samviskusamlega. Sá
hængur var þó á að ef menn frömdu
sjálfsmorö féll bótarétturinn niður. Þess
vegna undirbjó hann eigið „morð”.
Hann lagði skrifstofuna sína þess vegna í
rúst, þar til ekki stóð steinn vfir steini,
dró skúffur út, dreifði blöðum út um allt.
Hann braut armbandsúrið sitt og tók af
sér dýran hring, tók alla penihgana úr
veskinu sínu og fleygði leðurtöskunni
sinni út í horn. Hann sló harkalega með
krepptum hnefa í vegginn, eins og hann
hefði hitt í hausinn á andstæðingi sínum.
Síðan skaut hann tveim kúlum i vegginn.
Þriðju kúlunni skaut hann í höfuðið á
sjálfum sér. Hann ætlaöi að láta lög-
regluna halda að þjófur hefði drepið
hann og hefði ætlað að láta það líta út
sem sjálfsmoró þar til hann hefði flúið af
hólmi. Likskoöarinn lét blekkjast i um
það bil fimm sekúndur en þá lýsti hann
því yfir að hann teldi þetta vera sjálfs-
morð. Lögreglumennirnir voru efins.
Var ekki hugsanlegt að morðingi hefði
beint hendi hans með byssunni aó höfði
hans og skotið hann?
„Reynið bara að ná byssunni úr
hendinni á honum,” sagði læknirinn.
*
Fingur ttjannsins voru vandlega
skorðaðir um skeftið. Þetta tilfelli er
þekkt sem ná-krampi (cadaver spasm) og
verður aðeins á dauðastundinni. Það er
öruggt merki um sjálfsmorð þó ekki sé
hægt að vera viss um að um morð sé að
ræða þegar krampinn finnst ekki.
Ofnhilla og ofnhtff
Finnst þér erfitt að nýta veggplássið
fyrir ofan ofninn? Ertu hræddur um að
börnin meiði sig á ofninum. Ef svo er þá
er hægt að leysa vandamálin eins og
sýnt er hér á myndinni. Hillan nýtist vel
undir blóm, myndir, bækur eða hvað
isem er. Grindin felur ofninn og setur
skemmtilegan svip á herbergið um leið.
Prjónar þú mikið?
Þegar prjónað er úr Ijósu garni
verður það fljótt skítugt. Ráð við
því er að setja hnotuna í poka og
loka opinu þannig að þráðurinn
komist auðveldlega í gegn.
&
Enginn möguleiki er á að falsa þennan
krampa af því fingur fórnarlambsins er
ekki hægt að þvinga saman. Lögreglan
kom fljótlega auga á peningahlið málsins
og á klósettinu fann hún þrjá sundurrifna
tíu dollara seðla og karlmannshring.
17. tbl. Vikan 45