Vikan - 29.04.1982, Page 46
Texti: Hrafnhildur og Þórey
Kirkjur hafa engan einkarétt á steindum gluggum og
nú hefur færst mjög í aukana að nota þá á heimilum.
Þar sem þeir eru töluvert dýrir má nýta sór nýja
tækni sem er að mála glerið. í tómstundabúðum fæst
sérstök málning sem er ætiuð til glermálunar og þar er
einnig hægt að fá upplýsingar um hvernig á að haga
sér við framkvæmdina.
Hér sjáum við lausn sem er
mjög vinsæl þessa dagana.
RúHugardínurnar hafa fengið
uppreisn æru og sóma sér
velhvar sem er í íbúðinni.
Hér eru rúllugardínurnar fyrir
eldhúsglugganum. Á kvöldin
er hægt að draga þær niður,
ef vill, eða hafa þær eins og
sýnt er á myndinni.
Hver
varað
taiaum
eldhúsgardínur?
Hinar hefðbundnu eldhúsgardínur koma oft í veg fyrir
að hægt sé að nýta eldhúsgluggann sem skyldi. í eld-
húsum, þar sem lítið pláss er umfram, er tilvalið að
nota hugmyndaflugið og nýta gluggakisturnar og jafn-
vel allan gluggann.
Ef glugginn er lítill er best að velja hluti í hillurnar
sem hleypa birtu í gegn, eins og til dæmis glös, tómar
skrautflöskur eða litla hluti. Og fyrir þá sem eru
blómaunnendur er tilvalið að raða fallegum blómum
sem þurfa mikla birtu í hillurnar
46 Vikan 17. tbl.