Vikan - 29.04.1982, Side 50
Eldhús Vikunnar
Óvenjulegt góðgæti
Avocado-ábætir
Fyrir átta manns:
8 eggjarauöur
3/4 lítrar mjólk
8 matarlímsblöð
4avocado-ávextir
salt, pipar
Tilreiösla: Þeytiö eggjarauðurnar I skál.
Sjóðið mjólkina og hellið yfir rauðurnar.
Látið allt í pottinn aftur og hitið við stöðuga
íhrærslu í fimm mínútur, án þess að sjóði —
annars eyðileggst allt. Matarlímsblöðin, sem
áður hafa legið í bleyti í köldu vatni, sett
saman við blönduna í pottinum og allt síðan
látið renna i gegnum sigti.
Afhýðið avocado-ávextina, helmingið þá og
fjarlægið kjarnana. Leggið þrjá helminga til
hliðar, þjappið hinum í mauk sem blanda skal
saman við þaðsem fyrir er í pottinum. Bragð-
bætið með salti og pipar. Hellið um það bil
helmingi kremsins í meðalstóra, ferkantaða
glerskál og látið hana standa í ísskáp í 15 til 20
mínútur.
Bútið helmingana þrjá niður að vild, dreifið
yfir kremið í skálinni og hellið síðan
afganginum af kreminu yfir. Látið skálina
standa 45 mínútur í viðbót í ísskápnum góða.
Leggið álhimnu yfir skálina til að avocado-
ábætirinn upplitist ekki.
Ábætissneiðarnar má bera fram ásamt
tómatmauki: Afhýðið fjóra tómata, stappið
þá í mauk, saltið og piprið. Hrærið saman við
matskeiðaf ediki og þrem af ólífuolíu.
Súkkulaðibúðingur
5 matarlímsblöð
6 eggjarauður
125 grömm sykur
3 rúmar matskeiðar kakó
1/2 vanillustöng
1/8 lítri m jólk
3/8 lítrar þeytirjómi
1 matskeið muldar pístatsjóhnetur
1 appelsína
15 maraschinókirsuber
Tilreiðsla: Bleytið matarlímið upp og strjúkið
svo vatnið af því. Hrærið saman eggja-
rauðum, sykri, kakói og vanillu. Látiðsuðuna
koma upp á mjólkinni og 1/8 lítra af
rjómanum|og blandið saman við eggjarauðu-
kremið. Setjið skálina í heitt vatn og hrærið
áfram í 5 mínútur. Blandið matarlíminu
saman við og látið kólna. Blandið mestum
hluta stífþeytts rjómans saman við allt áður
en þaðstirönar, geymiðsmávegis rjóma til að
skreyta. Látið standa tvo tíma í kæli. Hvolfið
síðan súkkulaðiþúðingnum úr forminu.
Skreytið með rjóma, kirsuberjum, hálfum
appelsínusneiöum og hnetumulningi. Fyrir þá
sem þola má bera fram eggjalíkjör sem sósu.
Hindberjasúrmjólk
1/2 lítri af súrmjólk
12 matarlímsblöð
150grömm sykur eða annað sætt
1/2 lítri stöppuð hindber
rauður matarlitur
Tilreiðsla: Leysiðupp matarlímiðsamkvæmt
kúnstarinnar reglum. Blandið saman súr-
mjólk og hindberjum, bætið út í matarlíminu
og bragðbætið allt með sykrinum. Skiptið
blöndunni í fjórar skálar eða glös og látið
stirðna. Berið fram með rjóma, mjólk eða
vanilluís.
Marenskökur
með
súkkulaðiís
og rjóma
3eggjahvítur
200 grömm sykur
1 matskeiðedik
1 pakki súkkulaðiís (1/2 lítri)
1 teskeið vanillusykur (eða samsvarandi)
4 ananasskífur eða aðrir ávextir, til dæmis
kiwi, ferskjur eða vínber)
Tilreiðsla: Stífþeytið eggjahvíturnar. Sáldrið
sykrinum saman við og þeytið áfram. Hrærið
loks ediki saman við. Setjið blönduna í
sprautupoka með tenntum stút. Sprautið litla
ferninga á smjörpappír sem lagður er yfir
bökunarplötu (sjá mynd). Sprautið smátoppa
umhverfis röndina. Látiö bakast í heitum ofni
við lOOgráður, um þaðbil eina klukkustund.
Losið marenskökurnar mjög varlega,
rennið kökuspaða undir þær og látið þær
kólna.
Búið til ískúlur með þar til gerðu áhaldi
(eða skerið ísinn í ferninga með heitum hníf)
og setjið á kökurnar. Skreytið með stíf-
þeyttum rjóma, sykri og ávöxtum.
50 Vlkan 17. tbl.