Vikan - 04.11.1982, Page 3
maiAt
Fortíö leikkonunnar Faye Dunna-
way hefur veriö ákaflega stormasöm.
Hún var lengi meö ítalska leikaranum
Marcello Mastroani en sagöi honum
upp þegar ljóst var aö hann vildi ekki
eignast barn meö henni. Þá var hún
um tveggja ára skeið gift söngvara J.
Geils Band, Peter Wolf. Stóra ástin í
lífi hennar og barnsfaöir hennar er
ljósmyndarinn Terry O’Neill frá
London. Faye er nú allt önnur mann-
eskja, hress og lífsglöð, og þaö er allt
Terry aö þakka. „Ef ég heföi ekki hitt
Terry heföi ég fariö sömu dapurlegu
leiöina og Joan Crawford sem ég lék í
Mommie Dearest. Þá kom þessi
dásamlegi Englendingur til sögunnar
og kom mér til aö hlæja og kenndi mér
aölifa lífinu.”
Fornbflaeigendur, athugið
Þessa glæsilegu lúxuskerru geta brúðhjón
fengið leigða og keyrt frá kirkjunni með stór-
brotnum hætti. Því miður er þessi þjónusta ekki
veitt hér á íslandi heldur heitir fyrirtækið
IMostalgia og er staðsett í London. Fyrirtækið
hefur á sínum vegum nokkra bíla frá ýmsum
tímum og fylgir að sjá/fsögðu bílstjóri í viðeigandi
einkennisbúningi hverjum bíl. Er þetta ekki góð
hugmynd fyrir þá eigendur fornbíla sem ekkert
hafa á móti þvi að keyra glæsikerrur sínar um
götur borgarinnar?
Verðlaunahaf inn:
Þennan brandara sendi okkur Hrefna Aradóttir,
Þiljuvöllum 28, pósthólf 209, 740 Neskaupstað. Fyrir hann
fær hún sendar fjórar Vikur:
Tvö systkini voru að tala saman. Stelpan var 3ja ára og
strákurinn 5 ára og strákurinn sagði: „Getur þú sagt mér
af hverju bílarnir keyra svona hægt þegar konur eru
dánar og það er búið að láta þær í kistu og verið að fara
með þær á jarðarför? ”
„Já, ég veit þaö,” sagði systirin. „Það er til þess að þær
lifni ekki við!”
Frægðarsólin skín
Vinirnir í Charots of Fire voru enskir
séntilmenn í húö og hár. Og þar sem
kvikmyndin fékk óskarsverðlaun
fyrir að vera besta mynd ársins þá
þurfa þeir víst ekki aö kvíöa aðgerða-
leysinu í bráö. Nigel Havers lék
auövaldssoninn, þann sem keppti í
grindahlaupinu. Hann fékk mjög góöa
dóma fyrir leik sinn í kvikmyndinni:
„Hrífandi myndarlegur og þar aö auki
sérlega góöur leikari,” voru dómarnir
í ensku pressunni. Ef einhvern langar
til aö kynna sér leiklistarhæfileika
þessa unga manns nánar er þeim
hinum sama bent á aö hann leikur um
þessar mundir í The National Theater í
London, í nýrri uppfærslu á „The
Importance Of Being Earnest” eftir
OscarWilde.
*
44* tbl. Vikan 3