Vikan - 04.11.1982, Blaðsíða 27
Crass: Christ — the Album
Útg. Crass Records
Kristur — hljómplatan er fjórða
LP-plata Crass. Þetta eru tvær
plötur í hulstri sem minnir á hulst-
ur utan um stór söfn af klassík. I
hulstrinu er stór veggmynd þar
sem má m.a. sjá Thatcher,
Reagan og Brésnef í miður virðu-
legum stellingum. Þar er einnig
bæklingur með tveimur löngum
ritgerðum um anarkisma, hippa,
pönkara og önnur þjóðfélagsmál.
Þar eru líka textarnir.
Önnur platan er stúdíóplata,
tekin upp í eigin stúdíói Crass,
Southern Studios. Inn á milli lag-
anna er skotið lesnum textum úr
fjölmiðlum, m.a. heyrist í Thatch-
er. Hin platan er hljómleikaplata,
tekin upp að mestu á 4 rása segul-
band.
Þessi gripur er bein árás á
meðvitund þess sem hlustar á eða
les. Neytandinn er settur upp að
vegg með ógnvekjandi staöreynd-
um, staðhæfingum og frásögnum,
allt í mjöganarkískumanda. Enda
heitir bæklingurinn sem fylgir
plötunni „A series of shock
slogans and mindless token tant-
rums”, sem er illþýðanlegt, en t.d.
eitthvaö í þessa áttina: „Safn
slagorða og hugsunarlausra
fullyrðinga”. Lögin fjalla um
kjarnafjölskylduna, sjónvarpið,
kvennakúgun, styrjaldir, oi-oi,
eða Skinheadshreyfinguna í Bret-
landi og margt fleira. Skinheads
eöa skallarnir í Englandi fá slæma
útreiö. Crass gagnrýnir þá fyrir
hugsunarlaust ofbeldi. I því lagi
eru einnig gagnrýndir fyrrverandi
pönkarar og sagt aö pönkið verði
alltaf tónlist alþýöunnar, sama
hvað hver segir. Hugmyndir
Crass um áðurnefnd efni eru mjög
róttækar og alls ekki hugsunar-
laus slagorð, og líklegt er að þær
hristi mjög upp í þeim sem lesa
textana. Crass eru örugglega
þekktustu og einbeittustu anar-
kistar sem nú eru uppi og aðeins
þess vegna er platan mjög áhuga-
verð. Aö manni læðist sá grunur
aö hefðu þeir verið uppi fyrir svo
sem 30—40 árum hefðu þeir gefið
út bækur eða samið leikrit og að
þeir velji pönkið aðeins vegna
þess aö þannig telji þeir sig ná til
flestra.
Anarkismi CRASS vegur bæði
að sósíalistum og hægri mönnum.
Fyrir þeim er allt yfirvald slæmt.
Þeir eru hins vegar á móti ofbeldi
og leggja sig í líma við að sýna
fram á aö ofbeldislausar baráttu-
aðferðir séu þær bestu. Einnig
telja þeir stéttaskil óþörf og
skaðleg og vilja ekki greina á milli
yfirstéttar og lágstéttar í áróðri
sínum. Þarna skilur mjög á milli
þeirra og marxista sem telja of-
beldi illa nauðsyn í stéttabarátt-
unni og aö þjóðfélagiö skiptist í
tvær stéttir sem engan veginn geti
lifað saman til frambúðar. En
Crass telja sem sagt að fólk þurfi
aðeins að meötaka boðskap
anarkismans um stjórnleysi og
frið og veröa anarkistar en þar
skipti stéttaskil engu máli. Þetta
kann að virðast undarlegt í ljósi
þeirrar miklu áherslu sem CRASS
leggja á baráttu og andstöðu gegn
yfirvöldum af öllu tagi.
Ég hef fjallað svona mikið um
pólitíkina vegna þess að hún er
mikilvægasta framlag CRASS.
Tónlistin er líkt og undirleikur
við pólitíkina. Hún er hörð og gróf
pönktónlist. Líklega búast margir
við að á CRASS sé því sem næst
ómögulegt að hlusta en því fer
fjarri. Tónlistin á Christ — the
Album er töluvert áhugaverð. Þaö
mundi þó ekki skaða neinn ef
frumleiki tónlistarinnar nálgaðist
meir frumleika í pólitískri
hugsun. Til frekari ábendingar
má geta þess aö hægt er aö hlusta
á a.m.k. aðra plötuhliðina í lotu án
þess að þreytast.
I heild má segja aö CRASS sé
einstakt fyrirbrigði í poppinu.
Þeir eru fyrst og fremst anarkist-
ar og svo tónlistarmenn. Einhver
myndi segja að það kæmi niður á
tónlistinni en líklega er CRASS
ekki aö hugsa um 1. sætið á
vinsældalistanum.
Í3
Halogen aukaljós
Sætaáklæði i úrvali
Teppi í bíla i m2
Aukamælar í bíla
Mælitæki t. bila
Hleðslutæki
5Omm kerrulásar og kúlur
Lyklahringir og gearhnúðar
Áttavitar og hitamælar
Álímdir listar og borðar
Krómhringir og hjólkoppar
Kveikjuhlutir
Rúllu-öryggisbelti
Bilstólar (sérpantaðir)
Upphækkunarhringir og klossar i flesta bíla
Leöursportstýri i flestar gerðir lólksbila og jeppa.
Skiðagrindur
Flauturi úrvali
Ökuhanskar
A urhlífar úr gúmmí
Bílaryksugur 12V
o.fl. o.fl.
Síöumúla 17
Sími 37140
Pósthólf 5274 125Reykjavík
Hjólatjakkar 1.5 og 2 tonn
44. tbl. Vikan *7