Vikan - 04.11.1982, Blaðsíða 51
Draumar
Karlmannshringur
með rauðum steini
Kæri draumráðandi.
Mig langar að biðja þig
um að ráða fyrir mig tvo
drauma. Mig dreymdi að
ég fyndi karlmannshring
með stórum rauðum steini
á gólfinu og þegar ég
horfði á hann var eins og
það vceri búið að stíga ofan
á hann og hann væri
ónýtur. En þegar ég tók
hann upp og setti hann á
fingur mér var hann heill.
Hinn drauminn dreymdi
mig eftir nokkra mánuði.
Mig dreymdi að ég væri
með giftingarhring sem
amma mín átti en mér
fannst að það væri búið að
stela honum frá mér. Það
var maður sem hét X sem
fann hann og lét mig hafa
hann. Það var búið að saga
í hann á tveim stöðum en
þó ekki sundur. Svo kyssti
ég X fyrir.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna,
3330—0677.
Ekki er hægt að ráða af
draumunum hvort þú ert
gift eða ógift en
draumarnir benda fremur
til þess síðarnefnda. Vera
má að draumarnir séu
ómur úr fortíðinni ef þú ert
gift. Þessir draumar benda
báðir til giftingar í náinni
framtíð, og þá líklegast
þinnar eigin. Fyrri draum-
inn má ráða þannig að
eiginmannsefni hafi
eitthvað misstigið sig eða
eigi við einhverja erfiðleika
að stríða sem hafi komið
niður á lífi hans, fremur til
hins verra. Hins vegar er í
draumnum skýrt að hjóna-
band (það virðist vera með
þér) lagfæri misfellurnar og
gefi góð fyrirheit.
Seinni draumurinn er
nokkuð á sömu leið. I hon-
um má þó sjá teikn um
aðskilnað og endurfundi,
fremur en eiginlegan
skilnað, og saman gangi á
ný (eða jafnvel nýtt
samband). Tvö áföll (sem
einnig tengjast einhverju
ólöglegu eða því sem þjóð-
félagið telur rangt eða
slæmt) koma fram en ná
ekki að skaða mikið.
Kossinn bendir ekki til að
maðurinn í draumnum sé
sá sem hugur*þinn stendur
(eða stóð) til. Hann er þó
ekki úrslitatáknið. Kossinn
er þér hins vegar fyrir ein-
hverju sem heppnast vel.
Hvítur hringur
á lygnu vatni
Kæri draumráðandi.
Mig langar að biðja þig
að ráða fyrir mig drauma
sem mig dreymdi fyrir
skömmu: Mér fannst ég
vera úti skammt frá heimili
mínu. Það var fallegt
veður, sól og logn. Eg stóð
við rauðan bíl og fyrir aftan
mig var kona sem ég þekkti
ekki.
Svo sé ég að hundur
kemur til mín. Hann var
grár að lit og loðinn. Hann
gekk hægt og er hann kom
nær var hann rakur (ekki
votur) og við þetta vaknaði
ég. Hinn draumurinn var
mjög skýr. Eg var við
sjóinn. Það var mjög gott
veður, sjórinn sléttur og
sðl. En svo sé ég allt í einu
að það myndast hvítur
hringur á sjónum. Mér varð
starsýnt á hringinn. Fyrir-
fram þökk fyrir ráðn-
inguna.
Ein berdreymin.
Fyrri draumurinn bendir
til friðsæls og tíðindalítils
lífs sem er fullt að gleði,
auðsæld og hamingju. Á
því verða litlar breytingar
(eftir þessum draumi að
dæma), nema hvað
veðráttan (frost, harðindi)
í vetur gæti sett mark
sitt á tilveruna að einhverju
leyti. Þú mátt líka eiga von
á gestakomu sem verður
þér til mikillar gleði. í
seinni draumnum eru
friðsældar- og hamingju-
táknin enn mjög sterk, en í
þeim draumi kemur fram
eitthvað óvænt og óvenju-
legt sem breytir lífs-
mynstrinu. Sennilega er
hér um eitthvað mjög
jákvætt að ræða, en það
veldur truflun og röskun á
þeirri kyrrð sem er í til-
verunni.
Skop
Þegar við sáum þessa mynd fyrst sátum við imyrku kvikmyndahúsi og hó/d-
umst i hendur.
44. tbl. Vikan 51