Vikan - 04.11.1982, Blaðsíða 37
fyrsta verkefnið á starfsárinu.
Texti: Jón Baldvin
Ljósm.: Ragnar Th.
Freygerður Magnúsdóttir sér um
búningana.
Viðar Garðarsson Ijósa- og hljóð-
maður leikhússins.
Fyrsta stórverkefniö var Fjalla-
Eyvindur eftir Jóhann Sigorjóns-
son, frumsýnt 21. janúar 1922.
Leikfélag Akureyrar hefur á 65
ára ferli sínum sett á sviö 186
leikrit, þar af er þriðjungur
íslensk verk. Auk þessa hefur
Leikfélagið staðið fyrir leikritum í
útvarpi og sjónvarpi. Það er eng-
an bilbug að finna á leikhúsfólki á
Akureyri og nú hefur enn veriö
lagt á brattann meö sýningu
Atómstöðvarinnar eftir Halldór
Laxness í leikgerð Bríetar
Héðinsdóttur sem jafnframt er
leikstjóri. Sigurjón Jóhannsson
hannar leikmynd og búninga og
Ingvar Björnsson lýsinguna.
Þrír leikarar, sem útskrifuðust
úr Leiklistarskólanum í vor, hafa
verið ráðnir til Leikfélagsins.
Ragnheiður Tryggvadóttir er
fastráðin en Kjartan Bjargmunds-
son og Arnór Benónýsson ráðnir í
Atómstöðina. Einnig hefur verið
fastráðinn ljósa- og hljóðmaður
fyrir húsið. Gamla leikhúsið hefur
svipaðan tæknibúnað og Alþýðu-
leikhúsið og Iðnó en stendur tals-
vert að baki Þjóðleikhúsinu og því
sem þekkist í öðrum löndum.
Ljósaborðið er til dæmis 20 ára og
handstýrt en í fullkomnari
leikhúsum hafa tölvur tekið að
miklu leyti við stjóm þeirra.
Síðast en ekki síst veröur aö nefna
að Leikfélagið hefur ráðiö nýjan
leikhússtjóra. Hún heitir Signý
Pálsdóttir og nam leikhúsfræði í
Kaupmannahöfn á árunum 1971—
1975. Auk þess aö stjórna
leikhúsinu er hún höfundur barna-
leikritsins, Siggi var útisemverður
á fjölum Samkomuhússins í vetur.
Leikritið er mjög dularfullt því
það er byggt á því sem Signý hefur
getað komist að um refa-
rannsóknir sem eru í gangi. Inn í
fléttast tískubransinn, hjálp í
viðlögum, stjörnufræði og
fleira. i W
44. tbl. Vifcan 37