Vikan - 04.11.1982, Blaðsíða 41
i Stúdió Nema eru 16 rása upptöku-
taeki.
þarna var tekin upp er Bergmál
Bergþóru Árnadóttur. Nýútkomin
plata Guðmundar Ingólfssonar
píanóleikara var hljóðrituö í
Nema í sumar sem leið. Af öðrum
verkefnum má nefna plötur meö
Guömundi Rúnari Lúövíkssyni,
Samkór Selfoss og Karlakór
Selfoss og sjónvarpsþátl með
Kaktus. Því til viðbótar hafa verið
gerðar upptökur á kassettur í
hljóðverinu, til einkanota fyrir
tónlistarmenn, bæði einstaklinga
og kóra. Það hefur því verið alveg
nóg að gera frá því aö tekið var til
starfa og ekki þurfa eigendurnir
að kvíða verkefnaskorti.
Það hefur komið í ljós að þörf
var fyrir starfsemi af þessu tagi
þarna um slóðir. Gróska er mikil í
tónlistarlífinu og dýrt að sækja
alla þjónustu á höfuðborgar-
svæöið.
Það er algengt erlendis að tón-
listarmenn leiti burt frá skarkala
borganna til þess að hljóðrita
plötur í ró og næði. Þeir borgar-
búar sem unnið hafa í Nema
kunna því mjög vel. Guðmundur
Ingólfsson píanóleikari vann við
upptökur í stúdíóinu síöastliðið
sumar. Hann sagöi að hljóðritun á
plötu væri mjög krefjandi starf.
Guðmundur Ingólfsson pianó-
leikari vann við upptökur i Glóru
siðastliðið sumar.
Öll aðstaða í Glóru væri til fyrir-
myndar. Það væri afslappandi og
afstressandi að vinna þarna, í einu
orði stórkostlegt. Það væri
ómetanlegt að geta farið upp og
lagt sig eða hvílt sig þegar þreyt-
an sækti á, eða þá gengið út á tún
eða út í fjós. Og þegar mann liöi
vel væri gott að vinna.
Gísli Helgason, sem unnið hefur
við upptökustjórn í stúdíóinu, tók í
sama streng og Guðmundur og lét
mjög vel af því að vinna þarna.
I Stúdíó Nema hefur náðst mjög
gott „acoustic sound” en með því
er átt við hljóm sem er lítt eða
ekki rafmagnaður. Hljóðvers-
bændur segjast fremur hafa kosiö
þá leiö að einfalda tæknibúnaðinn
þannig að hljómarnir fari sem
beinasta leið. Þeir hafa lagt mest
upp úr því að ná sem líkast raun-
hljómi og karakternum í upptök-
um. Með effektum má alltaf
dempa og drepa hljóminn. Olafur,
Smári og Ari Páll taka ýmist upp
sjálfir eöa fólk leggur sjálft til
upptökumenn.
Olafur, Smári og Ari Páll hafa
eytt miklum tíma í uppbygging-
una en eru mjög ánægðir með
útkomuna og sjá ekki ástæðu til
annars en að vera bjartsýnir.
44. tbl. Vikan 41