Vikan


Vikan - 04.11.1982, Qupperneq 46

Vikan - 04.11.1982, Qupperneq 46
„Fylgjast meö íbúð. Vera vissir að þúferð ekki.” „Og seinna? Þegar það er orðiö dimmt?” „Viö höfum engar skipanir. Ekki enn.” Duncan horfði niöur á andlitiö. Það var afmyndað af kvölum en hann sá engan vott um ótta. Hann hafði aldrei á ævinni beitt svona ofbeldi. Honum þótti þaö viðbjóðs- legt og hann vissi að hann myndi gjalda þess síöar. I svipinn þurfti hann ekki annað en að hugsa um Tammy til aö hrinda tilhugsuninni frá sér. „Það blæddi úr henni, skepnan þín. Hvað kom fyrir hana?” „Ég veit ekki. Ég var þar ekki.” Varirnar voru brettar af kvölum og tennurnar sáust greinilega. Góöar, sterkar hvítar tennur. Duncan sagði: „Ég skal berja djöfuls tennumar niður í lygaháls- inn á þér ef ég fæ ekki svar.” Fyrstu óttamerkin sáust. Það fór ekki framhjá Duncan aö djúp augun urðu ósjálfrátt flöktandi. Varirnar luktust líka eins og þaö gæti orðiö honum til bjargar. „Ekki. Ég veit ekki. Bara að horfa. Ekkimeira.” Duncan hafði enga hugmynd um hvað hann átti nú að gera. Því lengur sem hann spyrði því erfið- ara yröi fyrir hann að meiða manninn aftur. Sjálfsvörn var eitt. en þessa stundina var henni ekki lengur til að dreifa. Hann hafði losað sig, en þaö var allt og sumt. Hvað notuðu þeir marga menn? Oghannvissisvarið: jafn- marga og þurfti. „Réttu mér byss- una þína. Fingurna og þumalinn á hlaupið.” Um leið og Duncan hélt að ökumaöurinn væri að færa tak- ið á skeftiö sló hann hann í höfuð- ið. Honum gast hvorki að hljóðinu eða sárinu. Maöurinn féll fram og Duncan sat bara kyrr, lostið sagði tilsín. Þegar hann horfði þarna á mennina tvo varð hann allt í einu hræddur við það sem hann hafði ef til vill gert þeim. Lætin í drengj- um að leik bárust til hans. Hann heyrði bolta skella á bíl og konu hrópa. Þegar hann leit í kringum sig sá hann strákana skjótast burt og konuna sem sneri baki í hann steyta hnefa á eftir þeim. Maður- inn sem þvoði bílinn var hvergi sjáanlegur; sápufroða lak niður málminn. Svo birtist hann aftur með fötu af hreinu vatni. Hvers- dagsleiki. Dagsbirta. Duncan staröi aftur á mannslíkamana og svo á húsin í kringum sig. Hann fór út, opnaði ökumanns- megin og leitaði að sætishand- fanginu, ýtti bakinu niður og tókst með erfiðismunum að troða öku- manninum í aftursætið. Hann fór eins að með farþegann eftir aö hafa tekið af honum byssuna. Hann setti sætin upp aftur, settist inn og ók af stað. Byssurnar tvær í mittinu undir- strikuöu hve aðstaða hans var fáránleg. Hann hafði enga hugmynd um hvað mennirnir yrðu lengi meðvitundarlausir. Hvort tveggja var honum áhyggjuefni; hann vildi ekki að þeir stykkju á hann, heldur ekki að þeir dæju í höndunum á honum. Hann ók noröur, í sveitina fyrir utan borgina. Hann var að leita að eyðilegum stað og þurfti að fara tuttugu mílur eöa svo til að finna hann og það þýddi að hann varð að fara út af þjóðvegum og leita að fáfarnari leiðum. Hann fann stað. Hátt limgerði gnæfði beggja vegna viö mjóan veg. Það voru skurðir báðum megin og óslegið grasið faldi þá. Hann dró mennina út úr bílnum og velti þeim niður. Brotinn úlnliöurinn virtist illa leikinn, bólginn og afmyndaður, blár og marinn. Blóðið var storknaö í höfuðsárunum en kúl- urnar voru sprungnar og ljótar. Mennirnir önduðu; þó púlsarnir væru hægir voru þeir sterkir. Ökuferðin til borgarinnar var Boddíhlutir, bretti og fí. Fiat Ritmo Fiat 127-8-31-32126P Mazda 323 VW 1300-1303 Simca 1307 Simca 1100 Mercedes Benz 200 — 280 Audi 80 Hunter Autobianchi A 112 Ford Escort MK 1 — 11 Ford Fiesta Mini Opel Reckord DE Honda Civic Honda Accord Toyota Corolla Volvo 142-144 VW Jetta BMW316 VW Golf VW Derby Renault 4—5 Lada 1200 Datsun 1200—120Y 100 A pickup 75-79 Passat Bretti á fleiri tegundir væntanleg í haust. Honda Accord Renault 5 BMW316 Fiat 127 Ford Escort MK 11 Mazda 323 Mini \ Toyota Corolla fÉBllÉÉÍÍIÍÍllP^ Lada 1200-1600 Ford Escort MK 1 Ford Fiesta M. Benz 300 D Opel \ Volvo Givarahlutir Ármúla 24. Reykjavík. Sími 36510 46 Vikan 44. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.