Vikan - 06.01.1983, Side 17
Hin
fjölhæfa
Judi
Dench
Hvaöan kannast maður viö
þetta andlit? I hvaða myndum
hefur hún leikið, í hvaöa sjón-
varpsþáttum? Alveg rétt, í sjón-
varpinu á mánudagskvöldum í
Tilhugalífi (A Fine Romance).
Konan er Judi Dench og er enginn
nýgræöingur í leiklistinni þótt
Tilhugalíf sé reyndar fyrsti sjón-
varpsmyndaflokkurinn sem hún
hefur leikið í. Túlkun hennar á
Láru „sem ekki gekk út”
(samkvæmt skilgreiningu sjón-
varpsins) færöi þessari virtu og
margreyndu leikkonu skyndilega
landsfrægö í Bretlandi. I þátt-
unum lék hún á móti eiginmanni
sínum, Michael Williams (Mike
„sem gekk illa að ná sér í konu”).
Judi Dench segist hafa haft mjög
gaman af að leika í þessum
þáttum. Hún var í Thailandi á
meðan þættirnir voru sýndir í
Bretlandi og þegar hún kom aftur
varö hún mjög undrandi á þessari
skyndilegu frægð. „Maður þrælar
sér út í 4 tíma á hverju kvöldi í 24
ár og þegar maður kemur fram í
35 mínútur í sjónvarpinu fer fólk
að heilsa manni á götu. Sumir
hafa meira að segja spurt mig
hvort Tilhugalíf sé það fyrsta sem
ég hef leikiðí.”
Þættirnir hafa verið feiki-
vinsælir víða um heim og fólk
beðið um meira. Því var ákveðið
að gera framhaldsflokk um skötu-
hjúin Láru og Mike. Judi Dench er
ekki síst ánægð með vinsældir
sínar í Tilhugalífi vegna þess að
þar með fær hún viðurkenningu
sem gamanleikkona.
Judi Dench á að baki langan
feril í Shakespeareverkum og
ýmsum öðrum sígildum leik-
ritum. „En fólk viröist haldið
þeirri meinloku að ef maöur leikur
mikið í sígildum leikritum sé
manni ómögulegt að leika í
gamanleik. Staðreyndin er sú að
ef maður getur komið fólki til að
hlæja að gamanleikjum Shake-
speares þá er maður örugglega
meðhæfileika.”
Fjölhæfni Judi Dench er
einstök. A afrekaskrá hennar má
finna jafnólík hlutverk og Ofelíu í
Hamlet, Anya í Kirsuberjagarð-
inum eftir Tjekof, Sally Bowls í
Kabarett og aðeins slitin sin kom í
veg fyrir að hún léki, syngi og
dansaði hlutverk Grísabellu í
söngleiknum Cats.
Judi Dench er læknisdótt-
ir frá New York. Eftir að hafa
margskipt um skoðun á því hvað
hún ætlaöi að verða endaði hún í
leiklistarskóla og komst að námi
loknu strax að hjá Old Vic leik-
félaginu. Fyrsta hlutverk hennar
var Ofelía og var hún hjá Old Vic í
fjögur ár. Eftir það var henni
boðið til Royal Shakespeare. Hlut-
verk hennar í leikritum Shake-
speares undir leikstjórn hins
fræga Trevor Nunn eru orðin
mýmörg. Einhverjir muna ef til
vill eftir henni sem Lady Macbeth
í hinni frábæru sjónvarps-
uppfærslu Trevor Nunn á Macbeth
sem sýnd var hér í sjónvarpi fyrir
nokkum árum.
Judi Dench lauk í sumar við að
leika í kvikmyndinni Saigon eftir
David Hare. I vetur hefur hún
farið meö tvö hlutverk hjá
National Theatre (Þjóðleik-
húsinu), bæði undir stjórn Peter
Hall. Annað þeirra er kerlingar-
uglan Lady Bracknell í The
Importance of Being Earnest eftir
Oscar Wilde. Sumum finnst Judi
Dench of ung til að fara að leika
kerlingar en Peter Hall taldi að
Judi Dench væri best til þess fallin
að gæða kerlinguna lífi og sýna
hana á annan hátt en hingað til
hefur tíðkast. Hitt hlutverkið er í
einum af þremur einþáttungum
Harold Pinter sem sýndir eru
undir nafninu Other Places.
Þættimir hafa vakið mjög mikla
athygli eins og alltaf þegar ný
Pinter-leikverk koma í fjalirnar.
Þátturinn sem Judi Dench leikur í
heitir A Kind of Alaska. Þar leikur
hún konu sem fellur í eins konar
óminnisdá 16 ára og vaknar aftur
til meðvitundar 45 ára. Þessi
þáttur þykir sá langbesti af ein-
þáttungunum og Judi Dench fékk
einróma lof gagnrýnenda fyrir
frábæran leik.
Judi Dench hefur nokkrum
sinnum áður leikið á móti eigin-
manni sínum, Michael Williams. I
fyrra fengu hjónin afbragðsdóma
fyrir leik í gamanleik eftir Shaw,
Village Wooing. Hjónin eiga tíu
ára dóttur, Finty, og þrátt fyrir
litríkan feril segir Judi Dench aö
fjölskyldan og heimilið komi
ávallt í fyrsta sæti.
l.tbl. Vikan 17