Vikan


Vikan - 06.01.1983, Qupperneq 20

Vikan - 06.01.1983, Qupperneq 20
Þjóðhöfðingjar munu heimsækja okkur og forseti jslands aðrar þjóðir. Sophia Loren gerist bandarískur rikisborgari og nær sér í nýjan eiginmann þar vestra. Ef ég einbeiti mér aö forsætis- ráöherra til dæmis — þeir eru hér í rööum, allir í biöstöðu. Það verður leitaö til svo margra. Steingrímur er einn þeirra. Einnig Birgir Isleifur. Þessir menn eru svo sterkir og skera sig úr þeim mannfjölda, sem ég sé fyrir mér, aö þeir hljóta aö hafa forystuhlutverki aö gegna. Næst þeim standa þau Kjartan Jóhannsson, Ragnar Arnalds og Ragnhildur Helgadóttir. Eg heyri til þeirra, þau munu tengjast sterklega öllum viðræðum um stjórnarmyndun. — Albert Guð- mundsson virðist hafa þarna ein- hverju mikilvægu hlutverki aö gegna sem ráögjafi eöa milli- göngumaður. Eg sé hann með símtól í hendinni og þaö liggja þræöir milli hans og allra þessara aöila. Prófkjör virðist mér ekki ætla að breyta miklu í þeim kjördæm- um sem prófkjör verður í. Mér er næst að halda að sömu menn veröi kjörnir og áður. Aðeins í Reykjaneskjördæmi sé ég breyt- ingar og þá hjá Sjálfstæöisflokki. Þar hverfur maður eða mennúr þeim flokki til annarra starf a. I Suöurlandskjördæmi sé ég miklar væringar vegna framboðs sjálfstæðismanna og veröur ekki útséð hvernig því lyktar fyrr en undir voriö. En það sem örlagaríkast er á sviði stjórnmálanna er að áhrifa þeirra mun gæta á nánast öllum sviöum þjóðlífsins og á svo beinan hátt aö ég sé atvinnu- og efnahags- mál komast í mun fastari tengsl við hið opinbera en áður hefur þekkst hér á landi. Þetta munu margir ekki sætta sig við og það kemur los á fólk. Eg sé fararsniö á fólki, það horfir til hafs. Þetta þýðir í mínum augum ekkert annað en það aö fólk flyst af landinu. Hversu margt, þaö get ég ekki séð. Ef ég reyni að beina huganum að árferði og veðurfari sé ég þar engin stórtíöindi. Og þótt þau yröu í einhverjum mæli þá eru það stjórnmálin og aftur stjórnmálin sem allt snýst um hér á árinu 1983. Samdráttur — niðurskurður — ríkisafskipti Sjávarútvegur mun eiga erfitt uppdráttar þótt allt veröi gert til þess að láta hann hafa forgang að fjármagni. Orkumál munu skýrast og óvæntur fundur nýrrar orkulindar hér við land eða á landi mun taka upp mikinn tíma stjórn- málamanna á Alþingi. Já, sjávarútvegur mun smám saman dragast saman og lúta allt öðrum lögmálum en nú eru ríkjandi. Stjórnun í sjávarútvegi mun færast til hins opinbera í formi veiðileyfa og úthlutunar þeirra. Almálið mun fá nokkuð snöggan endi í byrjun ársins og mun það verða okkur í hag. Eignaraðild mun breytast og ein- falda málarekstur fyrir okkur Is- lendinga. I iðnaði verða mikil umbrot. Ný samtök, sem telja sig í forsvari fyrir iönaðarframleiöslu hvers konar, munu stofnuð og fyrir þeim fer maður gustmikill og stór- huga. Hann mun eiga traust flestra stjórnmálamanna og fá ýmsu framgengt. Þaö mun verða bryddað upp á merkum nýjungum í atvinnugreininni og færðar út kvíarnar í útflutningi. Þar ber mest á matvælum og tískuvörum. U.S.S.R. COSMOS 990 I InmannnH Q r mn ♦ i f ir Samtök íbúflahverfa í Reykjavík munu taka sig saman um að setja upp loftnet til að taka á móti erlendu sjónvarpsefni. . . 20 Víkan x. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.