Vikan - 06.01.1983, Síða 21
Margir munu þar leggja hönd á
plóg.
I listum hvers konar mun veröa
þröngt í búi. Ríkið mun draga
saman fjárveitingar og styrki til
þessara greina. Þetta á einnig viö
um fjárveitingar til námsmanna.
I þeim efnum verður þröngt fyrir
dyrum og mun nefnd á vegum hins
opinbera leggja til að einungis
þeir sem komnir eru á lokastig
náms eða sýna umtalsverða hæfi-
leika haldi réttindum til láns-
möguleika.
Einkenni ársins í fjármálum
eru: samdráttur, niðurskurður og
ríkisafskipti. Þetta tekur mig sárt
að þurfa að opinbera en þegar ég
kalla fram fyrirboða í huga mér
um ólíklegustu hluti veröur alls
staðar veggur fyrir, þar sem á eru
letruð þessi orð „Bíöið — sýnið
þolinmæði”.
Eg túlka þetta á þann veg að
hér séu bein skilaboð um
minnkandi fjármagn og viövörun
til landsmanna um aö ekki verði
komist hjá breyttum lífsvenjum.
Ráðamenn fyrirtækja munu
reyna aö sameinast um breytt
fyrirkomulag vinnutíma, gegn því
að orlofstími starfsmanna verði
sveigjanlegur milli árstíða. Þetta
mun marka tímamót í sam-
skiptum launþega og atvinnu-
rekenda.
Leitað aðstoðar
frá Noregi í
fjármálum og furtdin
lausn á
flugstöðvar-
byggingu
Ég sé aukin samskipti
íslenskra stjórnvalda við norsk
stjórnvöld og einhvers konar að-
stoðar verður leitað við þessa
frændur okkar. Mér sýnist við
þiggja umtalsverða fjárhagsað-
stoð, auk þess sem tækniaöstoð
verður til umræðu.
Skemmtiferðum Islendinga til
útlanda mun fækka til
muna, einkum til Suðurlanda, svo
sem Spánar og nærliggjandi
landa. Fólk mun taka upp annan
ferðamáta. Það verður mikil
ásókn í ferðir með skipum héðan,
einkum til Bretlands, og sú nýjung
að geta tekið bíla með mun
mælast vel fyrir.
Skyndileg hækkun á erlendum
gjaldeyri mun hins vegar setja
strik í reikninginn, ef ekki bein
gjaldeyrishöft. Hópar fólks munu
þó ekki láta slíkt á sig fá, það er að
segja þeir sem efni hafa á og
sækja um yfirfærslur vegna
ferðalaga.
Álmálið mun fá snöggan endi og mun þaö verða okkur í hag. . .
Straumur erlendra ferða-
manna til Islands verður hins
vegar geysimikill og verða gisti-
hús og feröamannastaðir yfirfullir
og anna hvergi nærri eftirspurn.
Þessi ferðamannastraumur
verður aðallega frá Bandaríkjun-
umogSviss.
I blaðaheiminum veröa tals-
verö umbrot. Hinum hefðbundnu
Sólarlandaferðum fækkar á árinu, enda verða erfiðieikar með gjaldeyri.
dagblöðum fækkar, að minnsta
kosti um eitt — ef ekki tvö, og rit-
stjóraskipti verða tíð er líða tekur
á árið. Nýir, ferskir straumar
berast til þeirra blaöa sem eftir
verða, meö nýjum mönnum.
Ríkisútvarpið tekur upp, eða
öllu heldur verður látið taka upp,
nýja innheimtuaðferð sem eykur
tekjur þess aö mun. Myndbanda-
væðingin nær slíkum vinsældum
aö Ríkisútvarpiö, sjónvarp, mun
hverfa í skuggann. Samtök íbúða-
hverfa í Reykjavík munu koma
sér upp aðstöðu til móttöku á sjón-
varpsefni frá gervihnöttum, fyrst
þeim rússneska og síðan öðrum
hnetti.
A árinu rísa upp deilur um hvort
Póstur og sími skuli fara fram á
það við varnarliöið á Keflavíkur-
flugvelli að fá afnot af því efni sem
varnarliðið kaupir í raun af Pósti
og síma með því að taka á móti
efninu frá gervihnetti um jarð-
stöðina Skyggni, — eða hvort
Pósti og síma sé heimilt að leigja
þaö efni beint til notenda, vegna
þess að stofnunin sé orðin dreif-
ingaraðili.
Allar verða þessar umræður og
deilur háðar opinberlega og munu
koma til kasta Alþingis og raunar
byrja þar. Þær fá endi sem allir
landsmenn munu fagna.
Ný hugmynd kemur fram um
lausn flugstöðvarmálsins á Kefla-
víkurflugvelli. Þaö verður látið
heita svo að byggingin verði
X. tbl. Víkan 21