Vikan - 06.01.1983, Síða 63
Pósturínn
Liggur þín leið og
þeirra saman
í umferðinni?
SÝNUM AÐGÁT
||U^ERÐAR.
Til einnar
ráðþrota:
Pósturinn getur ekki í
neinu tilviki gert undan-
tekningu og svarað bréfum
sem ekki eru birt, það væri
ósanngjarnt gagnvart
öðrum sem skrifa Póstin-
um. Einn tilgangur Pósts-
ins er einmitt að sýna fólki
fram á að margir eiga við
sömu vandamál aö stríða
og svo á einnig við í þínu til-
viki. Þú þarft ekkert að
skammast þín fyrir bréfið
þitt og Póstinum væri
greiði gerður að fá að birta
það.
Stelpa f rá
Uganda
Kœri Póstur!
Ég er hér með nafn á 16
ára stelpu í Uganda og hana
langar svo mikið í íslenskan
pennavin. Ahugamál hennar
eru margvísleg. Meira veit
ég ekki um hana, en gerðu
það fgrir mig að birta nafn
hennar og heimilisfang eins
fljótt og þú getur.
Bœ, bœ,
Guðrán Ólafsdóttir.
Og heimilisfangiö og
nafnið er Kata Kabuye,
P.O. Box 18, Lugazi,
Uganda og nú ættu penna-
glaðir að senda henni línu
sem allra fyrst.
HEFUR ÞÚ
LESIÐ
Sýnishorn
af forsmáðri
ást
Kœri elskulegi, ástkœri, frá-
bœri, mergjaði, hjálpsami
Póstur.
Ég skrifa þér vegna þess
að ég er í vanda stödd. Ég
þyrfti ekki að skrifa þér ef
ekki vœri við nein vandamál
að etja.
Þá er best að gera langa
sögu stutta og þá er að
byrja. Ég er yfir mig hrifin
af strák sem er 17 ára en ég
er 14. Ég skrifaði þér í fyrra
og fékk ágœt svör því að nú
þekki ég hann frá toppi til
táar. Ég myndi segja HÆ
við hann á götu ef ég sœi
hann og geri það og hann
líka. Ég er búin að vera
hrifin afhonum í tœpt ár. En
um daginn hringdi ég í hann
og samtalið var svona:
Hann: Já.
Ég: (Sagði nafn hans.)
H: Já.
É: HÆ!
H. Hver er’etta?
É: Gettu?
H: Ég veitþað ekki.
É: (Ég sagði nafnið mitt.)
H: Já, hvað ?
É: Ertu að gera eitthvað sér-
stakt í kvöld (föstudags-
kvöld)?
H: Já.
É: Hvað ertu að fara að
gera ?
H: Kemur þér það við ?
É: Já.
H: Afhverju?
É: Af því að ég þarf að tala
við þig.
H: Mig. Þú getur það ekki.
É.Ha?
H: Ég er með stelpu.
É: Þú með stelpu, hahaha,
seg mér brandara.
H: Já, ég er víst með stelpu.
Ég skal bara sýna þér hana l
kvöld.
É: Og hvar verðurþú?
H: Nið ’rá plani.
É: Ég séþig þá kannski.
H: Já, bless.
É: Bless.
Hvernig líst þér á þetta?
Finnst þér hann ekki
montinn og barnalegur: Ég
fór svo niður á plan og
spurði hann hvar stelpan
vœri og hann sagði: Hún er í
hinum bílnum þarna, talaðu
bara við hana.
Ég að tala við hana, ég sœi
mig í anda tala við stelpu
sem ég veit ekki einu sinni
hvað heitir. Eða er það,
Póstur?
Nú er ég flutt í X og hann á
heima í bœnum. Stutt á
milli. Þegar ég kom í nýja
húsið dreymdi mig hann
fyrstu nóttina. Merkir það
eitthvað ?
Ég er eins og þorskur á
þurru landi sem er hjálpar-
vana og bíður eftir því að
einhver bjargi honum. Þess
vegna verður þú að hjálpa
mér og gefa mér fleiri ráð en
þú hefur gefið mér.
Þorskur áþurru landi.
Ur vöndu er að ráða,
þorskur minn. Pósturinn
vill alls ekki hryggja þig en
allt bendir nú samt til þess
að gaurinn hafi um annað
að hugsa en þig alla daga
og allar nætur. Fyrst hann
er með stelpu vill hann
sjálfsagt bara fá aö vera
með henni í friði. Þú getur
svo sem haldið áfram að
fylgjast með honum og
athuga hvort eitthvaö
breytist en ef ekki þá er um
lítið annaö að ræða en
beina tilfinningunum á
aðrar brautir. Þú ert ekki
sú fyrsta sem verður að
þola mótlæti í ástamálum.
Það hafa sjálfsagt flestir,
bæði karlar og konur á
öllum tímum, einhverja
svipaða sögu að segja. Og
99,999% náðu sér aftur
áður en á löngu leið, þó
vissulega sé erfitt að
kyngja því á meðan það
gengur yfir.
X.tbl. Vikan 63