Vikan - 29.11.1984, Síða 11
Marlon Brando, 60 ára, er nú
ástfanginn, eina ferðina enn. Sú
hin lukkulega heitir Yachio
Tsubaki, 35 ára, og er japönsk, en
Brando hefur alltaf Utið þessar
austurlensku hýru auga.
Ástarsamband þeirra upp-
götvaðist á dögunum er Marlon
Brando kom til London að kynna
nýjustu kvikmynd sína. Hann
reyndi þó að fara leynt með einka-
mál sín því hann er enn giftur og
geymir fjölskyldu sína á Thaiti.
Sagt er að hann sinni henni lítið.
Brando er nú orðinn akfeitur og
verður taugaveiklaðri og skap-
verri með hverju árinu sem færist
yfir hann. Hann gerir ekkert til að
reyna að grenna sig og segir að
hann vUji haga lífi sínu akkúrat
eins og honum sýnist. „Ef einhver
er með hlutverk handa mér
verður sú persóna að vera feit. . .
eins og ég — og hana nú! ”
Það er almennt viöurkennt að
Marlon Brando geti Ula sætt sig
viö að eldast og drekki sorgum
sínum ótæpUega í alkóhóU. Hann
vonar þó í hvert skipti sem hann
verður ástfanginn að þar sé hin
eina sanna ást sem geti gefið Ufi
hans tilgang.
Spakmœii
Vikunnar:
Sjaldan er ein viðbáran stök,
sagði sáttasemjari og fór að
gráta.
Gerber
RICE CEREAL
with BANANA
AF PLESAU :E
Kiitim 2111
barnamatur
Fimmtíu ára reynsla og 70%
markaðshlutfall í USA
segir meira en mörg orð um Gerber barnamatinn. Venjuleg fæða er
of bragðmikil eða skortir næringarefni, sem ungbörn þurfa á að
halda til að dafna og þroskast eðlilega. Eftir áratuga rannsóknir
færustu sérfræðinga hefur Gerber tekist að framleiða, úr bestu
hráefnum, mikið úrval af auðmeltanlegum og bragðgóðum barna-
mat, með réttum næringarefnahlutfölium. Gerber gæðanna vegna
það geta 30 milljón mæður staðfest.
Einkaumboð
mm&Á
c&nteriolzcir
sími 82700
Auglýsingastofa Gunnars