Vikan


Vikan - 29.11.1984, Blaðsíða 69

Vikan - 29.11.1984, Blaðsíða 69
Paul Young kemur aftur Þaö blés ekki byrlega fyrir Paul Young nú fyrir örfáum mánuðum. Það vildi nefnilega þannig til að hann missti gersamlega efri skalann af raddsviði sínu. Ástæða þessa er sú að hann ofreyndi vöðvana í kringum radd- böndin við að ná hinum geysiháu tónum sem hafa fært honum nafnbótina „soulkóngur Bretlandseyja og þó víðar væri leitað”. Eins og athyglisgáfaðir einstaklingar hafa kannski tekið eftir hefur hann þó náð henni aftur (ekki nafnbótinni, hann hafði hana allan tímann, heldur röddinni). Það sannaöist þegar fyrsta smáskífa hans í langan, langan tíma kom út. Hún inniheldur lagið I’m Gonna Tear Your Playhouse Down og er það mál manna að þar sé vel að verid staðíð. Það er samt svolítil saga á bak við það. Er hafist var handa við gerð lagsins var rödd Pauls engan veginn komin í lag. Reyndar var hann alvarlega að íhuga að gerast bílasmiður hjá Vauxhall Motors en gaf það upp á bátinn og ákvað að láta undan hinum mikla þrýst- ingi, sem plötufyrirtæki hans hafði á honum, og gera eins og eitt stykki plötu fyrir þá bless- aða. En hvað haldið þið að hafi skeð? Nei, það var ekki það, heldur: Um leið og Palli sté inn í stúdíóið fannst honum eins og töfrar umlykju hann allan. Hann hóf upp raust sína og viti menn! hann var með alveg sömu röddina og hann hafði þegar hann var að senda inn umsóknina hjá Vauxhall. Niðurbrotinn maður settist hann niður og fékk sér kaffibolla til að jafna sig eftir þetta áfaU þegar vonir hans brustu. (Hann vissi ekki að þetta var DUetto kaffi.) Stuttu seinna stóð hann fyrir framan míkrófóninn og ákvað þó aUtént að reyna, það dræpi nú engan. En hvað haldiö þið að hafi þá skeð? Gamla, góða röddin var komin aftur. Hann ærðist af gleði, faðmaði kaffikerlinguna og þakkaði forsjóninni að hann hafði reynt. Þetta var þá bara sálfræðUegt atriði eftir aUt saman. (Við vitum nú betur!) Um þessar mundir er síðan að koma út ávöxtur þessara stúdíótíma í formi stórrar plötu. Vart er hægt að hugsa sér annað en að hún komi tU með að ganga vel hér á skerinu því eins og aUir vita var fyrri plata hans, No Parlez, með þeim söluhæstu á síðasta ári og var númer eitt á LP-Ustanum í aUlangan tíma. Á meðan við tölum um Island; Paul virðist hafa fengið nasasjón af velgengni sinni hér á skerinu. I nýlegu viðtaU í bresku popp- riti var kappinn spurður hvemig hann héldi íslenska Paul Young aðdáendur vera. „Ég hef aldrei séð neinn (enda misstum við af hon- um á síðustu Ustahátíð) en ég býst við að þeir séu róandi eins og brjálæðingar upp jökulámar á kajökum tU næstu plötubúðar. Eg hef ekki ennþó komiö til Islands.” Áf þessu má ráða að annaðhvort er Paul geig- vænlegur húmoristi eða þá að hann er bara „stupid”. Hið fyrmefnda er sennUegra en það má líka ráða fleira af þessu. Hann virðist alveg vera tíl í að koma hingað. Hvemig væri haraaðfáhann? Texti: Hörður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.