Vikan - 29.11.1984, Blaðsíða 53
ana sjálfa. Ég spurði hann líka
hvort maður þyrfti að eiga kjólföt
til að komast inn og út á hvað
þetta gengi nú allt saman. Og
hvort pen blá jakkaföt gætu ekki
komið í staðinn fyrir kjólinn.
— Hvar er pípuhatturinn minn?
spurði Larsen á móti. Ég sagði
honum að hann hefði fariö í salí-
bunu með vatnsflauminum og allt
útlit væri fyrir að vindurinn hefði
tekið við þegar straumiðan sleppti
honum.
— Mér sýnist hann vera á floti í
rennusteininum þama niður frá,
sagði ég. — Bíddu bara augnablik,
ég skal reyna að góma hann.
Ég hljóp á eftir hattinum, fullur
hjálpfýsi og lánið var með mér,
mér tókst að skella fætinum á
hann í rennusteininum áður en
vindhviða hreif hann með sér út í
veður og vind. Skömmu síðar gat
ég fært eigandanum hattinn og
var þá heldur betur stoltur.
— Þetta er nú eitt það eftir-
minnilegasta sem ég hef nokkum
tíma lent í, sagði hann.
Ég gat ekki að mér gert að
brosa. Ég var einmitt að hugsa
um gamla Chaplinmynd þar sem
hafði verið svipað atriði, nema í
hvert sinn sem Chaplin teygði sig
eftir hattinum sínum fauk hann
lengra út í veður og vind.
— Stendurðu þama og hlærð
upp í opið geðiö á mér? sagði
Larsen og stakk hausnum næstum
á kaf í limgerðið. Hann var mjög
heilbrigður og rjóður í framan. Ég
sagði honum frá Chaplinmyndinni
sem ég hafði verið að hugsa um.
Það haggaðist ekki hrukka í
andlitinu á honum.
— Það er eiginlega ekki hægt að
segja frá þessu, maður veröur að
sjá það.
— Fábjáni! sagði hann. Hvort
hann var að tala um Chaplin eða
ekki vissi ég ekki, mér finnst
Chaplin alltaf skemmtilegur. En
það eru ekki allir sem hafa sans
fyrir fínan húmor. Og þó ég vilji
nú ekki vera að segja neitt ljótt
um hann Larsen þá verð ég að
viðurkenna að hann á af mörgu
meira en húmor.
Hann fór inn og skellti hurðinni
fast á eftir sér, og þegar ég var bú-
inn að þurrka mér um hendumar
á lúnum tvisti fór ég líka inn. Það
var komið kaffi. Þegar ég var bú-
inn aö drekka kaffið mitt bað ég
Maríönnu um að fara í kjallarann
og skrúfa frá krananum þar svo
ég gæti lokið við að þvo bílinn.
— En endilega ekki opna fyrr
en ég hrópa OPNA, sagði ég. Ég
hef engan áhuga á að lenda í stæl-
um við Larsen aftur.
Svo fór ég niður í innkeyrsluna
og greip slönguna, þar sem hún lá,
og um leið opnaði Larsen dyrnar
til að athuga hvort leiðin væri
greið fram undan svo hann
kæmist út. Hann var greinilega
ekki enn kominn yfir skrekkinn
frá því áðan. Nú var hann kominn
úr kjólfötunum og kominn í smók-
ing. Hann hætti sér greinilega ekki
af stað þegar hann sá mig þama
með slönguna. Hann gat ekki vitað
að það var ekki skrúfað frá.
— Þér er óhætt AÐ OPNA!
hrópaði ég róandi til hans. Hann
opnaði dymar alveg og kom út á
tröppumar. En um leið skrúfaði
Maríanna frá vatninu. Og það
lenti beint á Larsen.
— Úbbosí! sagðiég.
Hrúturinn 21. mars- 20. april ,
Sannkölluð letivika er
fram undan, ekki
mikil sól en þeim
mun meiri sæla. Þú
hefur þörf fyrir
félagsskap og því
veröur þú feginn þeg-
ar þér verður boöiö í
mikinn gleöskap á
næstunni.
Nautið 21. apríl 21. mai
Þú færö tækifæri til
að auka viö þekkingu
þína á málefni sem
þú hefur rosalegan
áhuga á. Líklegast
eykst sjálfstraust þitt
til muna við þetta,
svo mikiö að þú ættir
aö passa þig ofurlítið.
Krabbinn 22. |úni - 23. júli
Þú ert upp á þitt
besta þessa dagana
og þér gengur erfiö-
lega aö skilja að
aörir eru kannski
ekki alveg eins vel
upplagðir og þú!
Taktu tillit til
annarra og haföu
samband við góöan
vin.
um þig eru duglegir
að segja álit sitt á
öllu sem þú gerir.
Hvemig væri aö þú
lokaöir nú eyrunum
og hagaöir lífi þínu
akkúrat eftir eigin
höfði.
L|ónið 24. |úli 24. ágúst
Þú nýtur góös af
skapferli þínu og fólk
á gott með aö um-
gangast þig. Gættu
þín á aö enginn mis-
noti góðvild þína og
láti þig gera hluti
sem ekki eru í þínum
verkahring.
Sporðdrekinn 24. okt. 23. nóv
Þú getur rólegur
tekið orö náins vinar
trúanleg og treyst því
aö hann vill þér vel.
Þú kemur til með aö
segja álit þitt hreint
út á ákveðnu máli og
lætur óánægju ekki
hafa áhrif á þig.
Steingeitin 22. des. 20 |an.
Þú hefur trassað aö
gera ákveöna hluti nú
lengi og þaö kemur
beint í hausinn á þér
næstu daga. Láttu
samt ekki bugast því
þetta eru tímabundn-
ar annir og þú munt
njóta lífsins bráölega.
Vatnsbermn 21. jan. 19. febr.
Þú ert fullur af orku
og langar til aö taka
til hendinni en því
miöur er lítið af verk-
efnum sem þú getur
leyst á næstunni. Þú
ferö í burtu á næst-
unni og það verður
kærkomin tilbreyting.
Tvíburarnir 22. mai 21. júni
Þú hefur ekki notiö
þín nægilega mikiö á
því sviöi sem þú ert
betri en aðrir. Þú
ættir aö vera dug-
legri viö aö ota þín-
um tota, þaö eru
frumskógarlögmál
sem gilda í þessu
máli sem öörum.
IVIeyiaii 24. ágúst 23. sept.
Þú hefur mikinn
áhuga á aö hrinda í
framkvæmd áætlun
sem mörgum finnst
helst til stórtæk og
hafa of mikla áhættu
í för meö sér. Þú
stendur á tímamótum
núna en ert í góöu
andlegu jafnvægi.
Bogmaðurinn 24. núv. 21.des.
Þessir tímar veröa
mjög rómantískir og
þú lifir hátt í
skýjunum á
næstunni. Þú ættir
samt aö tylla tánum
niöur á jöröina eitt
andartak því þú þarft
aö taka til hendinni
heima hjá þér.
Fiskarnir 20. febr. 20. mars
Þú heyrir uppástungu
sem kemur sér illa
fyrir þig og þú átt aö
taka á öllu þínu til aö
hindra aö hún komist
í framkvæmd. Þú
þarftaölæra að
standa á eigin fótum
og halda í skoöanir
þínar.
42. tbl. Vikan 53