Vikan - 29.11.1984, Blaðsíða 64
Jólasnyrting bæði fyrir tvítuga og fertuga
I næstu VIKU kynnum við okkur jólasnyrtinguna í ár. Snyrtisérfræð-
ingar snyrtu fyrir VIKUNA eina um tvítugt og eina um fertugt svo allir
ættu að græða á að kíkja nánar á það.
Jólatískan er sannkölluð lúxustíska
Á jólum tíðkast að menn klæði sig upp á og það gerum við líka í VIK-
UNNI. I næstu VIKU sýnum við nokkur tilbrigði við jólatískuna, bæði
hjá dömum og herrum. Og eins og þar sést er jólatískan í ár sannkölluð
lúxustíska.
Jólaföndur — jólagjafir
Jólaföndur er ómissandi í jólablaðinu. I næstu VIKU er að finna alls
kyns jólaföndur sem litlar hendur sem stórar geta spreytt sig á. Þar er
skraut á jólatré, í glugga, á borö, á veggi og alla mögulega og ómögu-
lega staði sem þarfnast jólaupplyftingar.
Hvernig ris hús úr rústum?
Gamalt timburhús í miðborg Reykjavíkur var „tætt í spað” að innan-
verðu á síðasta ári en nú eru þar fallegar íbúðir, hver með sínu sniði. Við
kíkjum inn í húsið í næstu VIKU og fylgjumst með því hvernig spýtur og
rusl breyttust í falleg híbýli.
Jólaleikir fyrir alla fjölskylduna
Samkvæmi af ýmsu tagi fylgja jólahaldinu, einkum á jólum eins og
þeim sem framundan eru, með nógu af frídögum. Þá er tilvalið að reyna
nýja, skemmtilega samkvæmisleiki og í JOLAVIKUNNI verða nokkrir
slíkir sýndir.
Heima er best á jólunum — eða hvað?
I næstu VIKU verður rætt við nokkra íslendinga sem hafa haldið sín
jól á erlendri grund og spurt: Hvernig er að halda jólin að heiman?
Gerla
Þetta hefur verið erilsamt haust fyrir myndlistarkonuna Gerlu. Hún
hefur hannað leikmyndir og búninga fyrir fleiri en eitt leikhús. Meira
um það í viðtali við hana í næstu VIKU.
64 Vikan 42. tbl.