Vikan - 29.11.1984, Page 27
“s Kokoko-Dorok-Kenaisence w**
Ertu aö vinna viö útsaum?
Eigum ávallt glæsilegt úrval af antik-
og rokoko- stólum og stólgrindur fyrir
útsaum.
Veitum fullkomna ráögjöf um
strammastærö og fleira vegna upp-
setningar i bólstrun.
Leitiö þangaö, sem úrvaliö er mest og
kjörin best.
SNýja
JtölsturgGrðin
Keykjanesbraut — Fossvogi.
Slmi 91- 16541.
Slúður
Rainier Mónakófursti hefur nú veriö ekkju-
maður í rúm tvö ár. Þykir mönnum tími til
kominn að hann fari að líta í kringum sig eftir
föstum félagsskap. Tekiö var eftir því hve
hann eltist eftir að eiginkona hans, Grace, lést
sviplega í bílslysi. Er það hald manna að ný
eiginkona gæti virkað eins og yngingarmeðal
á furstann.
Nú hefur fundist verðugur frambjóðandi
og heitir hún Yvette Marsan og er 48 ára
gömul. Hún er ekkja, milljónamæringur og
hefur verið vinkona furstans frá því að þau
voru ung. Það sem hefur ýtt undir sögusagnir
um samdrátt þeirra er hve oft hún virðist
taka að sér hlutverk húsfreyjunnar við hlið
hans. Hún er tíður helgargestur í höll hans,
Marchais, norður af París og hún heldur
veislur með honum um borð í snekkju hans,
Stalca. Ennfremur sést hún oft með honum á
tónleikum, í leikhúsi og á öðrum kvöld-
skemmtunum.
En Yvette Marsan kemur aldrei fram við
hlið furstans við opinber tækifæri. Þá er þaö
dóttir Rainiers, Caroline, sem tekur að sér
hlutverk æðstu konu Mónakó. Hún hefur þó
lýst því yfir að hún hafi ekkert á móti því að
faðir sinn giftist hið fyrsta, það geri honum
ekki gott að eyða ellinni í einsemd. Líklegast
verður þó ekkert af hjónabandi hjá furstanum
fyrr en Albert prins festir ráð sitt og tekur við
furstadæminu. Hve lengi hann þarf að bíða
eftir því er óljóst. . . sjálfur gifti Rainier
fursti sig ekki fyrr en hann var 33 ára gamall.
42. tbl. Vikan 27