Vikan


Vikan - 13.06.1985, Side 13

Vikan - 13.06.1985, Side 13
aldrei pening og gat varla keypt sér verkfæri, varð bara að smíöa þau. Enda eru öll verkfæri á einhvern hátt smíöuð, og hví þá ekki aö ég geti smíöað þau eins og einhver annar, jafnvel þó hann sé í útlöndum? Já, já. Annars voru þaö gjaman feröalög sem ég var kenndur við, ekki síöur en dútliö. ,,Þú ert Mývetningur." „Já, í Mývatnssveit var ég til þrítugs. Eg er frá Helluvaöi. Afi minn, Jón Hinriksson, Skagfiröingur aö ætt og Eyfiröingur, giftist konu úr Mývatnssveit og settist þar aö ungur, á erfiöu tímabili í kringum 1880 eða þar um bil, þegar allir voru aö lognast út af hér og fara til Ameríku. En Mývatns- sveit hefur síst verra veöurfar en aörir staöir. Þetta er frekar úrkomulítiö svæði, stendur það hátt aö strandf jöllin eru búin aö taka úrkomuna mikið úr loftinu. Á Mývatnsöræfum er ágætis haglendi og á þessum árum var litiö upp til Mývetninga, hvemig sem þaö er núna. Og þá voru sögö fræg orö um Mývetninga, aö þeir væru ekkert meiri en aðrir menn ef þeir heföu ekki átt „silunginn, austurfjöll og Jón á Gaut- löndum”. Og þaö var nokkuð til í þessu. Silungurinn bjargaöi mönnum ákaflega mikiö og þaö jafnvel dala- mönnum líka sem sóttu þama upp eftir og þess vegna litu þeir upp til Mývetninga. Þegar fóöurleysiö varö og erfiöleikarnir var eina ráöiö aö reka á Mývatnsöræfi og láta guö sjá um féö, sem bjargaði oftar en hitt.” Ef menn hafa viljann til að prófa eitthvað þó geta menn. „Þú minntist á ferðalög." „Af því aö sveitin er afskekkt hlutu að veröa ferðalög og kaupstaðaferöir gátu orðiö dálítið erfiöar því þaö eru 60—70 kílómetrar til Húsavíkur og þaö var alltaf fariö aö minnsta kosti einu sinni eða tvisvar á vetri aö sækja vörur. Þá var farin beinasta og stysta leið noröur úr Mývatnssveit, svipaö því sem Kísilvegurinn liggur nú, aö vísu vestar, en yfir Hólasand og noröur í Reykjahverfi. Eg fór nokkrar svona feröir. Þetta voru miklar skemmti- feröir og reyndi oft dálítið á karl- mennsku. Þama er langt milli bæja, 20—30 kilómetrar, og um óbyggöir aö fara, en það var valinn tími, aö þaö stæöi vel á tungli og færi væri gott. Og aldrei Það sr kannski gott að bölva svolítið. fariö ööruvísi en í flotum. Og maöur getur hugsaö sér aö það hafi veriö upphafið aö þessari samvinnu sem Þingeyingar eru frægir fyrir, kannski meira en aörir, aö menn þurftu aö vinna saman.” „Hvert fórst þú þegar þú fórst fró Helluvaði þrítugur?" „Hingað til Akureyrar og hef veriö hér síöan.” Jón spilar ó mörg hljóðfœri — þeirra ó meðal þetta orgel sem hann hefur sjólfur smiðað og er hægt að öll verkfæri eru á einhvern hátt smiðuð, og því þá ekki að óg geti smíðað þau eins og einhver annar? „En þú hefur ekki hætt að ferðast fyrir því." „Nei, síöur en svo. Þá fékk maður eiginiega betri tíma, því þær fer.öir sem maður fór þama heima voru bara svona nauöþurftaferðir, en nú gat maöur fariö aö nota sumarfrí í skemmtiferöir.” „Hvað fórstu að starfa þegar þú komst hingað?" „Ég fór í lögregluna og var þar í þrettán ár, yfir stríöstímann og fram yfir 1950. Jamm. En þaö var nú ómerkilegt tímabil í ævi minni, fannst mér, og illa variö. Nema það aö þaö var létt verk. Maöur safnaði holdum og þaö var ekki starf fyrir mann eins og mig. En maöur fer út úr því reynslunni ríkari. Maöur kynnist því hvað menn eru vitlausir. Starf lögreglunnar byggist mest á því aö berjast viö blá- menn og berserki vegna drykkju- skapar og því sem af því stafar oftast nær. Já, já. Ég hef ekki mikla samúö heldur meö brennivínsmönnum, ég verö aö segja þaö eins og er. Eg held aö þaö ætti aö refsa mönnum fyrir aö fara út á þá braut. Þetta er sjálfsdekur og ekkert annaö, og fyrir þaö aö menn vantar einhver verkefni. Þaö væri miklu betra aö menn heföu einhverja kjallaraholu eins og ég hérna og hefðu þar einhverja aöstööu til aö föndra og framleiða í staöinn fyrir aö drekka brennivín.” „Hvað tók við þegar lögreglu- ferlinum lauk?" „Þá réöst ég héma aö spítalanum. Brynjólfur Sveinsson menntaskóla- kennari var framkvæmdastjóri spít- alans og hann vildi endilega fá mig, hélt ég væri svo ákaflega heppilegur fyrir spítalann. Eg var líka hundleiöur á þess'um þarna lögreglustörfum svo ég fór á spítalann og var þar viö smíðar og aöhiynningu og aila skapaða hluti — nema náttúrlega ég skar ekki upp! Brýndi bara hnífana, því þá voru ekki einnota hnífar, og þaö var áreiöanlegt aö Guömundur blessaöur Karl henti ekki hnífunum þó aö þeir væru farnir aö bíta illa. Þeir voru bara hvattir. Þarna á spítalanum var gott starfs- liö og góöir félagar. Og ágætt aö vinna meö kvenfólki. Þaö var náttúrlega þaö sem stjórnaöi mér. Þeir spáðu nú ekki vel fyrir meö þaö, kollegar mínir í lög- reglunni. En það er nú svona samt aö þaö er yfirleitt gott aö vinna meö kven- Þetta voru miklar skemmtiferðir og reyndi oft dálitið á karl- mennsku. fólki. Þaö er alltaf einhver metingur í karlmönnum, svona hverjum út í annan, og hver þykist vera meiri og betri en hinn.” „Þú sagðir mór i símanum að þetta hús væri partur af gamia spit- alanum." „Þaö er rétt. Spítalinn var byggöur skömmu fyrir aldamót, ansi mikil timburbygging. Upp úr 1920, eftir stríöiö, var þetta hérna hús byggt. Af vanefnum. Þaö var erfitt að fá efnivið en það var samt byggt til þjónustu viö spítalann. Hér voru aldrei sjúkra- stofur eða skuröstofur heldur voru fyrstu röntgentækin sem hér komu sett upp í þessu húsi. Hér var líka borðstofa, eldhús og nokkrar skrif- stofukompur. Um skeið stóð tii aö endurbyggja spítalann hér, en þegar til kom reyndist of þröngt og nýr spítali reistur á Eyrarlandstúni en gamli spítalinn færöur upp í fjall þar sem hann er nú skíðahótel. En ég fékk þaö sem eftir stóö. Þetta er steypt og varö ekki flutt. Starf lögreglunnar byggist mest á þvi að berjast við blámenn og ber- serki vegna drykkjuskapar og þvi sem af þvi stafar oftast nær. Eftir fimm ára dútl í frístundum var þaö komiö í þaö horf sem þiö sjáiö nú. Þetta er ágætis hús. Þaö er eins og maöur sé hér úti í sveit. Hér er fugla- söngur á vorin og gott að vera. Þaö má geta þess til gamans aö þaö er hérna „kleppur” — geöveikra- deildin er hér fyrir ofan okkur á brekk- unni. Konan mín var dálítið rög viö að koma hér í nágrennið þess vegna, en viö höfum aldrei haft nema gott af þessu fólki aö segja. Þetta passaöi börnin fyrir mann, og þegar viö fórum aö heiman báöum viö bara karlana þarna efra aö passa húsiö og þeir stjákluöu hér og geröu þetta af trúmennsku.” „Það hefur þá ekki verið árennilegt fyrir neinn að reyna að fara hór um." „Nei, þaö var þaö ekki. Nágrenniö var gott. Jóhann Konráösson bjó þá þarna í stóra húsinu, hann var deildar- stjóri á geödeildinni. Kom þar upp stórum barnahópi og þeir voru stundum hávaðasamir, drengirnir, Ágætt að vinna með kvenfólki. Það var náttúrlega það sem stjórnaði mór. Þeir spáðu nú ekki vel fyrir því, kollegar mínir i lög- reglunni. hvolfa saman og gera úr þvi koffort að ferðast með. 24. tbl. Vikan 13

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.