Vikan - 13.06.1985, Page 32
skipulögð er best að fara upp í Sig-
urbogann viö enda Champs Ely-
sées. Þaðan sést hvernig Hauss-
man, skipulagsfræðingur Napó-
leons, skar borgina í búta sem eru
eins og risastórar tertusneiðar.
Önnur hæð og ekki minna spenn-
andi er Montmartre — lista-
mannahverfið þar sem sú ægi-
fagra kirkja Sacre Coeur trónir í
hásæti. í kirkjuna er tilvalið aö
fara og hlýða á messu — jafn-
vel enn betra en skoðunarferð í
Notre Dame — og kveikja á kerti
til góðra dýrölinga. Hins vegar
ætti enginn að kaupa „listaverk”
á þessari hæð — til dæmis á Place
du Terre þar sem alltaf er mikið
að gerast, en fæst þarna á nokkuð
skylt viö raunverulega list. Og
ekki batnar það þegar í litlum
verslunum eða á hliðartorgum er
boöið dýrindis málverk eftir vel
þekkta franska samtíðarmálara
— suma búsetta eða með vinnu-
stofu á Montmartre. Fölsun er iðn-
aður þarna — nýlega kom franska
lögreglan upp um heila prent-
smiðju þar sem „franskir” lista-
menn sátu og máluðu og prentuðu
ódauðleg listaverk. Enginn þeirra
kunni stakt orð í frönsku og flestir
voru Pólverjar, Portúgalir og Jap-
anir. Eins er líka iðkað aö fara
með ljósmyndir af verkum mál-
ara í akademíuhúsunum til Tai-
wan og þaðan koma síðan mörg
listaverkin f jölfölduö á markaðinn
fyrir ferðamenn sem langar í
„frönsk” listaverk. Til þess að
gera langa sögu stutta — ferða-
langar ættu að vara sig vandlega á
svikum og prettum — kaupa alls
ekki fyrir háar upphæðir nema í
viðurkenndum verslunum.
Rollur í rétt í Lido
Til þess að komast að raun um
hvað er aö gerast í París hverju
sinni er kjörið að kaupa Pariscope
eða L’Officel Spectacles — upplýs-
ingakálfa sem geyma alla helstu
viöburði vikunnar. Þar eru einnig
heimilisföng safna eins og Louvre,
opnunartímar einnig tíundaðir og
skal sérstaklega bent á aö vinda
sér í skoðunarferð um Versali.
Óperan er með glæsilegri byggingum og þar er upplifun að sjá það sem
Frakkarnir hafa á fjölunum. En betra er að tryggja sér miða í tíma.
París er alltaf falleg — þetta er i janúar, tekið frá öðrum bakka Signu og yfir
á hinn.
Forum er miðstöð ýmissa atburða i Parísarborg, nánar tiltekið Forum des
Halles. Arkrtektamir Claude Vasconi og Georges Penreac'h teiknuðu
Forum og uppbyggingin hófst 1972 eftir að fyrrum markaðirnir les Halles
voru rifnir. Byggingin nær margar hæðir niður i jörðina og hýsir bæði mikla
metró- og RER-stöð ásamt kvikmyndahúsum, verslunum, bönkum og svo
mœtti endalaust telja. Markmiðið var að skapa almenningstorg eins og á
dögum Rómverja þar sem lýðurinn gæti rætt sin á milli og tengja það
verslunarkjarna des Halles hverfisins. Þarna hefur verslun blómstrað frá
miðöldum en fyrri byggingar orðnar mjög úr sér gengnar. Mikið er deilt um
ágæti endurbyggingarinnar sem er í nútimalegum stil — sumir eru geysi-
hrifnir en aðrir telja þetta eins og krabbamein í miðju hverfi gamalla
bygginga frá liðnum öldum.
í miðju Forumsvæðisins er opið svæði — eða hola — þar sem listamenn af
ýmsu þjóðerni koma saman og stunda list sina án tillits til hvort einhver
áhorfandi er eða ekki. Oft getur þarna orðið býsna margt um manninn og
stundum koma afkomendur afriskra ættbálka i fullum skrúða og dansa að
gömlum hefðum. Þar sýna dansendur oft ótrúlega takta sem kannski sjást
hvergi annars staðar — leikgleðin ein ræður.
32 Vikan 24. tbl.