Vikan


Vikan - 03.10.1985, Qupperneq 4

Vikan - 03.10.1985, Qupperneq 4
Stundum hafa eyður myndast í handritum við það að einhver ósvífinn lesari sleikti puttann og bleytti stafinn eða orðið. Ekki vitum við hvort það var raunin þarna en höllumst helst að því að þarna hafi enginn skaði orðið: Þarna hafi alltaf staðið eitt- hvert óláns rugl og sóðaskapur. Utan seilingar getur maður fengið útrás fyrir bælda reiði í garð kúgaranna. Annars hefur verið stungið upp á því að „Kennarinn" só samnefnari stóttarinnar og vilja sumir halda því fram að fulltrúi úr fjármálaráðuneytinu, sem talinn er búa í blokk í grenndinni, hafi ritað þetta eftir síðustu samninga. Fokk" er farandminni Er veggjakrotið skreytilist eða heimskulegur sóðaskapur? Texti: Sigurður G. Tómasson Ljósmyndir: Ragnar Th. Sigurðsson Þetta var sumarið 1973. Höfundur þessarar greinar var staddur í Róm, nánar tiltekið á farfuglaheimili. Þetta var gífurlega stór bygging og var sagt aö Mussolini hefði látið byggja hana þegar hann ráðgerði að halda ólympíu- leika á Italíu. Af þeim varð aldrei en „ólympíuþorpið” reis og í þessari kaldranalegu byggingu var vissulega enn andi fasismans. Þarna sváfu fjögur hundruð manns, konur á efri hæö og karlar niðri. Eg veit ekki hvernig húsum var hagað á efri hæð- inni því þangað fékk enginn karlkyns að stíga fæti, en karlar sváfu í stórum sal, óvistlegum og skítugum. FIFILBREKKA Á KLÓSETTI í RÓM Það sem mér er þó minnisstæðast frá þessum stað eru salernin. Þau voru í kjallara hússins og eftir þeim að dæma hafði hreinlætismálum miðað lítt síðan á fasistatímabilinu og greini- lega farið aftur frá dögum Rómverja. Það voru nefnilega aðeins tvö salerni í lagi þarna í kjallaranum og langar biðraöir. Ég neyddist til þess að bregða mér þarna inn eitt kvöldið og eftir langa mæðu gat ég hallað hurð- inni og skotið lokunni fyrir. Það var heldur óþægilegt að ganga örna sinna þegar tuttugu manna biöröð hékk á hurðinni. En samt virtust ýmsir hafa haft tíma til þess að krota nöfn sín og dagsetningar innan á hurðina og stundum eitt eða tvö orð til viðbótar. Lítið bar á spakmælum. En eitt krotið skar sig gjörsamlega úr. Það var ís- lenski fáninn fagurlega dreginn í réttum litum, dreginn að húni yfir grænni brekku, blaktandi í vorgolunni, vantaði bara lækinn. Raunar var vind- urinn sá fjarri mér þar sem ég húkti á setunni. Þarna gustaði af öðru en ís- lensku fjallalofti og bleytan á gólfinu átti ekkert sameiginlegt með tærri fjallalind. Undir fánanum stóð, settlegaritað: „KK. 16.6. 73.”Sjálfum gafst mér varla ráörúm til þess að lesa allt krotið á veggjunum svo ég gat varla ímyndað mér mann sitja í mak- indum og teikna fánann á huröina. Hann hefur tekiö tússlitasettiö með sér niöur. Verið viö öllu búinn. En þessi fáni flutti mér sérstök skilaboö. Ég þekkti KK. Við höfðum, ásamt fleira fólki, verið saman í hópi feröa- fólks frá íslandi. Ferðin hófst í Lund- únum og eftir tveggja vikna dvöl þar hafði leiðir okkar KK skilið þótt báðir legðu, hvor í sínu lagi, upp í putta- ferðalag suöur um Evrópu. Ég fór frá Italíu suður til Grikklands og leitaði dyrum og dyngjum að íslenska skjald- armerkinu og „KK var hér” en Akrópólis var jafnhvít og síðustu tvö þúsund árin á undan og ekkert krot. Þetta var líka á dögum herforingja- stjórnarinnar og sá sem dirfðist að krota á veggi var talinn vera þjóðhættulegur andstæðingur og um- svifalaust tekinn til yfirheyrslu, settur í fangabúðir og trakteraður á ýmsu ógnarstjórnagóðgæti. Seinna komst ég að því aö KK hafði reyndar komið til Grikklands. En hann hafði ekki fundiö í sér neina óviöráðanlega löngun til þess að tjá sig í landi Pipinelis og Papadopoulusar. Kannski ekki fundið nógu skemmtilegt klósett. Reyndar sá ég ekkert krot þar í landi, þótt elsta krot heúnsins sé grískt og krot á veggi sé einatt hápólitískt og notað til þess að skensa kúgara. LIFI TÍTÖ Næsta krot sem ég minnist var líka á salernisvegg. Það var í Belgrad í Júgó- slavíu fyrstu dagana í apríl 1975. Ég var fyrir tilviljun staddur á stúdenta- ráðstefnu þar og reyndi eins og ég gat að flytja málstaö íslands í landhelgis- málinu, enda ráðstefna þessi um nýt- ingu auðlinda og skiptingu heimsins gæða. Vilhjálmur Hjálmarsson hafði líka styrkt mig til ferðarinnar. En hvort sem það var vegna þessara tengsla minna við ríkisstjórnina eða bara hugleysis þorði ég ekki að krota svívirðingar um breska sjóherinn og aðra nýlendukúgara á klósetthurðir í Belgrad. Þar var líka erfitt að finna pláss. Þarna voru allir veggir útkrot- aðir. Eg kunni bara eina setningu í serbó-króaH<;lr" ‘ii' pf Lnrtpisi við lesendur ætla að sleppa hér, svo ég skildi ekkert af þessu kroti. Eina setningu skildi ég þó. Það var algeng- asta setningin í öllu veggjakroti í Bel- grad: „Viva Tito.” Hann var greini- lega vinsæll karlinn en þrátt fyrir þessar langlífisóskir aðdáenda sinna dó hann nokkrum árum seinna, hund- gamall. Og stjórnmál eru reyndar eitt af aðalviðfangsefnum þeirra óþekktu listamanna sem laumast til þess að koma hugsunum sínum á framfæri á veggjum borganna. Þetta er óvinsæl iðja. Hvort sem krotarar þjóna lund sinni um nætur eöa ráðast til atlögu um hábjartan daginn eru þeir hundeltir af vöröum laga og réttar og þeim sem eiga vegginn. Stundum er þetta hættu- legt. Stjórnmálamenn í Reykjavík voru handteknir við að sprauta skuggum á götur. Ritstjóri vikublaðs var tekinn höndum viö að líma upp auglýsingu um hljómsveit sem hann var í. I báðum tilvikum var söku- dólgunum sleppt. Islenska lögreglan sinnir að sjálfsögðu erindum þeirra sem eiga götur, veggi og hús og kæra sig hvorki um hveitilímd jassplaköt né skugga af fórnarlömbum kjarnorku- sprengjunnar í Hírósíma. En laganna verðir í Reykjavík eru kurteisir dreng- ir flestir og láta sér nægja að áminna fólk föðurlega. HARÐNESK JULEGIR HETTUMÁVAR En þeir eru ekki alltaf svona meyrir, hettumávarnir. I Ameríku er þeim víst margt betur gefið en nærgætnin og blíðan í garð þeirra sem grunaðir eru um óskunda og lögbrot. Fyrir örfáum árum lést maöur af áverkum sem hann hlaut í viöureign við lögreglu í New York og eru það engin tíðindi. En maðurinn var handtekinn við að krota á vegg á brautarstöð neðanjarðar. Um þessar mundir standa einmitt sem hæst réttarhöld vegna þessa. Lög- regluþjónn er kærður fyrir morð á manninum. Ekki veit ég hvað hann var að skrifa. En neðanjaröarlestin í New York er heimsfræg fyrir krot. Satt að segja er sums staðar varla lófastór blettur eftir auður. Veggjakrot er nánast fræðigrein í enskumælandi löndum og sumir, sem það hafa stund- aö, hafa seinna orðið frægir listamenn. En satt að segja er mest af því sem gefur að líta á veggjum bara venju- legur sóðaskapur, reyndar alls ekki nýr af nálinni. Trúlega hefur krotið fylgt mannkyn- inu frá örófi alda. Samkvæmt hefð- bundnum skilgreiningum er hið elsta 4 Víkan 40. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.