Vikan - 03.10.1985, Blaðsíða 33
Klifrað upp úr Bjarnarfirði.
Frá Ingólfs-
firði
á Ströndum
til Aðalvíkur
á Horn-
ströndum
Gengið á fjall
og annað
Það finnst engum gott að hlaupa á sig en fjöldi fólks
gengur á fjöll og kann því vel. Hér á landi eru margir
valkostir fyrir þetta fólk og eru Hornstrandir einn
þeirra. Þær hafa notið mikilla vinsælda meðal
göngufólks enda einn af fáum afskekktum stöðum á
landinu utan hálendisins.
Drangar séðir úr Drangavik.
I júnímánuði í sumar gekk
undirritaður ásamt félaga sínum,
Arnþóri Gunnarssyni, um þessar
slóðir. Vorum við nokkru fyrr á
ferð en þorri ferðafólks og utan
þess tíma sem djúpbáturinn
Fagranes siglir þarna. Miðuðust
áætlanir okkar að nokkru við
þetta. Algengast er að fólk taki
djúpbátinn frá Isafirði, sigli með
honum til einhvers staðar á Horn-
ströndum og taki hann til baka
annars staðar. Við höfðum hins
vegar þann hátt á að fljúga með
áætlunarflugi Arnarflugs að Gögri
á Ströndum, ganga þaðan noröur
að Horni og síðan vestur í Aðalvík
á Hornströndum.
í þessari grein er hugmyndin að
lýsa ferð okkar félaga og er sá
háttur hafður á aö greina
nákvæmar frá fyrsta áfanga
hennar en þeim síðari. Er það
gönguleiðin úr Ingólfsfirði á
Ströndum í Reykjafjörð sem fær
sérstaka umfjöllun. Varðandi
framhaldið er vísað til ágætrar
bókar Snorra Grímssonar,
Gönguleiðir á Hornströndum og
Jökulfjörðum, sem bókaútgáfan
Örn og Örlygur hefur gefið út. Þar
að auki er þeim sem hyggja á
ferð þarna bent á göngukort Land-
mælinga af Hornströndum og ná-
grenni.
Má muna sinn fífil. ..
Frá flugvellinum á Gjögri
fengum við bílfar í Norðurf jörð en
þaðan liggur vegur til Ingólfs-
fjarðar. Hann liggur að gamalli
síldarverstöð sem stendur við
bæinn Eyri. Verstöðin má muna
sinn fífil fegri. Hún minnir mjög
á sviðsmyndina í kvikmynd
Hrafns Gunnlaugssonar, Blóð-
rautt sólarlag, sem tekin var í
Djúpuvík, litlu sunnar á
Ströndum. I Ingólfsfirði voru á
sínum tíma reistar tvær síldar-
verksmiðjur, jafnmargar bryggj-
ur, verðbúðir, skemmur og
íbúðarhús. Byggingarnar eru nú í
dapurlegri niðurníðslu. Það sama
er að segja um vörubifreiðar og
sjálfrennireiðar sem hvíla fjarri
áhugasömum fornbílaaðdáend-
um. Þrátt fyrir allt er óhætt að
fullyrða að það sé gaman að skoða
sig um á Eyri.
Þaðan liggur akvegurinn inn
Ingólfsfjörðinn. Ur botni hans er
Myndir: Jón Karl Helgason
Texti: Jón Karl Helgason
Við bjargbrún á Horni.
32 Vikan 40. tbl.
40. tbl. Vikan 33