Vikan - 03.10.1985, Blaðsíða 38
Einkaspá fyrir hvern dag vikunnar:
Hvað segja
afmælisbarnið?
Albert er maður vikunnar
Annars heitir hann fullu
nafni Albert Sigurður Guð-
mundsson og fæddist í
Reykjavík 5. október 1923. Al-
bert varö fyrst frægur fyrir
að leggja fyrir sig atvinnu-
mennsku í knattspyrnu úti í
hinum grænu löndum. Seinna
sneri hann sér alfarið að
kaupmennsku og stjórnmál-
um, hefur setið í borgarstjórn
í Reykjavík og er núna fjár-
málaráðherra í stjórn Stein-
gríms Hermannssonar. Til
hamingju með afmælið, Al-
bert.
Og það eru fleiri fæddir i
þessari viku:
Séra Ingólfur Ástmarsson
fæddist 3. október 1911.
Snorri Björnsson, prestur á
Húsafelli, var fæddur 3. októb-
er 1710. Hann lést árið 1803.
Stefán Guðmundur Guð-
mundsson skáld, öðru nafni
Stephan G., var fæddur 3.
október 1853. Hann dó árið
1927.
Alexander Stefánsson félags-
málaráðherra fæddist 6. októb-
er1922.
Albina Hulda Thordarson arki-
tekt fæddist 8. október 1939.
John Lennon hefði orðið 45
ára þann 9. október. Hann var
myrtur árið 1980.
3.
OKTÓBER
Skapferli
Afmælisbörn dagsins eru sérlega ljúf
og vel siðuð. Þau leggja meira upp úr
því að koma vel fyrir í vinahópi en að
halda uppi fjörugum samræðum sem
gætu valdiö deilum. Þau vilja mikið á
sig leggja til aö haida frið við allt og
alla, þetta er grundvallaratriði í skap-
gerð þeirra og þau eru afskaplega frið-
elskandi og dreymir um fagurt mann-
líf allra jarðarbarna.
Lífsstarf
í samræmi viö skapgerö sína velja
afmælisbörn dagsins oft rólega og
átakalausa vinnu en dæmið gengur
ekki alltaf upp því meö því metnaöar-
leysi sem getur fylgt þessu geta einnig
komið ytri áhyggjur í starfi, lítill frami
og lág laun. Þeim er gjarnt aö skipta
frekar um starf en að lenda í átökum í
því sem þau eru í. Við góðar aðstæður,
til dæmis ef saman fara góð menntun
og skilningsrík fjölskylda, lítur dæmið
bjartara út, einnig ef afmælisbörn
dagsins fara út í listir, þá njóta þau
velgengni og munaðar svo framarlega
sem hæfileikarnír eru til staðar.
Ástalíf
Einnig í ástum kemur fram tilhneig-
ing afmælisbarna dagsins til að sneiða
hjá vandræöum. Þau láta gjarnan að
vilja annarra, eiga í raun létt með að
sjá fleiri en eina hlið á málum og nýtist
það betur í tilfinningamálum en til
dæmis starfi, þannig að ástir þeirra
eru oft á tíöum farsælar.
Heilsufar
Heilsan er viökvæm en lífsmátinn
yfirleitt mjög rólegur og yfirvegaður
þannig að afmælisbörn dagsins fara oft
réttilega mjög vel með sig. Verndun
andlegrar og líkamlegrar heilsu er oft
áhugamál afmælisbama dagsins.
38 Vikan 40. tbl.