Vikan


Vikan - 03.10.1985, Blaðsíða 30

Vikan - 03.10.1985, Blaðsíða 30
Slúður Reykjavíkursögur í steinkjallara „Það hefur lengi blundað í mér að setja upp leikverk byggt á Reykja- víkursögum Ástu Sigurðardóttur,” segir Helga Bachmann leikkona og leikstjóri. „Og þegar listahátíð kvenna var í bígerö ákvað ég að láta verða af því.” Með þessu verki mun Helga kynna fyrir hátíðargestum, ekki einasta nýtt leikhúsverk heldur einnig nýtt leikhús. „Veggirnir eru meira en hundrað ára gömul steinhleðsla og hluti af leikmyndinni, en einn uppáhaldsmyndhöggvarinn minn, Steinunn Þórarinsdóttir, hefur að öðru leyti séð um leikmyndina, eitthvað hvítt og eitthvað gagnsætt,” segir Helga og hlær við. Þessir steinveggir eru í Kjallaraleikhúsinu að Vesturgötu 3, í hluta þess húsrýmis sem konur hafa í sameiningu keypt nú nýverið. Umhverfi sem virðist eiga vel við smásögurnar sem Ásta Sigurðardóttir skrifaði á árunum 1951—1961 og komið hafa út á bók undir samheitinu „Sunnu- dagskvöld til mánudagsmorguns”. Leikverk Helgu er byggt á fimm þeirra en fjórir leikarar eru í aðalhlutverkum í verkinu, tvær konur, tveir karlar. Guðni Fransson hefur samið tónlist við verkið en andblær- inn í sögunum og samúð Ástu með öllu sem lifir er það sem tengir þessar sögur í heilsteypt verk. „Ég þekkti Ástu ekki,” segir Helga. „En ég man vel eftir henni. í eitt af fyrstu skiptunum sem ég fór í partí var mér boðin sígaretta og ég var svo vel upp alin að ég kunni ekki við að neita og stakk henni í töskuna mína. Á heimleiðinni mætti ég Ástu og hún spurði mig um sígarettu. Ég dró þessa upp úr veskinu mínu.” Það liggur við að þessi litli atburður gæti verið úr sögu eftir Ástu. Helga neitar því hvorki né játar, en þær mundu þetta atvik báðar þau skipti sem þær sáust aftur. Myndlistarkonan Joni Mitchell Þetta er ekki prentvilla, Joni Mitchell, sem hefur fram til þessa verið frægust fyrir tónlist sína, er að slá í gegn í New York sem myndlistarkona. Hún hélt tvær sýningar í einu um svipaö leyti og seinasta stóra platan hennar, Wild things run fast, kom út. Hún fékk lofsamlega dóma bæði fyrir plötuna og sýningarnar. Þaö er ekkert nýtt að myndlistarfólk fari út í tónlist og öfugt, þaö þarf ekki annað en líta á Talking Heads og Bryan Ferry og Oxsmá, Bruna BB og Jonee Jonee hér heima til að sjá þaö. Joni Mitchell var í myndlistarnámi er hún sló í gegn sem tónlistarmaður á sjö- unda áratugnum og hún er í hópi fárra sem hafa haldiö áfram á báöum brautum, með hléum þó. Ýmsir telja aö hápunktur ferils hennar hafi verið í samstarfi hennar við djassleikarann Charles Mingus um 1975 (platan sem var afrakstur þess samstarfs kom út 1976) en einmitt þegar hún var að vinna í því samstarfi fór hún af stað á nýjan leik í myndlistinni. Nú er hún búin að skapa sér gott nafn í hinum harða listaheimi á austurströnd Bandaríkjanna. 1 viðtali sem Guy D. Garcia tók við Joni fyrir tímarit Andy War- hole, Interview, spyr hann hana um áht hennar á vídeólistinni og vídeóskreytingu tónlistar, sem veröur æ snarari þáttur í allri tón- list jafnt hér sem vestanhafs. Hún segist lítiö horfa á þetta tónlist- arsjónvarp sjálf, ekki vera áskrifandi að þeirri rás sem mest iðkar þetta, MTV (það er einmitt sjónvarpið sem Dire Straits deilir hvað harðast á í laginu Money for Nothing). Henni finnst of mikill sadismi og ofbeldi í þessum vídeómyndum. Myndir Joni eru im- pressjónísk verk og allt annars eðlis, kannski myndræn hliðstæða tónlistarinnar sem hún semur, sem er blanda af djassi, rokki og bræðingi. 30 Vikan 40. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.