Vikan


Vikan - 03.10.1985, Blaðsíða 12

Vikan - 03.10.1985, Blaðsíða 12
Texti: Þórey Einarsdóttir Ljósmyndir: RagnarTh. Þar fer enginn í banka og slærvíxil Helga Briem de Mayen hitti manninn sinn og settist að í Mexíkóborg Fyrir um sjö árum fór ung stúlka úr Reykjavík, Helga Briem, til Mexíkó að læra spænsku. Dvölin varð heldur lengri en upp- haflega var áætlað því eins og oft vill verða kynntist hún ungum manni, gifti sig og settist að í Mexíkóborg. Maður Helgu heitir Sergio Mayen og þau eiga tvö börn, fimm ára strák sem heitir Esteban Dagur og tveggja ára stelpu, Karen Sonia. Hvernig er það fyrir unga stúlku úr Reykjavík að setjast að í jafnfram- andi umhverfi og Mexíkó, eignast börn og ala þau upp í órafjarlægð frá ætt- landi og fjölskyldu? Helga var hér í heim- sókn í sumar ásamt börn- um sínum, en þegar þetta birtist er hún komin aftur suður í hið sólríka Mexíkó. — Hvernig atvikaðist það að þú settist að i Mexíkð? Ég var að læra spænsku í útlendinga- deildinni í háskólanum þar eftir stúdentspróf. Ég var búin að vera þar í nokkra mánuði þegar ég kynntist manninum mínum sem er mexíkansk- ur. Við vorum búin að þekkjast í nokk- urn tíma þegar ég fór heim og fór að vinna hérna um sumarið eins og maö- ur gerir. Síðan fór ég út aftur og fór í skóla sem kennir hótel- og ferðaþjón- ustustörf. En svo átti ég fyrra barnið mitt og skólinn var svo strembinn að það var ómögulegt að stunda námið með barn svo ég hætti í honum. Síðan hef ég búið þarna en komið heim þrisv- ar með þessari heimsókn. — Varstu ekkert lengi að gera upp við þig hvort þú vildir vera þarna? Jú. Maðurinn minn og ég vorum hér í sex mánuði en honum tókst ekki að að- laga sig nógu vel og auk þess var hann að ljúka laganámi í Mexíkó. Eftir aö hafa verið í Mexíkóborg — ætli það búi ekki um 18 milljónir manna þar núna — þá fannst honum Reykjavík svo hræðilega lítil, þaö var svo fátt fólk úti á götu, bara ein og ein hræða á stangli. Svo kom hann um vetur sem voru mikil mistök hjá mér. Það var svo hryllilega kalt. Honum líkaði ekki nógu vel til þess aö byrja á því að læra íslensku og fara síðan út í eitthvert annað nám. Það var ekki eins og hann væri í verk- fræði eöa einhverju námi sem hann hefði getað notað í öörum löndum þannig að hann hefði orðið að byrja alveg upp á nýtt. Ég sætti mig bara við það þá að ég yrði að búa í Mexíkó og þá var bara að taka upp þá lífshætti sem þar tíðkast. Ég hélt jafnvel að hann myndi geta vanist því að búa hér. Ég vonaði það hálft í hvoru. Við komum Helga Briem de Mayen með börnin sín tvö, Esteban Dag sem er fimm ára og Karen Sonia, tveggja ára. hingað af því að mér gekk illa að að- laga mig lífinu þar. Ég saknaði svo fjölskyldunnar og íslands og alls, en þegar maður stillir sig inn á þetta þá getur maður það alveg. Ég ákvað bara að sætta mig við þá hluti sem fóru í taugarnar á mér og læra að taka því sem ég gat ekki sætt mig við. Óstundvísir Mexíkanar — og keyra eins og þeim sýnist — Hvafl var það sem þér fannst erfið- ast afl sætta þig við? Eitt af því sem ég man núna í augna- blikinu er til dæmis óstundvísi og óformlegheit... ef maður átti að mæta einhvers staðar kom manneskjan, sem maður átti að hitta, kannski 45 mínút- um of seint og það þótti allt í lagi. Hún var alveg í besta skapi þegar hún kom en maöur var sjálfur orðinn brjálaður á að bíða. En hérna og annars staðar þar sem ég hef verið, í Þýskalandi og Englandi, þá er þetta allt öðruvísi. Svo er það lögreglan sem maður getur borgað undir borðið og þaö þoldi ég ekki. Svo bara hvernig fólk keyrir, það er algjört brjálæði. Þar hefur enginn fyrir því aö gefa stefnuljós og þar er varla verið að hafa fyrir því að mála línur á göturnar vegna þess aö fólk keyrir bara eins og það vill. En ég vil hafa allt skipulagt. Ég er kannski bara svona gerð, ég veit þaö ekki, en fyrir manneskju eins og mig að búa í landi eins og Mexíkó! (Nú andvarpar Helga og hlær í senn.) Síðan var auðvitað erf- itt aö venjast þessu gjörólíka loftslagi, og loftið í borginni er ofboðslega meng- að. Borgin er niðri í dal og það eru fjöll allt í kring, og mökkurinn liggur yfir henni. Mengunin er svo mikil að veður- farið, sem venjulega hefur verið mjög stöðugt, er farið að breytast. En strax þegar maður kemur út úr borginni er loftiö miklu hreinna. Einn og hálfan tíma að komast niður í bæ — Búifl þið i úthverfi borgarinnar? Já, núna búum við í úthverfi en þaö er samt inni í borginni því það eru önnur hverfi enn utar. Ég þarf að aka í einn til einn og hálf- an tíma til að komast niður í miðbæ. Manni finnst það ekkert langt þegar maður býr þarna þó það virðist langt þegar talað er um þaö hér. Ég man að mér fannst langt að fara til Hveragerð- is hér einu sinni og það er ekki nema um 40 mínútna akstur frá Reykjavík. En maöur venst þessu. Ég er húsmóðir og heima með lítil börn en kenni að vísu dálítiö ensku, börnum sem eiga í erfiðleikum með námið. — Kennirfiu börnunum þinum ein- hverja íslensku? Já, ég tala alltaf íslensku við þau og þau við mig. Þau tala svolítiö bjagaö því ég er eina manneskjan sem talar við þau íslensku. Ef enska væri til dæmis móðurmál mitt gætu þörnin far- ið í enskan skóla. En þau heyra aldrei íslensku nema ef einhver kemur í heimsókn. Það er mjög gaman í þessu fáu skipti sem við komum hingað heim, þá geta þau talað við afa og ömmu og frænkur og frændur. Mér 12 Vikan 40. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.