Vikan - 03.10.1985, Blaðsíða 29
Merki vogarinnar hefur oft verið tengt
því hve skammt getur verið milli lifs og
dauða. Einnig eru tengsl talin vera milli
þessa stjörnumerkis og uppskerunnar í
Nílardalnum sem vegin var i uppskeru-
lok. Loks er vert að benda á að vogin er
tákn réttlætisins.
Helstu kostir voganna eru heillandi
framkoma, jafnaðargeð, góðsemi, ást-
leitni, hæfileikar til að finna málamiðlun
i hverju máli, hugsjónaeldur og fágun.
Gallarnir eru á hinn bóginn nokkur
tilhneiging til að sleppa auðveldlega frá
erfiðum verkefnum, einkum því sem
varðar mannleg samskipti, óákveðni
sem getur jafnvel virkað sem eða verið
fals, daðurgirni, áhrifagirni og óáreiðan-
leiki.
Vogir krefjast mikils af fólkinu í
kringum sig. Þær eru örlátar á sjálfar sig
en vilja að það sem þær geri sé metið að
verðleikum. Þær eiga yfirleitt auðvelt
með að tjá sig en erfiðara með að skilja
að ekki eiga allir eins létt með það. í
tilfinningamálum þurfa þær á mikilli
uppörvun og helst aðdáun annarra að
halda og leggja talsvert á sig til þess að
öðlast hana.
Einn af meginþáttunum í skapgerð
allra sem fæddir eru í vogarmerkinu er
hvað þeir leggja mikið á sig til að sleppa
við ósætti og deilur. Þeir vilja helst hafa
alla góða og líður best ef þeir geta fengið
alla til að líka vel við sig og hlýða sér, án
þess að taka eftir. Vogum hættir til að
lenda i mótsögn við sjálfar sig þegar þær
eru að reyna að falla öllum í geð, þær
segja kannski það heppilegasta á
hverjum stað og forða sér svo þegar
komið er í óefni. Óákveðni er oft talin
veikasti þátturinn í skapgerð voganna en
réttara væri að tala um linkind.
Vogum hentar mjög vel að bíða og sjá
hvað setur — og afskaplega illa að þurfa
að höggva á hnúta sem myndast geta í
mannlegum samskiptum. Þess vegna
gætu þær lent í að safna upp drjúgum
stafla af óleystum málum og reyna síðan
að koma ákvörðunum, eða alla vega
þeim óþægindum sem fylgja því að
framfylgja þeim, á aðra.
Stundum er vogum brigslað um leti
eða sérhlífni, venjulega að ósekju. Þær
eru rólegar í tíðinni, víkja sér að vísu
undan óþægilegum verkefnum ef þær
geta en eru lúsiðnar og lunknar við að
leysa mál á einfaldan hátt. Þeim tekst
venjulega að gera það sem þeim er falið
þó þær finni stundum aðrar leiðir að
markinu en títt er.
Heima við eru vogir á heimavelli. Þær
eru skemmtilegar heim að sækja og
hafa meira gaman af að taka á móti
gestum en fara í heimsóknir.
Vogir eru oft mjög greint fólk, þær
eiga létt með að sjá hluti frá öllum
hliðum og það sem er veikleiki
tilfinningalega getur verið styrkur vits-
munalega. Réttlætiskenndin er í góðu
lagi þó þeim láti betur að dæma en vera
dæmdar. Þeim vogum sem leggja sig
fram um að gera upp hug sinn í hverju
máli vegnar yfirleitt betur en hinum sem
láta undan vingulshættinum.
Yfirleitt er vogin félagslynd og glaðleg
í framkomu, skapið fremur gott og
áhyggjur plaga hana ekki oft. Vogir eru
oft með hóp vina út um allt sem þær
skrifast á við eða hafa samband við
reglubundið og ræða stærstu sem
smæstu mál við þá áður en þær taka
ákvarðanir.
Ástin er einn af grundvallarþáttunum í
eðli vogarinnar. Hún lifir fyrir ástina, er
blíðlynd en stundum líka fjöllynd. Hún
ætti að velja sér umburðarlyndan maka.
í starfi eru líkur á að vogin halli sér að
einhverju sem kemur til móts við
fegurðardýrkun þá sem flestar vogir
þekkja. Vogum lætur mjög vel að vera í
tískuiðnaði, auglýsingaiðnaði, utanrikis-
þjónustu, viðskiptum eða listum eða
listiðnaði. Þær sækjast eftir störfum
sem gefa mikið í aðra hönd og eru
umvafin glæsileik. Þær sætta sig sjaldan
við lág laun en frekar það þó en niður-
drepandi umhverfi. Ef þær verða að velja
á milli góðrar vinnuaðstöðu og góðra
launa er líklegra að þær velji hið fyrr-
nefnda. Það getur komið sér illa því
flestum vogum er eðlilegt að vera
eyðslusamar. Vogin velur sér nánast
aldrei starf sem einyrki.
Vogir eru í æsku alger draumabörn,
þæg og meðfærileg og afskaplega
kurteis. Það á að mörgu leyti vel við þær
að vera í hlutverki barnsins alla ævi og
láta aðra ákveða fyrir sig stefnuna. Hins
vegar vakna þær stundum upp við
vondan draum þegar að því kemur að
þær hafa lent í einhverju sem er þeim lítt
að skapi.
Vogum lætur mun verr að vera í hlut-
verki uppalandans. Þær eiga nógu erfitt
með að ákveða fyrir sjálfar sig þó þær
þurfi ekki að vera að ala upp barn í
leiðinni. Sem betur fer er fátítt að vogir
giftist vogum, þó það sé til í dæminu,
þannig að foreldrahlutverkið lendir oft á
maka vogarinnar. Þær láta sér það vel
líka og ná oft góðu vinasambandi við
börn sín.
40. tbl. Víkan 29