Vikan


Vikan - 03.10.1985, Page 34

Vikan - 03.10.1985, Page 34
genfíiö Upp bratta hjalla, yfir 300 m háa heiöi og niður í Ofeigsf.jörð. Þarna er sagt skilið við siðmenninguna að því leyti að inenn eru ekki lengur í greiðu vegasambandi við umheiminn. Fram undan eru aö vísu gömul býli þar sem fólk dvelur á sumrin. Þessa fyrstu nótt tjölduöum við rétt ofan við býlið í Öfeigsfirði. Þegar við lögðum upp morguninn eftir voru íbúarnir í fasta svefni og ekki þótti sæma að raska ró þeirra. Augu undan landi Fram undan þennan dag biöu nokkur vatnsföll og voru sum þeirra straumhörð. Best er að taka aukaskó með sér til aö komast yfir árnar og ekki sakar að hafa stuðning af göngupriki. Það þarf ekki aö vera merkilegt; í okkar tilviki var notast við kústsköft. Fyrsta áin er HúsadaJsá í Öfeigsfirði en sú næsta, Hvalá, er brúuð. Auðvelt er að rata þarna þar sem leiðin liggur með ströndum fram og á köflum eru slóðar og kindagötur. Á svæðinu eru sellátur og sáum við fjölmarga seli. Þeir stungu sér í sjóinn þegar við nálguðumst og horfðu á okkur forvitnum manns- augum skammt undan landi. Sunnan við Hvalá var reytingur af kindum á beit en við brúna er girðing, þannig að þær eru sjald- séðar fyrir norðan. Þessa gætir mjög á gróðrinum sem er einstaklega fjölbreyttur og blómlegur. Blautir strigaskór Aftur þarf að taka upp striga- skó, nú til að vaða yfir Dagverðar- dalsá og á ný í Eyvindarfirði. Ain þar er mjög straumhörð og getur verið varasöm. A henni er vað á tveimur stöðum. Má merkja það neðra af kaöli við klett á árbakkanum. Það efra er ofan við foss í ánni. Við völdum neðra vaðið og komumst klakklaust yfir. Ur Eyvindarfirði er gengið í Drangavík. Þar opnast til- komumikið útsýni til Dranga, sex dranga með djúpum skörðum á milli. Fróðir menn segja að þeir njóti sín best ef maður stendur viö Drangavíkurbæinn þegar sól skín úr vestri. í Drangavík fellur Drangavíkurá og er best að vaða hana á fjöru. Þaðan er gengið yfir Drangaháls, 400 m háan, niður að bænum Dröngum. Áður en þangað var komið fundum við félagar okkur tjaldstæði, úrvinda af þreytu eftir erfiðan dag. Rif Drangajökuls Það var ekki fyrr en snemma morguninn eftir að við örkuðum yfir túniö á Dröngum. Undan landi vögguðu tvær trillur og eigendur þeirra voru væntanlega í svefni innanhúss en eins og fyrri daginn köstuöum við ekki kveðju á kóng eða prest. Fram undan var mynni Bjarnarfjarðar. Leiðin var fremur greið eftir vegarslóða ofan við fjöruna. Tvær ár urðu á vegi okkar, báðar vatnslitlar og litlir farartálmar. Bjarnarfjörðurinn gengur djúpt inn í landið og í botni hans er jökulá. Vatn hennar er runnið undan rifjum Drangajökuls en hvíta snjóhettu hans ber við himin í botni dalsins. Mælt er með því við ferðamenn að vaða ána á fjöru, þar sem hún minnist viö Breska varðstöðinofan við Sæból. hafið. í þessum sporum stóðu okkur tvær leiðir til boða. Annars vegar er gönguleiö út með Bjarnar- firðinum norðan megin, yfir lága heiði og ofan í Skjalda-Bjarnar- vík. Þaðan má ganga að baki Geirólfsgnúps í Reykjafjörð. Þarna eru sýslumörk ísafjarðar- og Strandasýslu. Hinn kosturinn er að taka stefnuna beint á Reykjafjörðinn úr Bjarnar- firðinum, sem við og gerðum. Enn er klifin brött heiði. Tals- verður snjór var þar efra og er eflaust villugjarnt í þoku. Síðdegis sáum við ofan í Reykjafjörð. Skýjum ofar Við vorum komnir á Hornstrandir eftir tveggja og hálfs dags göngu. Þoka kom á móti okkur næsta dag á leið úr Reykjafiröi í Furufjörð. Hún fylgdi okkur fyrir Bolungavíkur- ófæru, í Bolungavík og yfir Göngu- mannaskörð. Þar rofaði aðeins til. Akváðum við að freista þess að ganga þokuna af okkur og héldum hvor á sinn tindinn beggja vegna Göngumannaskarða. Þetta hafð- ist þannig að von bráðar stóðum við í sólskininu skýjum ofar og sáum fjallstoppa gnæfa upp úr hér og þar. Að baki var Geirólfsgnúpur en fram undan efstu gnípur Hornbjargs. Það var hinn langþráði áfangastaður enda rómaður fyrir náttúrufegurð. Þetta er líkast til orðið fullhá- tíðlegt og því mál að koma sér nið- ur úr skýjunum og þreifa fyrir sér í þokunni niður hlíðar Barðsvíkur. Hárin kyrr á höfði Daginn eftir létti smám saman til og síðdegis sátum viö í stofu hjá vitavarðarhjónunum í Látravík. Þar gistum við næstu nótt en lögð- um snemma upp morguninn eftir. Veður var kyrrt og bjart. Við gengum í Hornvík og skildum bak- pokana eftir við bæinn Horn. Lungann úr deginum sátum við á bjargbrúninni og fylgdumst með flugi fugla; máva, fýla og teista. Hár bærðist ekki á höfði okkar; ekki það að þau væru svona stíf af skít heldur var logn og blíða. Að kvöldi gistum við í skála Slysavarnafélagsins við Höfn í Hornvík. Næsta dagleið var stutt; úr Hornvík í Hlöðuvík um Skála- kamb. Upphaflega ætluðum við okkur tvær vikur í ferðalagið og var hugmyndin að ná fyrstu ferð djúpbátsins úr Aðalvík að þeim loknum. Það tók hins vegar aðeins 8 daga aö komast í Hlöðuvíkina. Frekar en að þvælast í viku um ókönnuð svæði ákváðum við að ganga í Aðalvík á tveimur dögum og koma þangað á laugardegi. Þótti okkur líklegast að bátsferðir væru milli ísafjarðar og víkurinn- ar þá um helgina. Mjög sögulegt Á ný var þoka á Hornströndum og réð hún því að við héldum úr Hlöðuvík í átt að Hesteyri í Jökul- fjörðum. Þar var heiðríkja og sól- baðsveður sem við nutum í ríkum mæli. Þessi dagur var að mörgu leyti mjög sögulegur en ekkert veröur látið uppi um hann nánar. Síðasta dag fararinnar gengum við yfir Sléttuheiði og ræstan veg að Sæbóli í Aðalvík. Við áðum við prestssetrið Stað og mynduðum hvönnina sem var sú hæsta sem við höfðum séð fram aö þessu. í Aðalvík hittum við fólk í sumarbú- stöðum og þar hljóp á snærið hjá okkur; undir kvöldið var báts að vænta að ná í fólk. Þegar sýnt var aö ferðalaginu væri að ljúka neyttum við síöustu kraftanna til að ganga á fjallið of- an við Sæból. Þar var bresk varð- stöð á striðsárunum. Lögðu Bret- arnir veg og síðan dráttarbraut upp fjallið. Þarna er vígi gott, lóð- rétt björg í sjó fram á flesta vegu. Þrjár litlar loftvarnabyssur stóðu í kringum hálfhrunda bragga en handan Isafjarðardjúpsins sást til Bolungarvíkur og fjallsins sem brátt verður hertekið af amerískri radarstöð. 34 Vikan 40. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.