Vikan - 20.02.1986, Page 17
Eftir Kristin Jón Guðmundsson
RagnarTh. tók myndirnar
„Svavar hafði dembt út úr sér
snjöllum bingósögum allt kvöldið og
klappað duglega á milli umferða fyrir
hinum heppnu og sjálfum sér á
endanum meðan glaðbeittir lions-
menn með Ólaf Gauk í broddi fylk-
ingar gengu syngandi um salinn og
seldu spjöld."
„ - Gerirðu þér þá grein fyrir
eyðslunni á tuttugu árum? spurðu
tíðindamenn ringlaðir af undrun.
Sonja kvaðst ekki hafa hugleitt það
neitt sérstaklega, enda láta menn
hverju bingói nægja sína þjáningu -
eða gleði."
„Mikil nautn, hvernig spyrðu,
maður? Þetta er algjör manía, geð-
veiki hreint og beint."
„ - Þannig að þetta er næstum
jafnfjárfrekt og alkóhólismi?
„Ekkisiður, ekkisíður, vinur
minn.
„Konan drepur mig alveg þegar
hún sér þetta. Ég átti að vera að leita
mérað vinnu i kvöld..."
„Hvað, hún sér aldrei Vikuna,"
sagði kollegann hughreystandi,
greinilega sannur vinur í raun.