Vikan


Vikan - 05.03.1987, Qupperneq 14

Vikan - 05.03.1987, Qupperneq 14
Lesendur skrifa María stóð við stofugluggann og horfði út í garðinn sem var hulinn snjó. Öðru hverju gerði skörp él svo það dimmdi í stofunni. Hún sá varla grilla í næsta hús, þó ekki væri langt á milli. Þulurinn í útvarpinu var að lesa hádeg- isfréttir. Hún lagði við eyru er hann sagði: Það hörmulega slys varð síðla nætur að sumarbústaður utan við borgarmörk- in brann til kaldra kola og fórust þar tvær manneskjur. Bústaðurinn hafði ekki verið notaður um árabil. Er slökkviliðið í Reykjavík kom á vettvang var hann alelda. Reykkafarar fóru inn í bústaðinn og fundu þar karl og konu og voru þau, eins og fyrr greinir, bæði látin. Þau hétu Alviðra Jósafatsdóttir og Grímur Móses- son. Maria fann að augu hennar fylltust tárum. Svona hafði þá ævi þeirra endað, þessara tveggja umkomuleysingja í ver- aldarinnar volki. Hún gekk inn i svefnherbergið og horfði á krossmark sem hékk yfír rúm- inu. Svo gekk hún aftur fram í stofu og út að glugganum. Hugurinn hvarflaði sex ár aftur í tímann. Hún hafði staðið við þennan sama glugga og nú tóku minning- arnar völdin í huga hennar. Þar sem María stóð við stofugluggann og horfði út var lítt vorlegt um að litast, þó vorið ætti að vera við bæjardyrnar samkvæmt dagatalinu. Henni sýndust hálfbyggð húsin, kúra sig innan um snjóskaflana, hálfhnuggin. Það var sem þau hnipruðu sig saman til að verjast kuldanum og snjókófinu sem þyrlaðist upp í norðanvindinum. Glerlausir gluggar voru eins og myrkir hellar undir stórfenglegum brúnum úr klaka og það fór ósjálfrátt hrollur um Maríu þar sem hún stóð. Þetta hafði verið óvenju kaldur og snjóþungur vetur. Maríu þótti hann hafa verið bæði langur og strangur. Þau höfðu flutt í þetta hverfi síðastlið- ið haust, hún, maðurinn og börnin. Þau voru ein af mörgum sem höfðu farið út í það að byggja og flutt inn strax og hægt var. Það greip hana einhver leiðatilfínning við að horfa á öll þessi hálfbyggðu hús. Einstaka hús voru íbúðarhæf, eins og þeirra, og svo voru allir grunnarnir sem stóðu ekki upp úr snjónum. Þegar snjó- inn leysti og allt vatnið færi að síga niður í jörðina yrði svæðið eitt óendanlegt drulluhaf, mold og vatn - vatn og mold. Það var laugardagur og klukkan farin að ganga tvö. María reif sig upp úr þess- um þönkum og fór að sinna yngsta barninu, tíu mánaða telpu. Það var kom- inn timi fyrir miðdegislúrinn hennar. Eldri börnin voru að leika sér úti í snjónum. Þeim fannst veturinn hvorki langur né leiður. Börn hafa yfirleitt þann dásamlega eiginleika að aðlagast fljótt og vel, fái þau leikfélaga á nýjum stað, og af þeim var nóg. María brosti með sjálfri sér, lyfti litlu telpunni upp og fór með hana inn á bað- ið til að skipta á henni. Svo lagði hún telpuna þurra og ánægða í bólið hennar og náði í „besta vininn", fullan af volgri mjólk. Barnið saug, fyrst ákaft og krefj- andi, síðan hægar. Það varð lengra milli soghljóðanna, svo hættu þau alveg. Litlu varirnar lágu í hvíld utan um túttuna. Andardrátturinn varð léttur og jafn. María beygði sig yfir rúmið, tók pelann varlega burtu, breiddi betur yfir telpuna og.gekk hljóðlega út úr herberginu. Maðurinn hennar Maríu var að vinna og hún átti ekki von á honum heim fyrr en um kvöldmatarleytið. Hún hugsaði með sér að það væri best að nota tímann úr því það væri svona rólegt og klára að saurna sængurfötin barnanna. Hún var búin með eitt sett, byrjuð á öðru en hið þriðja var ósnert. Brátt brunaði sauma- vélarnálin yfir efnið. Þá glumdi dyrabjall- an. - Þetta eru krakkarnir, þeim er orðið kalt, hugsaði María og stóð upp. En við dyrnar stóðu karl og kona sem hún hafði ekki séð áður. Þau voru blá- rauð af kulda og vansæl á svipinn. Við fætur þeirra voru margir plastpokar bundnir saman með snæri, en maðurinn hélt á töskugarmi. Maðurinn ræskti sig þegar konan gaf honum olnbogaskot. Afsakið ónæðið, kæra frú, en við erum í vandræðum. - Já, miklum vandræðum, bergmálaði konan. - Þú gætir kannski gefið okkur vatns- sopa að drekka, frú min, hélt maðurinn áfram og rétti ögn úr sér. - Megum við ekki koma inn úr þessum déskotans kulda? spurði konan og sté um leið inn fyrir. María hörfaði undan. Hvað er ykkur á höndum? spurði hún. - Lofaðu okkur að hlýja okkur smá agnar stund, ljósið mitt, sagði konan og tók í handlegg mannsins og kippti honum inn í forstofuna. Þið getið fengið að drekka og hlýja ykkur stundarkorn, sagði María, en ég er óvön að hleypa ókunnugum inn í mín hús og maðurinn minn verður ábyggilega ekkert hrifmn af slíku. Henni þótti vissara að nefna manninn sinn, eins og hann væri alveg á næstu grösum. Fólk var flutt inn í húsin beggja vegna og krakkahópurinn var að leika sér á hólnum beint á móti. Það var víst ekkert að óttast. - Ég skil þig, frú mín, sagði maðurinn og linnti ekki kurteisinni. - Aliur er var- inn góður en við erum engir ribbaldar, svo mikill mannþekkjari ert þú áreiðan- lega, kæra frú. Þau klæddu sig í flýti úr skógörmum og utanyfírflíkum. Konan var í hverri flíkinni utan yfir annarri, pilsum, kjólum og peysum. Þetta gerði hana að vonum allfyrirferðarmikla. En hún var með dökkt, stuttklippt hár og þegar hún horfði á Maríu sá hún að augu konunn- ar voru falleg og flauelsbrún. Maríu sýndist konan vera komin vel yfir miðjan aldur og maðurinn enn eldri. Hún fann sterkan vínþef leggja frá þeim þegar þau voru komin inn og leist illa á. - Þetta er ekki í fyrsta sinn sem vor- kunnsemin hleypur með þig í gönur, Maja litla, hugsaði hún með sjálfri sér og hélt áfram að virða komufólkið fyrir sér. Maðurinn var veðurbarinn, með þunn- ar gráar hártjásur og tanniítill. Augun voru flóttaleg og skimandi og hann var verulega illa til reika. Fötin voru skítug og krumpuð eins og ekki hefði verið far- ið úr þeim vikum saman. Önnur höndin var blóðstorkin og um hana vafið svartri tusku. Berfættur var hann á öðrum fæti og draghaltur. - Hvað er að þér í fætinum? spurði Maria. Það er andskotans hælsærið sem er að drepa mig, stundi karlinn og lyfti fæt- inum aftur undan sér svo María gæti séð blóðugt fleiðrið. Þú verður að fá eitthvað um þetta, sagði María. - Já, en nú væri gott að fá heitt kaffi, tautaði karlinn og var búinn að sleppa frúartitlinum í bili. Konan var sest í símastólinn en karlinn skimaði í kringum sig. - Þú ert búin að fá síma, sagði hann. Við þyrftum að fá að hringja. Svoleið- is er að við vorum að skemmta okkur í nótt, hjónin, það var alveg sérstakt til- efni, bætti hann við í trúnaðarrómi. - Við erum að leita að bílstjóraskepn- unni sem keyrði okkur eitthvað, ég man bara ekki hvert. - Já, greip konan fram í. Við eigum nefnilega hjá honum peninga. Við vorum með svo mikið á okkur að við báðum bílstjórann að geyma svo við eyddum ekki öllu en svo gleymdum við að taka 14 VIKAN 10. TBL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.