Vikan - 05.03.1987, Blaðsíða 45
Póstkort sem kemur að góðum notum.
Spyrjið
ömmu hvort
hún kannist
við þennan
gæja.
er gríman tilbúin - og enginn á eins.
Þegar þið gerið svona grímu getið
þið annaðhvort ákveðið áður hvernig
hún á að vera, karl eða kerling, eitt-
hvert dýr, geimfari eða eilthvað annað,
eða þá látið útlitið ráðast um leið og
gríman er búin til.
En það eru til auðveldari aðferðir.
Hægt er að klippa út grímu úr þunnu
kartoni, bara fyrir augun (eins og stór
gleraugu) og lita hana skemmtilega.
Þá er upplagt að líma á hana kögur svo
að hún hylji andlitið svolítið betur.
í mörgum leikfanga- og ritfanga-
verslunum fást ódýrar, einlitar grímur
sem hægt er að breyta og bæta með
því að líma og hefta eitthvert dót á
þær, til dæmis litlar fjaðrir, pallíettur,
pappírsblóm, ræmur úr silkipappír eða
eitthvað annað.
Ein aðferð, sem þið hafið kannski
prófað, er að nota stóran bréfpoka fyr-
ir grímu. Þá klippið þið göt fyrir augu,
nef og munn, litið pokann með vaxlit-
um og límið kannski pappírseyru og
hártopp úr garni á pokann. Það má
að sjálfsögðu ekki nota plastpoka því
eins og þið vitið má alls ekki láta plast-
poka yfir höfuðið. Þeir eru auk þess
ómögulegir til þessara nota.
Að lokum er hér mynd af sniðugum
póstkortum sem fengust í Pennanum
fyrir nokkru. Ef þau fást ekki lengur
er bara að búa sér til póstkort sjálfur.
Tíugátur
1. í hvaða húsi vill enginn
búa?
2. Hvað er það sem flýgur,
hefur íjóra vængi og seg-
ir bra?
3. Hvað er það sem ég á
en þú notar meira en ég?
4. Hvaða blað er ekki hægt
að rífa?
5. Stundum hef ég höfuð
og stundum ekki. stund-
um er ég með tagl en
stundum ekki. Hver er
ég?
6. Hvernig er auðveldast að
kveikja bál tneð aðeins
tveimur spýtum?
7. Hvað er sterkara en eld-
urinn?
8. Hvort er þyngra, eitt kíló
af sandi eða eitt kíló af
svampi?
9. Hvaða fugl er leiðinleg-
astur allra?
10. Hvaða karl hefur aldrei
verið barn?
Svör:
•uut[jn>i9fus '01
•uu'ngnjQBH ‘6
jSuncjujBf -g
•QiujBA 'l
•.tnjýdspio Rjofsj ‘9
muo>[JKH 'S
'QHqsjiuH >
•tjtm qiujkm
•.inpua J3!A t 7
••snqtqnx \
Umsjón:
Hólmfríður
Benediktsdóttir
Myndir: Ragnar Th.
10. TBL VIKAN 45