Vikan - 05.03.1987, Blaðsíða 39
„Menn geta byggt miðbæi hér
og miðbæi þar en eins og ég
sagði þá er og verður ekki nema
einn miðbær í Reykjavík og það
er þessi garnli miðbær. Hitt er
svo annað mál að það er eins
og að leika sér með eld að hafa
skoðanir á svona málum. Það
er með þau eins og öll mál á
íslandi að þau verða að tilfinn-
ingamálum. Sjarminn við
þennan gamla miðbæ er að
mínu viti aðallega hvað hann
er óreglulegur eða ósamstæður.
Göturnar eru ekki eins og gil.
Mér væri sárt um sum gömlu
húsin þó þau séu orðin léleg.
Ég vildi gjarnan auka mannlífið
í miðbænum. Ég held að aukin
íbúðabyggð í gamla miðbænum
myndi vera til góðs. Eftir sex á
kvöldin eru húsin hér meira og
minna dauð og þetta er bara
skemmtanahverfi. Lætin hér eru
oft alveg yfirgengileg og satt að
segja er ég alltaf skíthræddur
um skólann. Þetta held ég að
myndi breytast ef íbúðabyggð
hér yrði aukin."
Eftir að hafa rætt um gamla
bæinn og endurnýjun gamalla
húsa og fleira í þeim dúr vend-
um við okkar kvæði í kross og
ég spyr Guðna hvað honum
finnist um bröltið í Sverri Her-
mannssyni.
„Heyrðu, þetta er pólitísk
spurning." Ég fæ ekki betur séð
en að Guðni glotti meinlega í
þetta skiptið. „Attu við eitthvað
sérstakt? Ég hef alltaf gaman af
Sverri, hann er hress, þó ég sé
afskaplega óhress með þetta
frumvarp hans til laga um fram-
haldsskóla. Ég er einmitt að
semja álitsgerð um það og er
alltaf að verða harðorðari eftir
því sem ég sit lengur yfir henni.
I nefndinni, sem vann frum-
varpið, sat ekki einn einasti
maður frá framhaldsskólunum.
Einu skólamennirnir í nefndinni
voru fyrrverandi skólastjóri
Fjölbrautaskóla Suðurnesja og
fræðslustjóri Suðurlands á
grunnskólas.tigi. Hinir eru allir
bæjar- eða ríkisfúnksjónerar."
Nú hringir skólabjallan einu
sinni enn og minnir mig á hvað
ég er búin að taka mikið af tíma
Guðna þennan morguninn. En
áður en ég fer verð ég að spyrja
um eitt sem við veltum mikið
fyrir okkur hér í dentíð.
Guðni, er það satt að þú
verðir fyrst hættulegur þegar þú
ferð að brosa?
„Ég á til alls konar bros,"
segir hann og brosir breitt.
Fullkomin viðgerða-
og varahlutaþjónusta.
Heimilis- og raftækjadeild
Lduydv^yi i/u-i/^ oiiiii oaoouu
TVEGGJA DYRA
KÆLI- OG FRYSTISKAPUR
Samt. stærö: 275 1.
Frystihólf: 45 I. ★★★★
Hæö: 145 sm.
Breidd: 57 sm.
Dýpt: 60 sm.
Færanlegar hillur í hurð.
Sjálfvirk afþýöing í kæli.
Vinstri eöa hægri opnun.
10. TBL VIKAN 39