Vikan - 28.05.1987, Blaðsíða 5
26
Stressið nær tökum á sumum og
öðrum ekki. Hvernig getum við
verið alveg viss um að stressið
hafi ekki náð tökum á okkur? Farið
yfirstressprófið.
30
Madonna er fáum lík, hún gerir
mikið til þess að vera engum lík
nema þá helst Marilyn Monroe.
Hennitekst þaðbærilega.
40
Myndasögurnar fjórar eru á sínum
stað, þeim hefur ekki fækkað eða
fjölgað heldur staðið I stað frá síð-
ustu viku og vikunni þar áður.
48
Handavinnan. Uppskriftirað
tveimur flottum peysum, önnur er
á strák og hin á stelpu, að sjálf-
sögðu.
52
Annar hluti framhaldssögunnar
eftir Raymond Chandler, Maður-
inn sem kunni vel við hunda.
Spennan eykst.
57
Anna Concetta Fugaro og list
hennarertil umfjöllunar í Lífi og
lyst. Einkasýning Önnu var opnuð
nýlega í Menningarstofnun
Bandaríkjanna.
32
Ingi Björn Albertsson er á leið til
setu í þingsölum. Hann er nýkjör-
inn þingmaður Vestlendinga og er
nú IVikuviðtalinu.
PÉTUR GUÐJÓNSSON, talsmaður Flokks manns-
ins, var mjög áberandi einstaklingur í nýafstaðinni
kosningabaráttu. Hans baráttuaðferðir voru öðruvísi
en annarra flokksleiðtoga og hegðunarmynstur
stuðningsmannanna líka. Pétur hefur getið sér orð á
öðrum vettvangi en sviði stjórnmálanna. Hann stund-
aði meðal annars nám við Harvard háskólann í
Bandaríkjunum og hefur farið víða um lönd til fyrir-
lestrahalds. Pétur kemur víða við í næstu Viku.
ÓSKAFERÐIR. Ferðalög landans um víða veröld eru
ótrúlega mikil. Við snerum okkur til nokkurra valin-
kunnra ferðalanga, eða einstaklinga sem að hluta til
hafa þann starfa að ferðast. Við spurðum um besta
ferðalagið hingað til og hvert förinni væri heitið í
næstu draumaferð.
MEGRUN. Við kynnum í þessu tölublaði nýjar,
bandarískar megrunartöflur. Við munum í næsta blaði
gefa upp megrunarkúr sem fylgir U.S. Grape Slim
töflunum. Við segjum svo frá einstaklingum sem
hafa reynt töflurnar, með góðum árangri að sjálf-
sögðu.
Á HÆÐ HEILAGS TÓMASAR. Frásögn Margrétar
Hjálmtýsdóttur kennara frá Madras I Indlandi. LES-
ENDUR SKRIFA. Saga af Stjönugömlu. ELDHÚSIÐ.
Ljúffeng baka og smákökur. NAFN VIKUNNAR og
sitthvað fleira verður í næstu Viku.
þ
22 TBL VIKAN 5