Vikan


Vikan - 28.05.1987, Blaðsíða 35

Vikan - 28.05.1987, Blaðsíða 35
verið hans ráðherra hefði hann látið hann víkja strax. Heldur þú að önnur staða hefði komið upp ef Þorsteinn hefði gert það? „Mér er sko nákvæmlega sama um stöðu Sjálfstæðisflokksins en Albert átti aldrei að víkja því Hafskipsmálið kemur upp löngu eft- ir að hann er hættur hjá Hafskip og það hafa engir hagsmunaárekstrar verið þar á ferðinni. Þó það hefðu verið möguleikar til þess þá urðu þeir ekki, það er búið að grandskoða það mál og sanna. Þannig að ef Albert hefði farið að víkja út af Hafskipsmálinu hefði hann farið að taka á sig einhverja tilbúna sök.“ - Þú stendur á því fastar en fótunum að faðir þinn sé hvergi ábyrgur í þessu Hafskips- máli? „Ég er alveg klár á því. Ég tel að ríkissak- sóknari sé búinn að staðfesta það og birta sínar ákærur og rannsaka þetta mál í heild. Það hefur hvergi komið neitt saknæmt fram um Albert Guðmundsson.“ - Nú komu upp efasemdir um ágæti ríkis- saksóknara, þar sem hann hafði notið fyrir- Þessa stundina eru það vegamálin sem hrenna nokkuð heitt í þessu kjördœmi, enda eru þau í mikl- um ólestri. greiðslu í sambandi við lánveitingu frá Albert Guðmundssyni? „Ég þekki náttúrlega ekki svona mál. Þetta mál leit þannig út gagnvart almenningi, fannst mér, að þarna var ákveðinn aðili að reyna að finna enn eitt hálmstráið þar sem hann hafði slitið fyrra hálmstráið og hrapað með því.“ - Hvern meinar þú þá? „Það getur náttúrlega hver og einn getið í það því það eru ekki margir aðilar sem geta farið fram á slíkar upplýsingar. - Þú meinar Þorstein Pálsson" „Já, ég meina Þorstein. Á það ber þó að líta að það komu upp mörg fleiri nöfn heldur en nafn ríkissaksóknara og þótti ekkert at- hugavert við þau frekar en nafn ríkissaksókn- ara enda var þetta löngu fyrir þann tíma sem Hafskipsmálið kom upp.“ - Hvert er þitt persónulega mat á þessu svokallaða Albertsmáli? „Þetta er erfið spurning. Forsagan er þegar Þorsteinn hefst handa eftir þessa Helgarpósts- frétt. Þar steig hann mjög alvarlegt feilskref, þar sem hann varð uppvís að trúnaðarbresti sem í rauninni varðar við lög og má með ólík- indum telja að hann skuli gera slík mistök. Þetta var það sem hrinti þessu öllu af stað.“ Ég tel að þarna séu á ferðinni pólitískir komplexar, ekki hagsmunir flokks eða þjóðar. - Nú kemur þú sjálfur inn í þessa umræðu? „Já.“ - Var málið allt þá þér að kenna? „Það verða mistök hér í fyrirtækinu sem leiða til þessa máls. Þetta eru i rauninni mjög lítil mistök sem eru að gerast víðast hvar. Það er einungis vegna þess hversu pólitískt þetta mál er og að fyrirtækið ber nafn Alberts Guðmundssonar sem allt þetta íjaðrafok verður.“ - Kennir þú sjálfum þér þá um hvernig fór fyrir föður þínum? „Nei, ég tók þetta ekki til mín. Þetta var hálmstrá sem aðilar innan Sjálfstæðisflokksins voru lengi búnir að bíða eftir en gripu hins vegar í tómt.“ - Ertu ánægður yfir því? „Ég gleðst ekki yfir óförum annarra en okkar staða í dag er hins vegar vel við un- andi.“ - Nú hefur alltaf verið mikið fjölmiðlafár í kringum föður þinn. Hefur það snert þig eða fjölskylduna?" „Við höfum eiginlega öll farið okkar eigin leiðir þannig að það hefur ekki verið spurning um að upplifa slíkt innan fjölskyldunnar, kannski frekar út á við. Auðvitað hefur þetta snert mann á einhvern hátt. Þó held ég að þetta hafi snert mig minna en til dæmis Hel- enu og Jóhann, þar sem ég hef verið svo lítið í pólitíkinni. Það hefur náttúrlega alltaf eitt- hvað verið að gerast, það er aldrei nein lognmolla í kringum okkur. Þá á ég sérstak- lega við eftir að Albert fór út i pólitíkina. Það virtust strax frá upphafi vera einhver ákveðin öfl innan Sjálfstæðisflokksins sem voru hon- um andsnúin. Þetta hefur meira eða minna haft áhrif á hans pólitíska líf. Þeir hafa stöð- ugt verið að leita að þessu hálmstrái til að klekkja á honum en það hefur aldrei tekist, ekki einu sinni í þetta skiptið.“ - Hefur þú einhverja hugmynd um hvers vegna? 22 TBL VIKAN 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.