Vikan - 28.05.1987, Blaðsíða 38
yfir mikilli reynslu og krafti sem smitar út frá
sér og við höfum notið góðs af því.“
- Nú býr hún erlendis, missið þið hana þá
ekki fljótt?
,,Hún er búsett í Bandaríkjunum og ég veit
ekki hvenær hún fer aftur. Hún er enn hér
og ég efast um að hún hugsi sér til hreyfings
fyrr en eftir landsfund.“
- Hvenær verður hann?
„í september.“
Ingi Björn á heiður-
inn af fyrsta mark-
inu sem Islendingar
skoruðu í heims-
meistarakeppni.
- Hvaða mál verða þar efst á baugi?
„Upp úr fundinum sem var um helgina og
öðrum fundum, sem hafa verið fram að þessu,
er verið að vinna að málefnaflokkum og tillög-
um sem leggja þarf fyrir landsfundinn. Það
segir sig sjálft með nýjan flokk að það hlýtur
að vera geysimargþætt. Það er nánast allt
þjóðfélagið sem þarf að brjóta upp.“
- Það var sagt fyrir kosningar að þið hefð-
uð náð í besta vin þinn til að stilla honum upp
í annað sætið í Reykjavík.
„Já, ég hef heyrt það en það er algjör mis-
skilningur. Það er alltaf verið að tala um
hann og spn Alberts, það er hins vegar bróð-
ir minn. Ég hafði aldrei séð þennan mann
áður, þó hann sé góður vinur minn í dag.
Hann átti að vera bridgefélagi Jóhanns bróð-
ur míns en Jóhann hefur aldrei spilað bridge.
Þeir eru engu að síður góðir vinir.“
- Það hefur þá verið sú vinátta sem gerði
það að verkum að hann kom til samstarfs við
flokkinn?
„Ég þori nú ekkert að segja um það, senni-
lega hefur það að minnsta kosti ekki skaðað
að sú vinátta var til. Ég hef hvorki spurt hann
né nokkurn annan af hverju þeir hafi komið
til samstarfs við þennan ákveðna flokk.“
- Heldurðu að það eigi eftir að reynast
flokknum erfitt að svona margir óreyndir
menn koma saman á þingi?
„Ég efast um það. Auðvitað þurfa menn
tíma til að skólast og hann töluverðan, það
hafa reyndir þingmenn úr öðrum flokkum
tjáð mér. Það tekur sinn tíma og best að fara
hægt í sakirnar. Þetta eru allt mjög hæfir
menn, tel ég, sem völdust saman til starfa og
ég er viss um að þeir eiga eftir að axla þá
ábyrgð sem þeim er lögð á herðar.“
- Þú ert þá ekkert smeykur við tilhugsun-
ina um að setjast á þing?
„Nei, það er ég ekki. Það er langt fram í
október. Ég hugsa að það verði kannski ein-
hver titringur þegar nær dregur en í dag er
ég hvergi smeykur.“
Það er erfitt að sitja snemma á mánudags-
morgni og ræða pólitík fram og aftur, þó
væri ekki hægt að taka viðtal við Inga Björn
Albertsson án þess að koma að þeim málum.
En það er vissulega margt annað sem er eftir
að ræða. Ingi Björn á til dæmis stóra fjöl-
skyldu. Eiginkonan, Magdalena Kristinsdótt-
ir, er menntuð fóstra og það er kannski
jafngott því börnin eru sex, allt frá mánað-
argömlu upp í tólf ára. Elst er dóttirin
K.ristbjörg Helga, tólf ára, Ólafur Helgi er
næstur, þá Ingi Björn. Kristinn, Albert Brynj-
ar og loks sú mánaðargamla sem að öllum
líkindum er að fá nafn um þessar mundir.
Flestir vita líka að Ingi Björn hefur látið
til sín taka á fótboltavellinum þó hann eigi
ekki nema um fimmtán landsleiki að baki.
Hann segist hafa átt sína góðu tíma í fót-
boltanum og einnig slæma. Ingi Björn_ á
reyndar heiðurinn af fyrsta markinu sem ís-
lendingar skoruðu í heimsmeistarakeppni og
segir hann það vera minnisstæðasta landsleik-
inn. „Þetta var fyrsti sigur Islendinga í
heimsmeistarakeppni en leikurinn var á móti
Norður-írlandi og við unnum hann 1-0.“
Ingi Björn spilaði tiltölulega fáa landsleiki
á löngum tíma. Af hverju var það?
- Máttir þú ekki vera að þessu?
„Jú, jú, en það var mismunandi gott leik-
form á mér, meiðsli og svo útistöður við
þjálfara og svona ýmislegt sem varð þess vald-
andi.“
- Af hverju lentir þú í útistöðum við þjálf-
ara?
„Það er nú eiginlega mál sem þjálfarinn,
Tony Knapp, ætti að svara fyrir. Ég gat aldr-
ei komið auga á neina ástæðu fyrir því.
Honum var eitthvað í nöp við mig og fór
ekki dult með það. Við gátum einfaldlega
ekki starfað saman. Ég spilaði ekki fleiri
landsleiki undir stjórn Tony Knapp eftir
ákveðið atvik sem henti í einum landsleik.
Ég var varamaður í þeim leik og Tony setti
mig inn á völlinn en tók mig síðan út af aftur
tíu eða fimmtán mínútum seinna. Slíkt er
nánast óheyrt og ég held að hann hafi gert
það af persónulegri illkvittni við mig. Eftir
það kom ekki til álita að spila undir stjórn
þessa manns.“
- Varstu þá ekki með í fleiri landsleikjum
eftir það?
„Jú, ég lék undir stjórn rússneska þjálfarans
sem æfði liðið eftir að Tony hætti.“
- Fannst þér að þú hefðir átt að vera með
i fleiri landsleikjum?
„Já, á því tímabili sem Tony Knapp var
með liðið fannst mér ég eiga skilið miklu lleiri
landsleiki heldur en ég fékk.“
- Varstu þá ekki svekktur?
„Áður en þessi illindi blossuðu upp var
maður ekki fyllilega sáttur við það en eftir
þau kærði ég mig ekki um að leika meira
undir stjórn þessa manns.“
- Var Tony Knapp illa liðinn hjá fleirum?
„Hann var mjög umdeildur. Ég skal ekki
segja hvort hann hafi verið illa liðinn. En því
er ekki að neita að hann skilaði mjög góðum
árangri.“
Ingi Björn er Valsari af heilum hug og þar
prílaði hann upp alla flokka á sínum yngri
árum, að undanskildum öðrum flokki sem
hann fékk að sleppa. Hann fór beint inn í
meistaraflokkinn. Nokkrum sinnum urðu
Valsarar íslandsmeistarar á þessu tímabili.
- Varstu góður leikmaður?
„Svona máttu nú ekki spyrja. Ég hef átt
mín góðu tímabil og líka slæm. Það hafa
skipst á skin og skúrir.“
Ingi Björn hefur notað mestallan sinn frí-
tíma í fótbolta. Hann tók sér frí tvö surnur
sem unglingur,_annað sumarið fór hann í skóla
rétt utan við Álaborg en hitt í enskuskóla í
Englandi, að öðru leyti hefur hann haldið sig
við boltann. Að vísu tók hann smáhliðar-
spor, eins og faðir hans gerði á sínum tíma,
til að þjálfa meistaraflokk FH.
Hvernig voru FH-ingarnir?
„Ég þjálfaði FH-ingana árið 1981. Þeir áttu
góða daga en einnig slæma. Engu að síður
var þetta ár afieitt. Þá fukum við beint niður
í aðra deild, byrjuðum mjög illa og eftir fimm
leiki vorum við með ekkert stig og nánast
fallnir í upphafi móts. Eftir það tímabil fór
ég aftur í Val en kom svo aftur í FH 1984.
Þá var FH ennþá í annarri deild. Það ár gekk
mjög vel og við unnum okkur aftur upp i
fyrstu deild með miklum ágætum, vorum svo
miðlungslið í fyrstu deildinni næstu tvö ár á
eftir og þar eru þeir ennþá. Ég held að FH
hafi verið á uppleið. Það er stígandi i liðinu
sem þeir mega ekki missa. Nú hafa þeir feng-
ið Skota, Ian Flemming, til að þjálfa liðið en
ég er kominn aftur ,,heim“. Ég hef lítið getað
æft með Val þar sem ég fór út í pólitíkina en
það á eftir að koma í Ijós á næstu vikum
hvort nú er kornið að leikslokum hjá mér í
knattspyrnunni."
Nú vilja lesendur sjálfsagt fá að vita hvort
ekki sé mikið fjör heima við hjá Inga Birni.
Þó að einhvern tíma hafi þótt sjálfsagt að
Það á eftir að koma
í Ijós á nœstu vikum
hvort nú sé komið
að leikslokum hjá
mér í knattspyrn-
unni
heimili væru barnmörg hefur tíðarandinn
breyst og nú þykir mikið að ciga scx börn.
Það hlýtur að vera mikið líf og fjör á heimil-
inu.
„Það er mikið fjör þar. Annars er ég svo
skammarlega lítið heima að þetta bitnar mest
á Magdalenu, en þetta er auðvitað mjög erf-
itt fyrir hana. Hún er harðdugleg og sér við
þessu öllu.“
38 VIKAN 22. TBL